23.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í B-deild Alþingistíðinda. (816)
68. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands
Lárus H. Bjarnason:
Eg vildi biðja háttv. þm. V.-Ísf. að leggja ekki í vana sinn að finna þá fyrst að ræðum mínum, þegar eg er dauður.
Eg réði til þess við 1. umræðu, að hraða málinu svo, að frumv. gæti orðið samferða þeim manni út, er nú verður skipaður ráðherra. En það varð ekki, og því verður að taka þessa aðferðina. Lögin verka ekki aftur fyrir sig fyrir því.
Eg er ekki samdóma háttv. 1. kgk. þm. um það, að hér sé um nokkurt stjórnarskrárbrot að ræða, né heldur það, að rétt sé að taka málið út af dagskrá. — Forseti hefði vísað frumv. frá undir eins og það kom fram, ef hann hefði álitið það koma í bága við stjórnarskrána; og með því að hann gerði það ekki, þá er þar með úrskurður fallinn um það atriði. Og sá úrskurður er vafalaust réttur, því 1. gr. frumv. segir að ráðherra skuli hafa »eftirlaun«; og þó að þau séu tímabundin, kemur það ekkert í bág við stjórnarskrána, því að hún segir hvergi að eftirlaunin skuli haldast alla æfi. — Sá skilningur frumv. sjálfs, að þetta séu eftirlaun, verður því væntanlega að ráða.