01.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 948 í B-deild Alþingistíðinda. (835)
70. mál, Skálholt
Framsögumaður (Ari Jónsson):
Það er viðvíkjandi mjög stuttorðu nefndaráliti, sem eg vildi segja nokkur orð. Tilgangurinn með þessu frumvarpi um að veita landstjórninni heimild til að kaupa Skálholt, er sá, að koma í veg fyrir það, að þessi fornmenjaríki staður komist í hendur útlendinga eða einstakra manna, og fornmenjarnar eyðileggist. Ástæðan til þess að nefnd var kosin í málið, var ekki sú, að menn væru ósammála um aðalatriðið, heldur sú, að réttara þótti að rannsaka, hvort eigendur jarðarinnar fengjust eigi til að tilnefna neitt ákveðið verð, svo hægt væri að setja inn í frumvarpið eitthvert ákveðið verð, sem stjórninni væri heimilt að kaupa jörðina fyrir. En það var ekki hægt, og þykir nefndinni það miður farið. Þó álítum vér rétt að samþykkja frumv. samt sem áður, því að við álítum stjórninni treystandi til að kaupa jörðina ekki fyrir neitt geypiverð.