23.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 952 í B-deild Alþingistíðinda. (850)
72. mál, sala kirkjujarða
Lárus H. Bjarnason:
Eg hefi verið spurður um það, hvort kirkjumálanefndin hefði ætlast til þess, að hjáleigur yrði seldar út af fyrir sig. Eg þykist geta svarað því, að nefndin mun hafa ætlast til að stjórnin hefði heimild til að selja þær hjáleigur, sem væru sérstök býli, en stjórnin hefir neitað um sölu í slíkum tilfellum, fyrir þá sök að hún hefði ekki heimild til þess. Þess vegna er þetta frumv. fram komið. Hættan er engin, hvernig sem á málið er litið, því að hér er að eins um heimild til sölu að ræða, og stjórnin getur alt af neitað um söluna, ef ástæða er til. Það er því alveg óhætt að samþykkja frumvarpið, og full ástæða til þess, úr því stjórnin hefir ekki álitið sig hafa nægilega heimild til slíkrar sölu eftir lögunum um sölu kirkjujarða.