07.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 965 í B-deild Alþingistíðinda. (866)
74. mál, hlutabréf Íslandsbanka
Stefán Stefánsson (6. kgk. þm.):
Eg fæ ekki betur séð en að með frumvarpi því, sem hér liggur fyrir, sé fundið gott ráð til að bæta, að nokkru leyti, úr peningaþröng þeirri, sem nú er hér í landi. Því hefir að vísu verið skotið fram, að bankinn mundi geta selt þessi hlutabréf, þó landsjóður keypti þau ekki. — En þó svo fari, að einhverjir aðrir — sjálfsagt útlendingar — kaupi bréfin, verður það ekki til þess, að vér fáum yfirráð yfir bankanum, og í annan stað má geta þess, að hingað til hefir bankinn ekki getað selt bréfin fyrir nafnverð. En sjálfsagt stafar það með fram af peningavandræðum þeim, sem verið hafa um gjörvallan heim, að heita má, síðan bankanum var veitt heimild til að auka hlutafé sitt. — Hins vegar ganga núverandi hluthafar aldrei að því, að selja hlutbréfin undir nafnverði sem heldur ekki er von, því að hinir nýju hluthafar verða aðnjótandi svo margra góðra hlunninda, sem bankinn hefir þegar fengið.
Það hefir verið mikið úr því gert hér í deildinni í dag að hlunnindi banka þessa hafi verið aukin á hverju þingi. En öll þessi hlunnindi getur landsjóður nú fengið aftur að ? hlutum, ef frumv. þetta nær fram að ganga og samningar um hlutabréfakaupin takast milli stjórnarinnar og bankans. Mestu hlunnindin fyrir bankann eru seðla útgáfurétturinn. Halldór Jónsson bankagjaldkeri hélt því fram í blaðagrein einni fyrir nokkrum árum, að með seðlaútgáfuréttinum hefði landsjóður veitt bankanum stórhöfðinglega gjöf, því að hlunnindi þessi mætti telja 30,000 kr. virði á ári, og að á seðlaútgáfuréttinum græddi bankinn ef vextir væru reiknaðir með c. 680,000 kr. Af þessari upphæð fær landsjóður aftur ?, ef hann gerist hluthafi á þann hátt, sem frumvarpið gjörir ráð fyrir. Og þegar þess er gætt, að landsmenn munu nú eiga framundir hálfa miljón í hlutafé bankans, má telja víst, að öll yfirráð bankans, kæmust í hendur Íslendinga, ef landsjóður keypti hlutabréf fyrir 2 milj. króna.
Því er haldið fram í nefndarálitinu, að sannvirði bréfanna hafi í apríl verið 91 %, en í apríllok var kauphallarverð þeirra, að arðinum meðtöldum, 103% og eftir því hefir sannvirði þeirra, reiknað á þann hátt, sem nefndin gerir, verið 95—96%. Það má kanske segja, að það sé nokkuð dýrt, þegar miðað er við þetta verð, að kaupa bréf þessi á 101 %, en vér getum ekki fengið þau fyrir minna, og verður því að gefa það fyrir þau, þyki okkur kaupin á annað borð svo arðvænleg, að vér viljum í þau ráðast. Og kaupi landsjóður þessi bréf, þá eykst eftirspurnin eftir þeim og þau hækka enn meira í verði.
Þegar þess er gætt, að hluthafar bankans hafa síðustu árin fengið 6 %—7 % í arð á ári, og þau ár hafa verið hin erfiðustu að því er alt viðskiftalíf snertir, og að landsjóður hins vegar ekki á að borga nema 4½ % í vexti af skuldabréfum sínum, þá er mér ómögulegt að skilja, hvernig hinn háttv. framsögum. getur fullyrt, að hlutabréf bankans séu ekki betri en landsjóðsskuldabréfin. Eða hvaða líkur getur hann fært fyrir því, að hlutabréf bankans gefi framvegis ekki nema 4 ½ % í vöxtu, þegar honum hefir gengið svona vel búskapurinn síðustu árin, sem þó hafa verið öllum landsmönnum í erfiðasta lagi?
Munurinn á arðinum af bankahlutabréfunum, ef þau gefa 6 ½ % og þessum 41/2%, sem landsjóður þarf að greiða af skuldabréfum sínum, er 2 %, og það verða af tveimur miljónum 40 000 kr. Þá upphæð græðir landsjóður á hverju ári, og er hún nákvæmlega jafnhá eins og sú upphæð, sem vér þurfum að innleysa skuldabréf með á ári. Á 50 ár um græddum vér þá 2 milj. kr., eða hefðum með öðrum orðum eignast öll bankahlutabréfin, án þess að gefa einn eyri fyrir þau. Og þó svo færi, að arðurinn af hlutabréfunum yrði minni en hér er gert ráð fyrir, þá yrði gróðinn eigi að síður stórkostlegur, en það er ekkert líklegra að arðurinn lækki en að hann hækki, og allra sennilegast, að meðaltalið verði ekki undir, öllu fremur yfir 6 ½ %. Það er því ómögulegt að mótmæla því með rökum, að fyrirtækið sé arðvænlegt.
Nefndin ber á móti því, að vér fáum yfirráð yfir bankanum, þótt vér kaupum bréf þessi, því að 2/5 hluthafanna geti engu ráðið, ef hinir allir standi í móti, en menn verða að gæta þess, að hinir hluthafarnir, að íslenzku hluthöfunum undanteknum, sem nú eiga að minsta kosti 3 til 4 hundruð þúsund krónur í hlutafé bankans, eru búsettir á við og dreif í útlöndum, og munu sjaldnast sækja hluthafafundina, sem haldnir eru í Reykjavík, og verða það því því nær eingöngu íslenzku hluthafarnir og umboðsmenn landsjóðs, sem fundina sækja, og hljóta því að ráða öllu, sem þeir vilja ráða.
Helzt vildi eg halda hlutabréfakaupunum áfram þar til öll hlutabréfin eru komin á íslenzkar hendur og bankinn þannig orðinn með öllu innlend eign. — En haldi bankinn áfram að vera útlend eign, mega þeir þakka sér það, sem fella þetta frumv., því að tilboðið stendur ekki nema til loka þessa þings, svo að það er ómögulegt að segja, að maður að eins sé mótfallinn kaupunum að þessu sinni, því að jafngott tækifæri kemur líklega aldrei aftur; að minsta kosti fáum vér hlutabréfin sennilega aldrei með jafngóðum kjörum. Eg vil því eindregið ráða til að samþykkja frumv. þetta, vegna þess að við það aukast peningarnir í landinu, því að það er þegar því nær fengin fullkomin vissa fyrir því, að landsjóðsskuldabréfin geta selzt ef til kemur með viðunanlegum kjörum, og að þetta er líklegasti vegurinn til þess, eins og nú stendur, að bæta úr peningavandræðunum. Þá er eigi síður á það að líta, að hér er að ræða um sjálfsagt eina framkvæmanlega ráðið til þess að Íslendingar fái full yfirumráð yfir bankanum og rekstri hans. Loks fær landsjóður aftur að 2/5 hlutum arðinn af hlunnindum þeim, sem hann hefir veitt Íslandsbanka.