07.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 980 í B-deild Alþingistíðinda. (874)
74. mál, hlutabréf Íslandsbanka
Jens Pálsson:
Eg finn ástæðu til þess að svara háttv. 6. kgk. þm. þar eð hann dró mál inn í umræðurnar, sem aldrei hefir komið í þessa deild, og því ekki geta komið umræðunum við, nfl. »Thore«-málið. En hann má vita að eg tel hér ólíku saman að jafna, þar sem þar var aðeins um fjórðung þess fjár að ræða, sem hér ræðir um, og þar sem alt var svo vel trygt sem frekast var unt. — Þetta kom ekkert þessu máli við, og enginn þinglegur réttur til þess að blanda því hér í umræðurnar. Og þingmaðurinn naut þess að eg sat í forsetastólnum, og átti að dæma í minni eigin sök, að eg ekki tók af honum orðið. Þar sem honum fórust svo orð, að eg væri góður Íslendingur og sjálfstæðismaður, met eg mikils þau góðu ummæli hans.