26.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í B-deild Alþingistíðinda. (88)
2. mál, fjáraukalög 1908 og 1909
Framsögumaður (Sig. Stefánsson):
Eg vildi að eins gera stutta athugasemd út af orðum háttv. 4. kgk. þm. um Gilsfjörð. í gildandi fjárlögum fylgir það ákvæði fjárveitingunni um mælingu á Gilsfirði, að ¼ yrði lagður á móti styrknum af hendi hlutaðeigandi sýslufélaga. En hér eiga hlut að máli fremur fátækar sýslur, og í þessum bygðarlögum hefir ekki svo mikið sem einn vegarspotti verið styrktur úr landsjóði. Mér er þessi fjárveiting ekkert kappsmál, en finst að eins full sanngirni fyrir henni.