05.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 989 í B-deild Alþingistíðinda. (887)

76. mál, farmgjald

Kristinn Daníelsson:

Eg hefði gjarnan viljað talað nokkur orð, því að eg er ósamdóma háttv. 4. kgk. þm., en af því athugasemdir mínar snerta aðallega eina einstaka grein skal eg geyma þær til annar umræðu. Að eins vildi eg leyfa mér að mæla með því að málinu verði lofað að ganga til 2. umr.