07.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 995 í B-deild Alþingistíðinda. (892)

76. mál, farmgjald

Ágúst Flygenring:

Eg vildi að eins athuga dálítið nokkur atriði í ræðu háttv. þm. V.-Ísf. Hann sagði, að þetta væri að eins lítið gjald, sem ekki væri þess vert, að amast við því, en gæti verið hentugt til þess, að fá reynslu til að byggja á framvegis.

Það er ekki á rökum bygt, að þetta sé svo lítilfjörlegur skattur, að hann verði alveg ótilfinnanlegur. Það er að minsta kosti stærri skattur en allur tekjuskattur og fasteignaskattur í landinu til samans, og þeir skattar hafa þó ekki þótt neitt sérlega óverulegir.

Það er satt, að það eru landsmenn yfir höfuð, sem greiða skattinn í raun og veru, en ekki kaupmennirnir. En höfuðgallinn við skattinn er sá, að hann kemur ranglátlega niður.

Hann vildi segja, að eg hefði farið eftir innkaupsverði og reiknað skattinn út í hlutfalli við það. En eg vil segja, að útreikningarnir voru ekki fjarri lagi, þó að miðað sé við útsöluverð. — Árið 1906 hafa verið fluttar inn yfir 7 þús. tunnur af kartöflum, og árið 1907 um 10 þús. tunnur, sem hafa verið seldar út fyrir kringum 80 þús. kr. Skatturinn af þessum 10 þús. tunnum hefði verið 5000 kr. eða nálægt 7% að útsöluverði. Þá er það ekki svo fjarri, að verðhækkunin hefði numið 12%, því að kaupmenn verða að fá nokkuð fyrir að leggja gjaldið út svo og svo löngu áður en varan selst.

Eg fer ekki neitt út í einstök atriði frumvarpsins, en þó vil eg geta þess, að ákvæðin eru alt of hörð. T. d. er í 6. gr. gert ráð fyrir, að selja vörurnar án dóms eða fjárnáms til lúkningar gjaldinu. Þetta eru gríðarlega hörð ákvæði.

Hátt. þm. taldi brýna þörf á að auka tekjur landsjóðs. Þetta er ekki rétt eins og nú stendur, því að fjárlögin eru svo úr garði gerð ennþá, og verða víst frá þessu þingi, að þau gefa ekki ástæðu til að óttast mikinn tekjuhalla.

Þá sagði hann, að skattamálanefndin hefði bent á þetta gjald. Það er ekki rétt. Það var að eins rætt um þetta í nefndinni og þess getið, að það væri ef til vill heppileg aðferð, að leggja verðtoll á aðfluttar vörur og auka tekjur landsjóðs á þann hátt. En þetta er alt annað en verðtollur. Hér eru toll-»satsarnir« að eins þrír, en þar sem um verðtoll er að ræða, eru þeir ótalmargir. Hér er ætlast til, að gjaldið verði lagt á eftir fyrirferð vörunnar, en verðtollur er lagður á eingöngu í hlutfalli við verðið. Það er fjarri því, að nokkuð líkt því, sem farið er fram á í þessu frumv., hafi vakað fyrir nefndinni eða þessum eina manni í henni, sem mælti með þess konar gjaldi.

Skatturinn kemur ákaflega órétt og óheppilega niður. T. d. má nefna það, að gjaldið verður lagt á pappír, sem flytzt til landsins, en ef búið er að prenta á pappírinn, þá þarf engan skatt að borga af honum. Með öðrum orðum, menn verða að borga eins konar sektir fyrir það, að láta prenta hér á landi, en ekki í útlöndum.

Háttv. þm. sagði, að málið hefði verið athugað vel í neðri deild. En eg held að sú athugun hafi verið af æði skornum skamti, sem vænta má, því að tíminn var naumur og mikið að gera við önnur mál. Enda varð eg var við það, að framsögumaður málsins var ekki vel inni í þeim útreikningum, sem hann var að fara með.

Eg get ekki álitið þetta frumv. á rökum bygt, og vil eindregið mæla með því, að sú rökstudda dagskrá, sem háttv. þm. Ísf. kom með, verði samþykt. Það er rétt, að stjórnin taki málið til íhugunar til næsta þings. Slík mál má ekki afgera nema með góðum undirbúningi.