20.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1002 í B-deild Alþingistíðinda. (900)
78. mál, fjármálanefnd
Forseti:
Þetta er í fyrsta sinn, sem komið hefir till. um að setja meira en helming þingdeildar í sömu nefnd, og eg býst við að það mundi fyr meir, þegar eg átti setu á þingi, hafa verið álitið mjög mikið vafamál, hvort það væri leyfilegt. En eg get þó ekki séð, að það sé beint á móti þingsköpunum. Mér þykir það þó fremur óviðkunnanlegt, og skal skjóta því til háttv. 4. kgk. þm., hvort hann sé ekki tilleiðanlegur til að taka þessa tillögu sína aftur.