25.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1018 í B-deild Alþingistíðinda. (918)
80. mál, skólabækur
Sigurður Stefánsson:
Eg vildi gjarnan fá skýringu á því hjá nefndinni, hvort það er meining hennar, að aðrar bækur verði ekki leyfðar en þær, sem kenslubókanefndin mælir með; ef svo er, þá vantar ákvæði um það í tillöguna. Séu kennararnir aftur á móti sjálfráðir um það, hvort þeir fara eftir tillögum kenslubókanefndarinnar eða ekki, þá kemur nefndarstarfið ekki að fullu gagni. (St. St.: Kennararnir eiga að fara eftir tillögum nefndarinnar). Þá finst mér það ætti að koma fram, að minsta kosti í umræðunum.