22.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1021 í B-deild Alþingistíðinda. (924)

81. mál, unglingaskólar

Kristinn Daníelsson:

Tillagan er trygging í 2 áttir, annars vegar gagnvart landsmönnum, en hins vegar gagnvart fjárveitingarvaldinu. Það er ekki fyrir tilstilli landstjórnarinnar, heldur að þakka samtökum einstakra bygðarlaga, eða jafnvel dugnaði og örlæti einstakra manna, að skólar þessir eru komnir á fót. En mér sýnist það augljóst, að það verði fyr eða síðar hlutverk landstjórnarinnar að sjá fyrir þessum skólum og koma á fót einhverju er svarar til þess, sem kallað er »Mellemskoler« í nágrannalöndum vorum. Slíka skóla hefir vantað hingað til, en er nauðsynlegur liður í alþýðumentuninni. Fyrir því er það að mínu áliti sjálfsagt, að styrkja tilraunir landsmanna í þessu efni svo sem kostur er á. Eg álít það beina skyldu landstjórnarinnar, að sjá um að þær tilraunir, sem nú er verið að gjöra í þessu efni víðs vegar um land, verði ekki tómt Sisyfusarstrit, en jafnframt að gæta þess, að fé landsjóðs sé ekki kastað út í stjórnleysu. Fyrir því álít eg tillöguna stefna að réttu marki og mun gefa henni atkvæði mitt.