15.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1024 í B-deild Alþingistíðinda. (928)

82. mál, póstafgreiðsla í Vík

Ráðherra (H. H.):

Það er ekki heppileg leið að samþykkja þingsályktanir um slík atriði; það er að »skjóta sendlinga með selahöglum«. Beinasta leiðin er eðlilega að snúa sér til stjórnarráðsins. Neiti það að verða við beiðni í þessa átt, þá er það auðvitað af því, að gildar ástæður eru fyrir hendi, t. d. að meiri þörf er á umbótum annarstaðar. Vegna hinnar takmörkuðu fjárveitingar getur stjórnin ekki orðið við öllum óskum í þessu efni, og næsta leiðin er þá auðvitað að snúa sér til fjárlaganefndarinnar áður en komið er með tillögu til þingsályktunar. Að þingið sé að óþörfu að blanda sér í smámál, sem heyra undir verkahring umboðsvaldsins, er tæplega heppilegt. Það er hættuleg braut. Það gæti raskað réttu hlutfalli í þessum efnum. Umboðsvaldið tekur auðvitað tillit til allra sanngjarnra óska um annað eins og þetta, og veit eg ekki neina fyrirstöðu frá þess hálfu að því er snertir póstafgreiðslu í Vík. Sé raun orðin á því, að póststjórnin sýni ójöfnuð, þá er fyrst tími til fyrir þingið að taka til sinna ráða.