15.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1026 í B-deild Alþingistíðinda. (934)

82. mál, póstafgreiðsla í Vík

Steingrímur Jónsson:

Þetta er í fyrsta sinni, sem þingsályktunartillaga um svo lítilfjörlegt mál kemur fram hér á þingi. Eg álít það mjög varhugavert, að koma þeim vana á að samþykkja þingsályktunartillögur um hvað sem vera skal. Byrji menn einu sinni á því, má búast við aragrúa af slíkum tillögum á hverju þingi, en þá væri brotinn oddurinn af þessu vopni, sem þingið hefir á stjórnina, og væri það þá gagnslaust.

Ennfremur er það að athuga við tillöguna, að hún fer fram á það, að þingið blandi sér inn í dagleg framkvæmdarstörf stjórnarinnar. Sú sjálfsagða leið með slík mál er, að snúa sér til stjórnarráðsins. Háttv. flutningsmaður segir að sú leið hafi verið farin, en hafi ekki gagnað. Hvar eru þá þau skjöl er sýna það, því liggja þau ekki fyrir deildinni? Það er nauðsynlegt að deildin sjái þau skjöl, til þess að hún geti myndað sér skoðun um málið.

Mér finst, af þessum ástæðum, að deildinni sé skylt að vísa tillögunni frá sér.