15.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1028 í B-deild Alþingistíðinda. (937)
82. mál, póstafgreiðsla í Vík
Sigurður Stefánsson:
Mér þykir satt að segja hálfkátlegt þetta mikla uppþot, sem þessi tillaga vekur hér í deildinni. Eg skal að vísu játa það, að það hefði ef til vill verið réttast, að snúa sér til umboðsstjórnarinnar um þetta mál, en eg sé hinsvegar ekkert á móti því, þó þingið taki í taumana. Því það er víst, að þetta mál er áhugamál því héraði, sem ræðir um. Eg skoða þetta svo, að þing og stjórn eigi að vera »liberal«, einkum þar sem svo stendur á, að þessi héruð eru mjög afskekt. Auk þess borga póstferðirnar nú orðið sig svo vel yfirleitt, að mér þykir mjög hæfilegt, að óskum landsmanna sé fullnægt svo sem unt er.
Eg sé því ekkert á móti að fara til alþingis með þetta mál, úr því að það fæst ekki öðru vísi. Og eg get alls ekki fallist á það, að alþingi gæti ekki sóma síns með því að samþykkja þessa tillögu. Mér findist aftur á móti óviðkunnanlegt ef þingið færi að sýna þá afturhaldssemi, að synja um þessa lítilmótlegu samgöngubót.
Eg álít að það sé hvorki þörf að setja nefnd í málið eða taka það út af dagskrá, heldur megi lofa því að ganga sinn gang og samþykkja það.