03.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1062 í B-deild Alþingistíðinda. (962)
86. mál, Landsbankarannsókn
Sigurður Hjörleifsson:
Háttv. 5. kgk. þm. var svo einurðargóður, að leggja áherzlu á það, að hér væri ekki um flokksmál að ræða, né neinn aðsúg að stjórninni. það þarf sannarlega einurð til að segja þetta eftir ræður hans sjálfs hér í deildinni; og enn meiri einurð virðist þurfa til þess, þegar litið er til ummæla þeirra um þessa ráðstöfun, sem komið hafa fram í blaði því, er hann stýrir. Þ. 28. apríl er sagt í þessu blaði berum orðum, að núverandi ráðherra hafi gefið dönsku stjórninni loforð um að binda Ísland fjárhagslega við Danmörku. Fyrsta tiltækið til að framkvæma þetta átti að vera það, að ginna þingið til að ganga að tilboði Thore-félagsins, og ganga þannig út í bersýnilegan voðann. Sama dag og þetta hafi mistekist, segir blaðið, að ráðherra hafi tekið það ráð, að gera tilraun til að eyðileggja Landsbankann, Íslandsbanka í hag. Þetta stendur í eigin blaði háttv. 5. kgk. þm., sem komið er út um alt land. Þetta var ekki í blaðinu, sem brent var; en hvað mun þá hafa staðið í því? Í sama blaði stendur, að bankinn hafi verið kominn vel á veg með að selja 2 miljónir af bankaskuldabréfum, en nú sé sú sala ónýtt. Samt segir háttv. þm., að hér sé ekki um neina pólitíska ofsókn móti stjórninni að ræða! Eg skal geta þess, að háttv. þm. fór í framsögunni með rangt mál, þar sem hann sagði, að í bréfi ráðherra stæði, að rannsóknin skuli ná til umliðinna ára; þar stendur að eins, að hún geti eða megi ná til umliðinna ára. Hér fór háttv. þm. því með hrein og bein ósannindi.
Annars er óþarfi að vera að tala mikið um þetta mál. Eg skal ekki dylja það, að eg vona og treysti að sú raun verði á, að ekkert verulegt sé við stjórn Landsbankans að athuga. En vegna þess úlfaþyts, sem borinn hefir verið út, að því er virðist í flokkslegu skyni, til að stofna meiri hlutanum í hættu, og fella ráðherrann, þá hefir mér dottið í hug að bera fram aðra dagskrá, svo hljóðandi:
»Með því að deildin lítur svo á, að hin umræddu afskifti landstjórnarinnar af hag Landsbankans séu bæði lögmæt og sjálfsögð, lýsir hún fullu trausti sínu á ráðherranum og tekur fyrir næsta mál á dagskránni«.