03.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1066 í B-deild Alþingistíðinda. (964)

86. mál, Landsbankarannsókn

Eiríkur Briem:

Út af orðum hæstv. ráðherra, sem hann beindi til mín um reikningsskil bankans, verð eg að taka það fram, að allan þann tíma sem eg hefi verið við bankann — og það hefi eg verið síðan hann var stofnaður — hefir alt af verið gjörður bæði ársreikningur og ársfjórðungsreikningar á réttum tíma. Að ársreikningurinn ekki hefir komið til stjórnarinnar fyr en í aprílmánuði, er af því, að það hefir orðið að bíða eftir uppgjörð yfir viðskifti bankans við útlönd; svo hefir reikningurinn ætið verið sendur til stjórnarinnar, svo að eg skil ekki hvað ásökunin í þessu efni getur gengið út á. Viðvíkjandi gjörðabókinni get eg getið þess, að stjórn bankans hefir alt af bókað það, sem henni hefir þótt nauðsynlegt, t. d. ef lánum hefir verið lofað eða ákveðið að heimta inn hjá mönnum, gjöra fjárnám og því um líkt, þó þetta að vísu hafi ekki alt af verið bókað í sömu bókina. Viðvíkjandi þessu 35,000 kr. láni, sem talað hefir verið um, þá er það ekki rétt, að þar hafi ekki verið nein trygging, því það var lánað gegn bæði veði í fasteign og lausafé og þar að auki ábyrgð 110 manna. Hvernig sem um þetta kann að fara, þá var það meining bankastjórnarinnar, að þetta myndi vera óhætt, og hagur margra manna hvatti til þess að fara á fremsta hlunn í því að veita þetta. — Að bankamennirnir hafi sjálfir stutt að því, að bankinn yrði fyrir aðsúg, skil eg ekki að geti verið rétt. Eg fyrir mitt leyti hefi gert alt, sem eg hefi getað, til þess að aftra því, og svo sendi bankastjórinn út þessa auglýsingu á laugardaginn, sem fer í sömu átt, nfl. að hefta aðsúg ef til hefði komið. Það fór að vísu að draga úr þessari öldu á laugardaginn, og við vildum gera það sem í okkar valdi stóð til þess að eyða henni með öllu.