03.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1074 í B-deild Alþingistíðinda. (969)
86. mál, Landsbankarannsókn
Sigurður Stefánsson:
Eg vildi leyfa mér að gera stutta athugasemd viðvíkjandi umræðunum og hinum rökstuddu dagskrám, er fram eru komnar. Hinn háttv. 5. kgk. þm. hefir tekið fram, að svo hafi nú farið, að bankanum hafi engin hætta stafað af ráðstöfun þessari. Hann sagði að hættunni hefði orðið afstýrt, bæði með ráðstöfun hæstv. ráðherra, skýrslu hans í neðri deild og símskeytum til útlanda, og afskiftum sinna flokksmanna af málinu. En hví er þá þessi fyrirspurn framkomin? Mér sýnist hún vera þarflaus með öllu; hún gerir ekkert annað en eyða tíma þingsins og fé landsins. Má vel vera, að ýmsum meirihlutamönnum hafi brugðið, er þeir fréttu um ráðstöfun þessa, en þeir hafa aldrei sagt að hún væri ólögmæt, og hygg eg að háttv. 5. kgk. þm. muni standa einn uppi með þá skoðun, að hér hafi verið framin lögleysa. Stjórnin á samkvæmt bankalögunum að hafa eftirlit með bankanum, og hún verður sjálf að ráða, á hvern hátt hún framkvæmir það. Eg vil á engan hátt gera lítið úr þeim afskiftum, sem þinginu beri að hafa af umboðsstjórninni, en hitt kann eg ekki við, að verið sé að gera mikinn hvell út af framkvæmdum stjórnarinnar, sem allir verða að telja löglegar. Eg hef ekki heyrt það, hvorki hér eða í neðri deild, að hæstv. ráherra hafi gefið nokkra átyllu til að ætla, að hann hafi séð sig um hönd, svo að alt það, sem um það er sagt, er talað út í hött.
Háttv. 5. kgk. þm. talaði mikið um að mál þetta væri gert að flokksmáli; það er einmitt hann, sem gert hefir tilraun til að gera það að flokksmáli; annars gladdi það mig, að hinn háttv. þm. sagðist vera þakklátur meiri hlutanum fyrir dagskrá hans; eg býst við að hann greiði þá atkvæði með henni. Háttv. 5. kgk. þm. sagði, að eg og ýmsir aðrir hefðu hlaupið út í borðið, til þess að koma í veg fyrir að bátnum hvolfdi með ráðherrann. Eg myndi hlaupa út í borðið, hvaða manni sem við druknun lægi, alveg eins þótt háttv. 5. kgk. þm. ætti hlut að máli. En hér getur ekki verið um neitt slíkt að ræða, því að hér er enginn að drukna. Eg býzt nú við, að hvernig sem stjórnin hagaði þessu eftirliti, því yrðu alt af vissir heiðursmenn óánægðir. Eg hefði helzt kosið, að engin dagskrá hefði komið fram út af þessu máli, en úr því háttv. 5. kgk. þm. hefir gert málið að flokksmáli, sé eg ekkert á móti því, að meiri hlutinn haldi fram sinni dagskrá.
Að lokum vil eg geta þess, út af ummælum háttv. 5. kgk. þm., að það verðum ekki vér heldur þjóðin, sem um það dæmir, hvort meiri eða minni hlutinn hafi komið betur fram í máli þessu.