03.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1082 í B-deild Alþingistíðinda. (975)
86. mál, Landsbankarannsókn
Ráðherra (B. J.):
Eg skal svara fyrirspurn háttv. þingmanns um það, hvað gerðist á þessum flokksfundi meirihlutans, sem hann talaði um, því að það er engin launung. Þar var tilrætt um það, sem hinn flokkurinn aðhafðist, og uppþotið, sem verið var að koma af stað hér í bænum. Og flokkurinn áleit nauðsynlegt að afstýra því illa, sem af þeim æsingum kynni að leiða fyrir bankann. Útaf því ráðgerði eg að gefa yfirlýsinguna í neðri deild og gera þær ráðstafanir til varúðar, sem eg gerði. Annað gerðist ekki á fundinum.
Eg held því enn fram, að eg hefi ekki séð eftir því, að eg gerði þessa ráðstöfun til að kynna mér hag bankans, og mun ekki sjá eftir því. Sú ráðstöfun var þörf og réttmæt og hlýtur að verða stofnuninni til góðs, ef alt er í góðu lagi hjá henni, sem eg vona að sé, og jafnvel þó að svo væri ekki.