08.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 383 í B-deild Alþingistíðinda. (1002)

111. mál, fjárlög 1912-1913

Björn Kristjánsson:

Það eru nokkrar leiðréttingar, og þá fyrst og fremst við ræðu háttv. þm. S.-Þing. (P. J.). Það er þá fyrst út af ummælum hans viðvíkjandi Flensborgarskólanum. Mér skildist hann vilja halda því fram, að skólinn væri svo bágborinn, að piltar, sem ekki væru sendibréfsfærir, væru útskrifaðir úr honum. Eg skal nú fyrst skýra honum frá því, að skólinn er í 3 bekkjum og að öðru leyti benda honum á, að hér á þinginu sitja 2 menn úr stjórn skólans, sem hann getur fengið nægilegar upplýsingar hjá, þar sem hann virðist vera skólanum mjög svo ókunnur. Eg get líka bent honum á það, sem hann raunar ætti að vita, að skólanum er ekki gefandi sök á því, þótt misjafn sauður sé í mörgu fé og það geti því fyrir komið, að einstaka alls óhæfur maður útskrifist úr honum eins og öðrum skólum. Hann verður að taka við öllum, sem inntöku beiðast og það er ekki svo auðvelt að meta svo hæfileika allra, að einhver heimskinginn nái ekki nægilegri aðaleinkunn til þess að sleppa út úr skólanum. Og þetta gildir um alla skóla. Háttv. þm. sagðist aðallega koma með þessa breyt.till. í því skyni, að hann vildi fyrirbyggja það, að einstaka stofnanir gætu vaðið takmarkalaust í landssjóðinn og fært sig altaf upp á skaftið. En það er als ekki tilfellið hér. Það er að eins farið fram á jafna upphæð og skólanum hefir áður verið veitt, hvorki meira né minna. Eg skal geta þess, að ef á að fara að heimta skólagjald af nemendum við þennan skóla þá lægi nær að hætta að veita nemendastyrk við aðra skóla, svo sem mentaskólann og Akureyrarskólann. Það ætti að afnema það fyrst, áður en farið er að tala um skólagjald við aðra skóla. Eg skal svo ekki fara fleirum orðum þetta mál, eg vona að deildinni sé orðið það nægilega ljóst.

Háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó.) hefir komið fram með líka breyt.till. og till. mína á þgskj. 525, í þá átt, að utanbæjarmönnum sé ekki veittur takmarkalaus réttur til þess að ganga fyrir við úthlutun námsstyrks við mentastofnanir hér. Eg benti á, að þetta ákvæði gæti verið ranglátt, því að oft gæti það komið fyrir, að fátækir utanbæjarmenn settust hér að og giftu sig og hefðu því ekki síður þörf fyrir námsstyrk en aðrir. Annars hefði eg helzt óskað, að við hefðum getað sameinað þessar till. okkar, sem báðar fara í líka átt.

Þá eru það nokkur orð viðvíkjandi orðum háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) um fjárhaginn og horfurnar núna. Honum þóttu þær nokkuð ískyggilegar og var svo svartur í skoðunum sínum, að hann vildi stryka út fjöldann allan af mestu þarfafyrirtækjum, sem þegar eru komin inn í fjárlagafrumvarpið. Þessar raddir hafa líka heyrst í Ed. og kveðið svo

ramt að þar, að menn hafa verið með grátstaf í kverkunum út af fjárhagnum, talað um hið sorglega ástand o. s. frv. og háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) kom með heilmikið yfirlit yfir allan hag landsins og býsnaðist mikið yfir útlitinu. Þetta er alt saman vegna 187 þús. kr. tekjuhalla, sem er á fjárlögunum eftir 2. umr. hér í deildinni. Þau býsn hafa menn líklega aldrei heyrt áður. Eg ætla nú að leyfa mér að benda á nokkur undanfarin þing og skýra mönnum frá, hvernig hallinn hefir verið þá eftir 2.umr., í þinglok og í árslok. Eg hef samið skýrslu um það hér á hnjánum, sem nú er verið að prenta og verður útbýtt innan lítillar stundar. Fjárhagurinn hefir verið þessi:

Árin

Halli við 2.umr. kr.

Halli í þinglok kr.

Viðlagasj. tekjueftirst. og pen.

Árin

1899

122,172

99.024

1,656,569

1898/1899

1901

80,743

132,949

1,611,795

1900/1901

1903

380,145

400,500

1,819,328

1902/1903

1905

410,239

259,439

1,821,946

1904/1905

1907

345,326

514,012*

1,627,896

1906/1907

1909

360,273

64,910

1,901,815

1908/1909

1911

187,000

*) Á því þingi var ákveðið að taka ½ milj.króna lán, sem fært var sem tekjur á fjárlögunum, og er því tekjuhallinn rétt talinn þannig, þó fjárlögin sýni að eins 14,012 kr. tekjuhalla.

Eg vil ekki ábyrgjast, að tölurnar séu allar nákvæmar, því tími var enginn til að semja þessa skýrslu, en eg hygg þó, að miklu skakki ekki, enda er þá hægt að leiðrétta það. Svona er þá fjárhagurinn núna, einar 187 þús. kr. í tekjuhalla eftir 2. umr. Er hann nú ægilegur í samanburði við það, sem hann stundum hefir verið áður! Þetta eru öll ósköpin, 187 þús. kr., og svo er mönnum mikið niðri fyrir, að þeir vilja fara að fresta bannlögunum til þess að komast hjá vandræðum. Það er vissulega engin ástæða til. Eg geri ráð fyrir, að landssjóður kæmist klakklaust út úr öllu saman, þó að engin lög yrðu samþykt til þess að auka tekjurnar. Þó vildi eg fyrir mitt leyti mæla með því, að þær verði auknar eftir því sem kostur er á. Menn hafa kvartað yfir því, að landssjóður væri svo peningalaus, þegar hann hefir um 2 milj. kr. handbært fé til að selja eða veðsetja!

Skýrsla mín nær ekki lengra en til 1909. En árin 1910—1911 litu út fyrir að verða beztu ár, svo að ekki hnignar fjárhagurinn mikið á þeim.

Þá skal eg minnast á eina till., sem nokkuð hefir verið rædd hér í deildinni og fer fram á 1200 kr. styrk til manns, eg man hvorki nafn hans eða tillögumanns, til þess að kynna sér í útlöndum verkun og flokkun á ull. Það hefir oft verið talað um þetta. Mál þetta hefir verið lagt fyrir stjórn Búnaðarfélagsins og hún hefir ekki viljað mæla með því. Eg get skýrt mönnum frá því, vegna ýmsra upplýsinga, sem eg hefi aflað mér í þessu efni, að tilraunir til þess að bæta ull og gera hana verðmeiri með annari verkun eru alveg þýðingarlausar. Ullin verður ekkert betri, þótt hún sé betur þvegin, og heldur ekki útgengilegri. Háttv. þm. S-Þing. (P. J.) skýrði alveg rétt frá þegar hann sagði, að norðlenzk prima ull kæmist aldrei yfir vist verð samanborið við verð á útlendri ull, hversu vel sem hún er vönduð. Hún getur ekki orðið eins og útlend ull og það stafar ekkert af verkun hennar, heldur af því, hvað hún er gróf í sér. Það þýðir ekkert að þvo hana, og ef á að bæta hana, gera hana fínni, þá verður að veita styrk til þess að breyta loftslaginu hér á Íslandi, því að það eru rigningarnar, sem gera það að verkum hvað ullin er gróf og togmikil. Norðlenzk ull er fínni og verðmeiri en sunnlenzk ull vegna þess að veðuráttan er þurrari á Norðurlandi. Ullin verður alls ekki bætt, nema þá í smá atriðum, eins og Kristján Jónasson benti á, svo sem með því að tæta betur í sundur flóka, því að þeir eru óhentugir að vinna fyrir vélarnar — en að öðru leyti verður hún ekki bætt. Eg hygg, að lang bezt sé að selja ullina óhreina. Þeir sem tala um að verka hana hafa tiltölulega lang minst upp úr henni.

Háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.) þótti það bæði kynlegt og skakt að láta það standa á fjárlögunum, að styrkurinn til gufuskipaferða skyldi veittur Thorefélaginu. Hann taldi þetta hættulegt, þar sem félagið mundi líklega hverfa úr sögunni á næsta fjárhagstímabili. Eg held, að ekki mundi verða hægt að áfella stjórnina, þó hún leigði önnur skip, ef félagið gæti ekki uppfylt skyldu sína. En félagið mun vera öflugt og er því engin hætta á, að það uppfylli ekki skyldur sínar. Eg vil einnig benda á, að Stóra Norræna félagið gæti einnig orðið gjaldþrota. Annars held eg að hér standi eitthvað annað á bak við en þessi fyrirsögn. Samningurinn við »Thore« er gildur og löglegur. Tók eg það fram við 2. umr., að samningurinn væri ekki einungis löglegur, heldur hefði stjórnin lagt Thorefélaginu ýmsar skyldur á herðar um fram því, sem lögin áskildu.