08.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 390 í B-deild Alþingistíðinda. (1004)

111. mál, fjárlög 1912-1913

Bjarni Jónsson:

Það er ýmislegt, er eg vildi leyfa mér að minnast á. Styrkurinn til augnlæknisins er of lágur og býst eg við, að hann fari héðan úr bænum, ef hann verður ekki hækkaður. Eg get ekki verið háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.) samdóma um það, er hann sagði um lækninn á Kleppi. Háttv. þm. talaði um að læknirinn hefði pólitíska »praxis« hér í bænum. En eg veit ekki til, að menn séu launaðir fyrir að hafa pólitískar skoðanir eða að láta þær í ljósi í blöðunum. Annars hefir læknirinn ýms aukastörf, svo sem gjaldkerastarfið og því ekki of mikið að hann fái 2700 kr. í laun. Háttv. þm. lagði á móti styrkveitingu til séra Jóh. Lynge. En hér er aðgætandi, að presturinn getur ekki fengið jörðina keypta vegna samsteypu brauðanna, og því alveg rétt að veita þennan styrk. Háttv. þm. talaði ennfremur um tillögu þá, er fram er komin um að binda námsstyrkinn skilyrðum, og er eg honum samdóma um, að þetta sé mjög ranglátt. Tillagan fer fram á að húsaleigustyrkur skuli einungis veittur utanbæjarmönnum, og skulu þeir ennfremur, hvað námsstyrkinn snertir, ganga fyrir innanbæjarmönnum. Þetta er svo ranglátt, að það nær engri átt. Hvernig mundi þetta líta út að því er lagaskólann snertir? Þar eru nú þessir nemendur: Böðvar Jónsson, Björn Pálsson, Jón Benedikts Jónsson, Ólafur Lárusson, Jónas Stephensen, Sigurður Sigurðsson, Andrés Björnsson, Jón Jónasson, Jón Ásbjörnsson Hjörtur Hjartarson, Eiríkur Einarsson, Þorsteinn Þorsteinsson og Jón Sigtryggsson. Samkvæmt tillögunni gætu þeir Sig. Sigurðsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Eiríkur Einarsson og Jón Sigtryggsson fengið húsaleigustyrk og auk þess ættu þeir að hafa forgangsrétt hvað námsstyrk snertir. En Andrés Björnsson og Jón Jónasson, sem eru bláfátækir og því miklu ver settir en hinir, gætu ekki fengið neitt. Er nokkuð réttlæti í slíku? Það er vandasamt að skera úr, hverjir eru mestir styrkþurfar. Það geta einungis kennararnir. Alþingi þekkir ekkert um það; þess vegna er það algerlega skakt af því að setja þetta ákvæði. Eg álít rétt að samþykkja tillögu háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.), sem gengur út á að orðinu »venjulega« sé bætt inn í áðurnefnda tillögu. Þetta gefur kennurunum svigrúm til þess að víkja frá reglunni; þeir hljóta að þekkja þetta betur en þingið. Eg skal t. d. geta, þess, að einn þessara lagaskólanemenda er skrifari hér við þingið; er hann bláfátækur, en þó ætti hann ekki að geta fengið styrk. Hvers eiga þeir að gjalda, sem eru bláfátækir og ekki fjölskyldumenn? Það væri þá bezt að setja það ákvæði, að styrkveitingin sé bundin því skilyrði, að þeir giftist og geti börn. Það er víst meiningin með tillögu háttv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.)

Í gær var hér talað um lýðháskólann á Hvítárbakka, kastaði háttv. 2. þm. Rang. (E. J.) í mig snuprum fyrir það, að eg er mótfallinn styrkveitingu til skólans. Skal eg ekki svara háttv. þm. Aðeins vil eg taka það fram, að eg vil ekki láta neinn lærdómshroka koma niður á skólastjóranum eins og háttv. þm. komst að orði. Eg vil benda háttv. þm. á ummæli mín um Þorgils gjallanda. Þau bera ekki vott um lærdómshroka í mér. Eg þykist ekki vanur að vera með neinn lærdómshroka. Eg er mótfallinn styrkveitingu til skólans af því, að eg álít skólastjórann alls ekki færan til þess að gegna þessu starfi. En þessi skóli gæti verið unglingaskóli og gæti þá notið sama styrks og aðrir slíkir skólar. Það er rangt að veita þessum svo kallaða lýðháskóla hærri styrk en einum unglingaskóla, og er eg því að eins mótfallinn, að hann fái hærri styrk en slíkur skóli. Það er rangt að veita hærri styrk til skóla í kaupstöðum en í sveit. Það er ennfr. öfugt hjá háttv. deild, eins og svo margt annað, að veita lækni, sem situr á útkjálka lægri laun en lækni, sem situr í góðu héraði. Það borgar sig að halda skóla í kauptúnum styrklaust, en borgar sig ekki að gera það í sveit. Eg hefi sjálfur haldið kvöldskóla hér og hafði upp úr því, þótt eg tæki mjög lágt gjald. En slíkt hefði verið ómögulegt uppi í sveit. Eg ætla ekki að þrátta neitt um það við háttv. 2. þm. Rang. (E. J.) hvort eg meti meira viðskiftaráðunautsstöðuna eða Hvítárbakkaskólann. Eg eg vil leyfa mér að minnast á, að eg hefi komið fram með till. um styrkveitingu til séra Ólafs í Hjarðarholti til þess að halda skóla, og hver getur líkt þeim saman, séra Ólafi og Sigurði Þórólfssyni? Og þótt þetta sé ef til vill kallaður háskólahroki, skal eg geta þess, að eg hefi eins mikið vit á þessu og hver annar.

Þá kem eg að 95. lið á atkv.skránni, sem fer fram á að hækka tillagið til símalagningar í Dala- og Snæfellsnessýslu. Úr því að þingið er skyldugt til að leggja fé til þessa fyrirtækis, er það ekki ósanngjarnt, að það leggi nú fram 15000 kr. Það er ranglátt, að veita sumum héruðum stórfé til símalagningar, en sumum ekkert.

Af því vér erum smáþjóð, verðum vér mjög að styðjast við aðrar þjóðir í vísindum. Er það alkunna, að vér höfum um margar aldir stundað nám í háskóla Dana. Mun námsstyrkurinn vera þess valdur, að vér höfum ekki sótt til annarra landa en þessa eina. Er það oss mikið tjón, því að allur lærdómur vor og þekking verður fremur einhliða með þessu móti, heldur en ef sumir sæktu til Svía eða Norðmanna eða Englendinga eða Þjóðverja. Nú mun að miklu verða ráðin bót á þessu, er vér fáum vorn eigin háskóla. Það má nú verða, hvenær sem vill, því að lögin höfum vér þegar fengið og er eigi annars vant, en fjárveitingar til þess að háskóli Íslands geti tekið til starfa. Ætti nú hver Íslendingur að heimta það af næsta þingi, að það veiti fé til þessa. Þegar vér höfum fengið slíka allsherjar mentastofnun innanlands, þá höfum vér þar með fengið öfluga vernd þjóðerni voru og tungu. En hitt er stórfeld hætta hvorutveggja, að mentamenn vorir sæki til háskóla erlendis, einkum þó ef þeir eru allir í sama landinu og drekka allir af sömu lindum. Má þá svo fara, að menn lítilsvirði sína eigin þjóðmenningu, og meti meira erlenda sníkjumenning, og hvar finnum vér þá stað sjálfstæði voru? Ef svo fer, eða að svo miklu leyti, sem svo hefir farið, verðum vér hræmulega undir í viðskiftum vorum við aðrar þjóðir í þessari grein. En háskóli vor mun rétta hluta vorn yfirleitt. Þó eru einkum íslenzk fræði, saga landsins, bókmentasaga þess, mál og menningarsaga, löggjafarsaga og íslenzk lögfræði sérstaklega vel til þessa fallin. Háskóli vor á að verða svo góður að þessu leyti, að hvergi sé svo gott í víðri veröld að nema þessar greinar sem hér. Raunar er sá galli hér á, sem flestum mun kunnur, að Danir og ýmsar aðrar þjóðir hafa náð tökum á handritasöfnum vorum meðan svartnætti vonleysis lá hér yfir landi og þjóð. Þá dirfðust menn eigi að hugsa svo hátt, að Ísland mundi nokkru sinni ná svo langt, sem nú er orðið, hvað þá svo langt, sem verða mun innan skamms. Gerast því beztu menn þjóðarinnar til þess að safna handritum vorum og flytja þau af landi burt, í stað þess að geyma þau hér. Af þessum rótum er það runnið, að nú hafa Danir alla nytsemd og heiður af safni Árna Magnússonar. Að réttu lagi ættum vér að fá það safn alt hingað heim, en það mun þó aldrei fást með góðu. Og þess vegna verðum vér að hitta annað ráð, því að það væri þjóð vorri meira en meðalsmán og stórtjón, ef eigin háskóli vor gæti eigi rannsakað og gefið út sín eigin ágætisrit. Sé eg því eigi annað ráð, en að við verðum að láta ljósskrá öll handritin og mundu Danir verða í því efni viðfangsgóðir. En er vér hefðum fengið þau, mundi háskólinn í Reykjavík innan skamms verða sú mentastofnun, sem ágætust væri um allan heim í þeim fræðigreinum, er eg nefndi fyr. Mundu þá streyma hingað námsmenn úr öllum löndum, þeir er nema vildu þessar greinar. Eg efast ekki um, að Íslendingar mundu skara fram úr í þeim, því að svo hefir jafnan verið hingað til. Hafa þeir jafnan gefið út og þýtt bókmentir vorar, og þótt sumstaðar séu aðrir taldir höfundar, þá hafa þeir oftast eigi gert annað en að skrifa nafn sitt á verk Íslendingsins. Þeir hafa verið og eru kennarar í þessum fræðum í ýmsum háskólum. Auk þess höfum vér nú á síðustu áratugum haft hér heima beztu fræðimennina í þessum efnum. Þarf eigi fleiri að nefna en Jón heitinn Þorkelsson skólastjóra og Björn M. Ólsen skólastjóra, en þó mætti nefna fleiri.

Hefi eg þá leitt rök að því, að vér getum látið háskóla vorn verða fyrirmynd í þessum fræðum, en eg vona, að hverjum manni sé það í augum uppi, hversu mikils verð væri sú frægð, er vér hlytum af. Því að það vita allir menn, að aðrar þjóðir þekkja oss sárlítið, og engu síður vita menn hitt, að menn eru ragir til viðskifta við bláókunna menn og þjóðir. Ef vér yrðum kunnir víðs vegar um heim fyrir vísindi, þótt ekki væri nema í einni grein, þá mundi það, þótt ólíku sé saman að jafna, greiða fyrir íslenzkum landsafurðum og sjávar. Auk þess mundu erlendir námsmenn, er hingað kæmu, flytja fé inn í landið. Og jafnvel þótt enginn yrði af því peningahagnaðurinn, þá mundi sómi og andlegur þroski ekki ofkeyptur því verði, sem nemur kostnaðinum af þeim framkvæmdum, sem nú nefndi eg.

Eg sé, að mönnum leiðist að heyra ástæður fyrir réttu máli, og hitt veit eg, að ekki nenna þeir að lesa þær, þótt þeim séu sendar þær ókeypis. Eg mun því hætta að sinni, en það mun sýna sig, þegar frá líður, hvorir hér eru vitrari og hafa fleiri og betri ástæður fyrir sínu máli.