08.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 403 í B-deild Alþingistíðinda. (1007)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Sigurður Sigurðsson:
Mig langaði til að gera örfáar athugasemdir, áður en umræðum er lokið.
Vil eg þá fyrst leyfa mér að beina máli mínu til háttv. þm. N.-Þing. (B. Sv.). Þegar eg í gær mintist á tillögu hans og fleiri þm. um styrk til manns að fara utan til þess að kynna sér ullarmarkaðinn og ferðast síðan um hér á landi til að leiðbeina í ullarverkun, þá kvað hann mig hafa fært það sem ástæðu móti þessari tillögu, að eigi væri sýnt, hvort betra væri að senda ullina út óþvegna eða hreinsaða. Þetta er nú að hafa hausavíxl á hlutunum, eða þá að þm. hefir ekki heyrt, hvað eg sagði, og þar af leiðandi misskilið mig.
Eg hélt því einmitt fram, að vegna þess hvað menn menn hér á landi væru með öllu ófróðir um ullarverkun og hvað þyrfti að gera til þess að bæta hana, þá væri nauðsynlegt að senda mann utan að kynnast ullarverkunarmálinu og fá upplýsingar um hvað muni tiltækilegast að gera til þess að bæta ullarverkunina og koma ullinni í hærra verð. Aðeins að valinn sé til þessarar farar maður, sem trúandi er til að rækja þetta starf og sem ber gott skyn á ullarverkun.
Þá sagði þm., að eg hefði talað um að það væri nóg að skrifa stjórninni um þetta mál. Það sagði eg ekki, heldur gat eg þess, að landbúnaðarnefndin hefði verið að ráðgera að búa til þingsályktunartillögu, þess efnis að skora á stjórnina að láta rannsaka þetta mál. Ætlaðist nefndin til, að þetta væri falið viðskiftaráðunautnum eða þá öðrum manni og yrði varið til þess 2000 kr. af 12000 kr., sem ætlaðar eru til viðskiftaskiftaráðunauts.
Nokkrir þm., háttv. 1. þm. Skagf. (Ó. Br.), 1. þm. N.-Múl. (J. J.) og 2. þm. Húnv. (B. S.) voru enn að ræða um styrkinn til smjörbúanna. Þeir líta svo á, að þessi styrkur sé óendanlegur. En þeir vita vel, að svo er ekki. Það er verið að lækka hann með 2000 kr. á ári. Þessi lækkun hefir nú átt sér stað undanfarin 4 ár og heldur áfram; styrkurinn er því ekki óendanlegur eins og þessir háttv. þm. halda fram. Eg tek það enn fram, að það er óréttlátt, eins og nú stendur á, að svifta elztu búin þessum styrk. Þau hafa rutt braut víðgreindri smjörgerðarvinnu innanlands, og stutt að því, að íslenzka smjörið hefir hækkað í verði og er að hækka árlega. Það væri því órétt að svifta þessi bú hinum umrædda styrk. Tillaga háttv. 1. þm. N-Múl. (J. J.) fer fram á það að veita nýjum búum gefins styrk. Þetta er alveg nýtt, og hefir ekki átt sér áður stað. Tel eg það miður rétt að ganga inn á þá braut. Hingað til hefir þeirri reglu verið fylgt að veita lán til stofnunar nýjum smjörbúum. Það tel eg miklu réttara og því á að halda áfram. Og í því skyni hefi eg komið með tillögu um það, að lánsheimild í þessu augnamiði verði tekin upp í fjárlögin, og vænti eg, að háttv. 1. þm. N.-Múl. (J. J.) greiði henni atkvæði sitt. Eg hefi ekki beint neinum ónotum til 1. þm. N.-Múl. (J. J.) í sambandi við þetta mál, eins og háttv. þm. gaf í skyn. En það lítur svo út, að hann sé undir áhrifum þess vonda, að því er afskifti hans snertir af þessu máli. Háttv. 1. þm. Skagf.
(Ó. Br.) var að vitna í nefndarálit frá þinginu 1905 til sönnunar því, að þessi umræddi styrkur til smjörbúanna ætti að falla niður eða að vera endanlegur. Það er hann einnig eins og búið er að sýna. Hér er því ekki um neina nýja uppgötvun að ræða. Það hefir ávalt verið ætlast til þess að styrkurinn væri endanlegur en ekki eilífur.
Háttv. þm. Snæf. (S. G.) talaði um það, að þing og stjórn þyrfti að hafa meiri hönd í bagga með gerðum Búnaðarfélagsins. Eg vil benda hinum h. þm. á það, að það er búnaðarþingið, sem ákveður um aðalstörf og fjárframlög félagsins; og sem kunnugt er, þá sitja Búnaðarþingið 12 fulltrúar, 4 kosnir af aðalfundi og 8 kosnir af sýslunefndum, 2 úr hverjum fjórðungi. Á meðal þeirra fulltrúa, sem nú skipa Búnaðarþingið, má t. d. nefna biskup landsins og 3 alþingismenn og hinir aðrir fulltrúar þess eru einnig valinkunnir og þektir menn. Skýrslu um gerðir félagsins og Búnaðarþingsgerðunum hefir verið útbýtt hér meðal þm., og af þessum reikningum og skýrslum sést glögt, hvernig fénu er varið. Það er því opinbert mál og óþarft að vekja tortrygni hvað það snertir. Það getur meir en verið, að eitthvað sé athugavert við fyrirkomulag þessa félags. En þegar minst er á það og verið er að finna að gerðum þess, þá er það oftast gert án þess að benda á nokkuð sérstakt. Sem kunnugur get eg bent á það, að stjórn félagsins fer mjög varlega í allar fjárveitingar. Hinsvegar hefir mér virst, að Búnaðarþingið sé þar miklu djarftækara.
Sem dæmi skal eg við þetta tækifæri benda á eitt stórt atriði í þessu efni, og það er samþykt síðasta Búnaðarþings um að veita styrk til þess að flytja inn fé frá Englandi til framleiðslu kynblöndunarfjár hér. Tilgangurinn er að flytja hingað enska hrúta til þess að framleiða dilka til sölu og slátrunar. En hér er verið að ganga inn á braut, sem að mínu áliti er afarvarhugaverð og jafnvel hættuleg. En það er Búnaðarþingið, sem þessu ræður, en ekki Búnaðarfélagsstjórnin. Það er Búnaðarþingið, sem markar þá fjárhagsbraut, sem félagsstjórninni er síðar ætlað að fylgja í gerðum sínum.
Viðvíkjandi búnaðarnámsskeiðinu í Stykkishólmi skal eg upplýsa hinn h. þm. um það, að það er hr. Einar Helgason, sem fer þangað og verður þar aðalmaðurinn. Svo verður sendur með honum annar búfróður maður. Auk þess heldur hr. Guðmundur Hjaltason þar alþýðufyrirlestra í sambandi við námsskeiðið.
Þá vildi eg að eins minnast á Bjargtangavitann. Hann komst inn á fjárlagafrv. við 2. umr. hér í deildinni. Nú hefir fjárlaganefndin fengið bréf frá verkfræðing Krabbe, og leggur hann á móti því, að þessi viti sé reistur í bráð. Hann upplýsir það, að meira liggi á að fá ýmsa aðra vita og hann kveðst ekki hafa rannsakað eða gert áætlun um, hvað þessi viti á Bjargtöngum muni kosta. Eg mun því greiða atkvæði með tillögu háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) um að fella niður fjárveiting til að byggja þennan vita.
Eg vil einnig í þessu sambandi taka það fram, að það er mjög óviturlegt, að eg ekki segi blátt áfram ósæmilegt, að vera að samþykkja fjárveitingar hér á þinginu til fyrirtækja, sem ekki er búið að rannsaka og menn hafa enga hugmynd um, hvað kosta muni. Það er í mesta máta óhyggilegt og löggjafarþingi okkar ósamboðið.