08.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 433 í B-deild Alþingistíðinda. (1013)

111. mál, fjárlög 1912-1913

Einar Jónsson:

Mér hefir komið það mjög á óvart, hverjum mótmælum ein till. hefir mætt hér. Það er till. um styrk handa manni til þess að ferðast til útlanda og kynna sér ullarverkun. Menn hafa haft það á móti henni, að hún færi ekki fram á nógu háa fjárveitingu, en þess konar álít eg fremur meðmæli en mótmæli með hverri fjárbeiðni, sem fram kemur á þingi. Einnig er hins að gæta, að einatt hefir á fyrri árum átt sér stað, að stjórnin hefir veitt meira fé til nauðsynlegra fyrirtækja, en sett hefir verið á fjárlög og fengið samþykki þingsins umyrðalaust eftir á. Og vænti eg þess, að undirbúningur þessa þarfa máls strandi eigi á fjárskorti, þó eigi sé farið frekar í sakir en þetta í fyrstu. Skal eg, sem einn flutnm. till. játa, að í fyrstu hafði eg eigi athugað, að maður þessi yrði að sjálfsögðu að ferðast til Ameríku, en sé nú, að það muni afar nauðsynlegt, enda þó í ýmsum öðrum löndum sé mögulegt að koma út vandaðri ull. Að því athuguðu, treysti eg stjórninni til að vera eigi um of spör á fé til eflingar þessu máli. Eg vil nú lítið eitt minnast á hið helzta, sem um hana hefir verið sagt. Háttv. 2. þm. Árn. (S. S.) var henni hlyntur í dag, en vildi binda fjárveitinguna við nafn einhvers tiltekins manns. En með því væri tekið fram fyrir hendur stjórnarinnar. Annars hefir till. fengið fremur góðar undirtektir, er eg lýsi gleði minni yfir. Háttv. 1. þm. G.-K. (B. K.) hefir tekið einna verst í málið; hann hélt því fram, að allar tilraunir í þessa átt mundu reynast þýðingarlausar. En þær tilraunir, sem gerðar hafa verið hér á landi, hafa þó verið til bóta, þótt ófullkomnar hafi verið. Hann vildi kenna loftslaginu um það, hvað bágborin vara íslenzka ullin væri, en allir vita, að ekki er ýkjamikill munur á loftslaginu á Norðurlandi og Suðurlandi, og hefir þó norðlenzk ull komist í álit, einmitt vegna þess, hvað vel hún hefir verið verkuð. — Eg hefi heyrt minst á, að þetta heyrði undir starfsvið viðskiftaráðunautsins, en hann hefir svo margt annað að sýsla, að mér finst ómögulegt, að hann geti líka komist

yfir þetta. Eg vona að enginn, sem íhugar málið rækilega, geti greitt atkvæði móti till. og sérstaklega er það skylda þeirra þm., sem eru úr ullarhéruðum, að veita henni fylgi sitt.

Loks vil eg minnast örfáum orðum á það, sem háttv. framsm. sagði um fjárveitingarnar til Rangárvallasýslu. Það er satt, að Rangárvallasýsla hefir fengið miklar fjárveitingar nú, en það var óumflýjanlegt vegna þess, hvað hún var höfð útundan á síðasta þingi; því er vel farið, að nokkuð hefir verið bætt úr því nú. Eg vona, að háttv. þm. athugi, að þörf er á þessari fjárveitingu. En eg skal hins vegar taka það fram, að eg mun ekki fara út í neina stífni eða stælur út af henni og mun eg auðvitað sætta mig við ef henni skyldi, mót von minni verða synjað.