04.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í B-deild Alþingistíðinda. (1021)

111. mál, fjárlög 1912-1913

Björn Kristjánsson:

Það eru fáeinar breyt.till., sem eg vil minnast á. Eg hefi leyft mér að koma fram með breyt.till. á þgskj. 864, um Keflavíkurveginn. Hann var látinn standa hér í deildinni eins og stjórnin lagði til, en háttv. Ed. hefir fært hann niður. Það mundi koma sér mjög bagalega, ef ekki væri lokið við hann. Eg hefi leitað upplýsinga um, hvort 5000 kr. mundu nægja til þess. Eg hefi fengið það svar, að það mundi ekki nægja, heldur yrði þá kafli eftir og myndi það koma sér mjög bagalega fyrir alla þá, sem veginn eiga að nota. Eg vil því skjóta því til háttv. deildarmanna, hvort ekki væri praktískara að klára veginn og verja til þess 7500 kr. hvort árið Eg legg þetta á vald hinnar háttv. deildar, en að eins ætla eg að bæta því við, að eg fékk bréf frá þeim þar syðra um þetta efni, og með leyfi hins háttv, forseta ætla eg að lesa upp kafla úr því. Þar stendur.

»Það getur vel verið, að þessi vegur sé dýr yfir höfuð, en þá er til þess að svara, að óvíða er við aðra eins örðugleika að stríða um ýmislegt eins og þar, bæði ofaníburður, sprengingar, hagleysi og vatnsleysi, og svo vil eg þess geta, að mér vitanlega er enn ekki farið að leggja hér á landi veg, sem er yfir 20 kílometra eingöngu úr grjóti, og púkklagðan«.

Það hefir mjög verið vandað til þessa vegar, og því er hann orðinn svo dýr. Sýslubúar hafa ekki kastað til þessa höndunum, og sýslan sjálf er búin að kosta til hans 42,194 kr. Skal eg svo ekki fjölyrða meira um það mál. Svo er önnur tillaga fjárlaganefndarinnar, nefnilega sú að láta styrk til bryggjugerðar í Hafnarfirði falla niður. Nefndin játar sjálf, að þetta er nauðsynjamál en kennir um hinum bága fjárhag. Mér þykir það hart, þegar er ekki um stærri upphæð að ræða, að klípa þetta af, og þar sem það er ekki nema ¼ hluti þess, sem fyrirtækið kostar. Vona eg því að þessi fjárstyrkur fái að fljóta með.

Þá er fjárstyrkur til Guðjóns Samúelssonar, sem um 3 ár hefir stundað nám á listaháskólanum danska. Faðir hans er mjög myndarlegur maður og hefir hann klofið þrítugan hamarinn til þess að koma þessum syni sínum áfram. Námið er dýrt, 1400 kr. á ári. Það væri slæmt, ef hann gæti ekki fengið próf, og höfum við, flutningsm., því farið fram á ofurlitla upphæð, 800 kr. annað árið honum til styrktar. Væri rétt að veita þetta, enda höfum við fulla þörf á slíkum manni.

Á þgskj. 914 er farið fram á styrk til handa Pétri Árna Jónssyni til þess að læra að syngja. Vil eg mæla sem bezt fram með því, enda hefir hann hin beztu meðmæli frá kennurum sínum. Hann á einungis fátæka að, en rödd hefir hann svo góða, að hann gæti án efa orðið frægur maður, ef honum væri sýndur sómi. Mun háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) skýra nánar frá þessum manni.

Að vísu er það svo, að landssjóður ætti ekki að veita lán, það ættu bankarnir að gera. En nú er því svo varið, að það er ekki auðvelt fyrir einstaka menn að fá þar lán. Það eiga sýslunefndir hægra með, og er því minni ástæða til að veita þeim lán úr landssjóði. En til hvers eru þeim veitt lán ? Sumpart til þæginda, t. d. til raflýsingar á Seyðisfirði, sem að öllum líkindum verður til aukins kostnaðar. Menn verða að taka tillit til þess í hvaða skyni lánin eru veitt og hvernig aðstaða lántakenda er, að því er lán hjá bönkunum snertir. Sérstaklega hvað lánið til niðursuðuverksmiðjunnar á Ísafirði snertir, þá vil eg geta þess, að það er eitt af hinum arðsömustu fyrirtækjum, sem hér hafa verið stofnuð, en það hefir fengið svo marga barnasjúkdóma, að maðurinn, sem á verksmiðjuna, hefir í byrjun orðið fyrir stórtjóni. Hann gat ekki dreift tapinu á marga menn, hann hefir orðið að bera það einn. Þessir sjúkdómar eru stundum sjálfskaparvíti, en í þessu tilfelli er því ekki til að dreifa, því að maðurinn átti mjög ilt aðgöngu að fá að læra niðursuðuaðferðina. Hann sendi konu sína til Noregs í því skyni, og komst hún um hríð að á niðursuðuverksmiðju þar. En svo var uppgötvað í hvaða skyni hún var þar og þá var henni vísað burt. Sömu tilraun gerði hann sjálfur, en árangurslítið. Þau gátu því hvergi lært og urðu að prófa sig áfram sjálf. Þau fengu »fag«-menn sér til aðstoðar frá Noregi, einn sem hafði verið 14 ár við niðursuðuverksmiðju, en þá kom það upp úr kafinu, að þeir kunnu lítið til starfa, svo að þau hjón biðu tjón við það. En nú kunna þau verkið til fullnustu eftir dýrkeypta reynslu, og verksmiðjan er svo viðurkend í útlöndum, að hún getur ekki fullnægt helmingnum af þeim pöntunum, sem henni berast. Það er því alveg nauðsynlegt, að landssjóður hlaupi undir bagga með henni, einkum vegna þess hve góð skilyrði slík verksmiðja hefir til þess að þrífast vel, þar sem fiskur er orðinn svo ódýr vegna botnvörpuveiðanna. Það væri hægt að setja upp fleiri verksmiðjur og fá þekkinguna hjá þessum hjónum. Eg vil því vona, að þessi liður verði ekki strykaður út, og tillagan um að stryka út alla liði 22. gr. sé feld. Frá Noregi eru fluttar út árlega niðursoðnar vörur sem nema 15 milj. kr., og við höfum full skilyrði til þess að geta flutt eins mikið út. Það er því full ástæða fyrir landssjóð að styrkja þetta fyrirtæki, einkum þar sem eigandinn á ekki nægan aðgang að bönkunum.

Hvað snertir brtill. háttv. þm. Snæf. (S. G.) um hækkun á fjárveitingu til eftirlits með botnvörpungum, þá get eg skírskotað til fyrri orða minna um það. Eg álít fjárveitinguna bráðnauðsynlega, því að það er engum vafa bundið, að sumar af beztu veiðistöðvunum leggjast bráðum í eyði, ef ekki er haft betra eftirlit með botnvörpungum þar um slóðir en nú er. Annars skal eg ekki í þetta sinn þreyta háttv. deild með lengri ræðu.