04.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í B-deild Alþingistíðinda. (1028)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Hálfdán Guðjónsson:
Eg skal ekki halda langa ræðu, enda munu nú fjárlögin vera komin á það stig, að atkvæðin hafa meira gildi en langar tölur.
Eg á hér tvær breyt.till, sem snerta áhugamál míns kjördæmis og hefi eg gert grein fyrir því áður, svo það er ekki nauðsyn á að endurtaka það
En viðvíkjandi klæðaverksmiðjunum tveimur, sem nú á að fara að styrkja með 12000 kr. — þ. e. 6000 kr. handa hvorri — vildi eg segja nokkur orð. Við fyrri meðferð fjárlaganna hér komst það inn að gefa klæðaverksmiðjunni á Akureyri upp 6000 kr. vaxtagreiðslu. Eg var á móti því þá. Og eg er sama sinnis enn. Annars virðist þetta vera skaðleg braut, sem við hér erum komnir inn á að veita fjárstyrk til þannig lagaðra fyrirtækja. Ef fyrirtækið er skynsamlega stofnað, þá á það að geta borið sig. En þessum verksmiðjum hafa verið veitt hentug lán og þær hafa nóg að starfa og þó geta þær ekki borið sig. Eitthvað hlýtur því að vera bogið eða athugavert við fyrirkomulag þeirra eða rekstur, svo að þær eru naumast verðlauna verðar. Það fer ekki mikið fyrir Akureyrarverksmiðjunni og styrknum til hennar. Hún er í tekjuliðnum í 4. gr. fjárlaganna. Eg bjóst við að einhver mundi minnast á þetta, þegar fjárlögin voru hér til umræðu áður, en það varð ekki. Eg talaði ekki á móti því þá, en greiddi atkvæði á móti. Mig grunaði þá, að þessar 6000 kr. til Akureyrarverksmiðjunnar mundu fæða af sér aðra upphæð til verksmiðjunnar hér, Iðunnar, og það brást ekki. Nú eru komnar inn 6000 kr. til hennar líka. Þær komu í efri deild. En það er fullkomlega réttmætt að fella burtu báðar þessar upphæðir, eins og breyt.till. mín fer fram á. Ef fjárhagurinn væri glæsilegur, þá mætti ef til vill fremur verja það að samþykkja þessar styrkveitingar. En þegar fjárþröngin er eins mikil og hún er nú og allur viðlagasjóðurinn er bundinn, þá veit eg ekki hvar á að taka féð. Auk þess má búast við, að hver styrkbeiðnin í líka átt reki aðra, ef gengið er inn á þessa braut. Og það tel eg sérstaklega varasamt.