05.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 497 í B-deild Alþingistíðinda. (1036)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Þorleifur Jónsson:
Eg á hér breyt.till. á þgskj. 868 um það, að veitt sé til þjóðvega í Austur-Skaftafellssýslu 2500 kr. hvort árið. Þetta fé var veitt við 2. umr. hér í deildinni og hefir haldist alla leið til Ed., en hún hefir strykað það út. Um fjárveitingar til þessa héraðs má segja, að þar var ekki af miklu að taka, en nú hefir þó verið tekið mest af því sem til var, því að ekki var ætlað annað til samgöngubóta þar en þetta. Eg hafði áður bent á það, að þetta fé var aðallega ætlað til akvegar, sem verið er að gera þessi árin, en er stutt kominn, svo að hann verður ekki að notum, eins og er, því að þar sem hann endar taka við torfærur, svo að allan farangur verður að leggja upp á hesta, og er þetta óþægilegt, og þörf á að ráða bót á því. Og ekki ímynda eg mér, að þetta baki fjárhag landsins tjón svo að neitt muni um það, hvað tekjuhallann snertir. Eg er nærri hissa á því, að háttv. Ed. skuli vilja synja um þessa litlu fjárveitingu, þar sem flest önnur héröð fá meira eða minna til samgöngubóta, skóla, brúa o. fl., sem þetta hérað fer á mis við, en eg ímynda mér, að það komi af því, að henni hafi ekki verið það nógu kunnugt, hve mikil þörf er á þessu. Skal eg svo ekki tefja deildina lengur, en vona að hún samþykki þessa litlu upphæð, eins og áður.