04.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í B-deild Alþingistíðinda. (1039)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Ráðherrann (Kr. J.). Eg hélt að eg mundi ekki þurfa að tala hér að þessu sinni, en þó er eitt lítið atriði í málinu, sem eg finn mig knúðan til að fara nokkrum orðum um. Háttvirt fjárlaganefnd hefir lagt til, að styrkur til bryggjugerðar í Krossvík á Akranesi falli burt. Eg fékk í vetur áskorun frá hreppsnefndinni í Ytri-Akraneshreppi um að útvega styrk til bryggjuaðgerðarinnar hjá þinginu, en hún kom svo seint, að eg fékk ekki tíma til að koma henni á framfæri í neðri deild, þegar fjárlögin voru hér fyrst til meðferðar. Fékk eg þá fjárlaganefndina í Ed. til að taka málið til meðferðar, en eigi tók hún þó tillöguna upp. En Ed. samþykti síðan tillögu frá mér um að veita 1000 kr. til bryggjuaðgerðarinnar. Eg skal geta þess, að í Krossvík er eina lendingin á Akranesi, þar sem kauptúnið er, sem nú er orðið mjög mannmargt, um 800 manns. Bryggjan var gerð 1907, og kostaði fullar 7000 kr. Lagði landssjóður til 2000 kr. sýslusjóður 700 kr. og hreppssjóður Ytri-Akraneshrepps það sem á vantaði, eitthvað yfir 4000 kr. Hreppssjóður gat ekki lagt alt þetta fé fram af sjóði sínum, og varð því að taka 1700 kr. lán. Bryggjan skemdist af sjávargangi í haust eða vetur. Var gerð rannsókn á skemdunum af Krabbe verkfræðing, og kostar aðgerðin minst 1000 kr. að hans áliti. Skjöl, er skýra þetta mál alt nákvæmlega, hafa verið lögð fram á lestrarsal þingsins, þar á meðal skoðunar- og álitsgerð Krabbe. Hreppurinn er í miklum skuldum áður, er stafa af kostnaðarsömum byggingum, skólahúsi og kirkju, og engar eignir á hreppurinn; sveitarfélagið getur vissulega eigi talist auðugt. Fyrir því vil eg leggja til, að landssjóður veiti þessar 1000 kr., sem um hefir verið beðið til þess að gera bryggjuna upp. Þetta er aðallending á Akranesi og er því til mikils gagns fyrir alla hreppana fyrir neðan Skarðsheiði, og auk þess er hún notuð af póstbátnum, sem gengur héðan til Borgarness. Er hún að því leyti til almenningsnota og til gagnsemdar fyrir landstjórnina. Mér virðist því öll sanngirni mæla með þessu fjárframlagi, og skal jafnframt benda á það, að þessu kjördæmi eru ekki ætluð nein fjárframlög af nokkuru tagi í þessum fjárlögum, því að Borgarfjarðarbrautin liggur í Mýrasýslu vestan Hvítár. Mér kom það því að öllu á óvart, að háttv. fjárlaganefnd skyldi leggja til að fella burtu þessa litlu fjárveiting, sem samþykt var með öllum atkv. í Ed. Óska eg að þessi háttv. deild verði ekki á móti fjárveitingunni, og að hún samþykki ekki till fjárlaganefndarinnar í þessu atriði.