15.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í B-deild Alþingistíðinda. (1057)

87. mál, fjáraukalög 1910 og 1911

Bjarni Jónsson:

Eg vil leyfa mér að leggja til, að tillaga nefndarinnar um heilsuhælið á Vífilsstöðum verði feld. Eg get alls ekki orðið henni sammála. Nefndin segir, að áætlunin sé ekki bygð á neinni reynslu. En þetta getur ekki verið rétt, því að það er kunnugt, að maður sá, er gert hefir áætlunina, hefir fulla reynslu í þessu. Nefndin hefir lagt til, að gjald hvers sjúklings væri hækkað um 50 aura á dag, en þetta er alveg öfugt, gjaldið ætti að lækka um 50 aura á dag. Sjúklingum verður nægilega bumbult af því að greiða 1 kr. eða 1 kr. 50 aura á dag, þótt ekki sé verið að hækka það. Það er vel varið peningum að hjálpa sjúklingum. Eg legg það til, að landið geri miklu meira fyrir heilsuhælið, t. d. það, að veita ókeypis veru handa nokkrum sjúklingum.

Eg skal þá víkja að breytingu þeirri, er nefndin hefir gert á hraðskeytasambandinu. Nefndin leggur til, að stjórninni sé falið á hendur að velja um, hvort hún vilji heldur loftskeytasamband eða þráðskeytasamband. En þetta er ekki rétt. Stjórnin getur ekki breytt vali sínu, ef menn eru óánægðir með það. Eg skal lýsa því yfir, að eg álít rétt að hafa loftskeytasamband. Það hlýtur að verða ódýrara að hafa loftskeytasamband en þráðskeytasamband. Hvað Vestmannaeyjasímann snertir, mundi verðmunurinn á honum og loftskeytasambandi ekki vera mjög mikill. En eg skal hins vegar taka það fram, að tekjur landssjóðs mundu verða meiri, ef við kæmum á loftskeytasambandi. Ástæðan fyrir því er sú, að skip þau, t. d. flutningaskip, botnvörpungar o. fl., er sigla hér með ströndum fram, mundu nálega daglega senda vinum og frændum skeyti. Þó mundu sérstaklega fólksflutningaskip nota þessi loftskeyti. Eg skal í sambandi við þetta geta þess, að Thorefélagið hefir þegar tekið að gera ráðstafanir til að skip þess geti notað loftskeytasamband, þá er loftskeytastöðvar komast hér á. Við þetta mundu tekjur landssjóðs aukast. Eg þykist vita, að fjölda margir farþegar á fólksflutningaskipum mundu að minsta kosti senda skeyti hingað frá Vestmannaeyjum. Eg tel það einnig stóran kost, ef fólksflutningaskip yrðu löglega skylduð til þess að hafa loftskeytatæki, því að þá mundi landið hafa þeim mun meiri ágóða af loftskeytastöðvunum. Það er ekki hægt að meta það til peninga, að hægt yrði að ná í björgunarskip með loftskeyti, þegar menn eru í sjávarháska. Bandaríkin hafa með lögum skyldað fólksflutningaskip að hafa loftskeytatæki og slíkt er einnig á döfinni í Englandi. Eg á enn óminst á eitt atriði og það er það, að Skaftafellssýslur mundu njóta góðs af því, ef loftskeytasamband yrði sett á stofn milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Þá væri hægt að setja loftskeytastöðvar í Skaftafellssýslum og mundu þær þannig geta komist í samband við landssímann og með því í samband við útlönd. Þetta mundi verða sparnaður, því að hér við bætist einnig að það mundi verða lítt mögulegt að leggja þráðskeytasamband um Skaftafellssýslur. Þar mundu ekki við þurfa margar loftskeytastöðvar. Það væri nægilegt að hafa stöð í Vík, Kirkjubæjarklaustri og í Hornafirði og mundi hver stöð ekki kosta meira en um 7000 kr. Þetta yrði ódýrara en þráðskeytasamband. Það hefir verið talað um að setja á stofn loftskeytasamband milli Englands og Ameríku með stöð á Íslandi og Grænlandi. Mundum við geta haft tekjur af þessum stöðvum okkar, er þetta kæmist í kring. — öryggi loftskeytanna þarf ekki að efa, því að það er fullreynt, að hægt er að senda slík skeyti milli Englands og Ameríku. Það er ekki nein gild ástæða á móti loftskeytasambandi, að Vestmannaeyjar mundu þá fara varhluta af talsímasambandi. Þær gætu hvort eð er ekki haft full not af þráðskeytasambandinu við landssímann.

Eg skal ekki fara mörgum orðum um aðrar tillögur þær, er fram hafa komið, en mun sýna það með atkvæði mínu, hverjum þeirra eg er hlyntur. Eg vil að eins geta þess, að eg álít rétt að samþykkja tillögu þá um fjárveitingu til rannsóknar á höfninni í Vestmannaeyjum, er fram hefir komið frá háttv. þm. Vestm. (J. M.). Það er mjög áríðandi að hafa eina góða höfn á Suðurlandi og það sérstaklega ef Frakkar byrjuðu á að gera höfn í Þorlákshöfn.

Svo skal eg ekki minnast á aðrar breytingartillögur, nema eina, sem eg á sjálfur á þingskjali 178, fjárveitingin til þess að háskólinn geti tekið til starfa þegar á þessu ári. Eg veit eg þarf ekki að brýna það fyrir hinum háttv. þm., hversu mikill sómi það mundi vera oss Íslendingum um allan hinn mentaða heim, og hversu þarflegt og gagnlegt það sömuleiðis mundi vera okkur, ef við ættum hér okkar eigin háskóla. Eg tala ekki um, hversu mikil hjálp og hversu mikill stuðningur það mundi vera íslenzku sjálfstæði, þegar við erum að berjast fyrir því, að fá aðra til þess að viðurkenna hinar réttmætu kröfur okkar til fullkomins sjálfstæðis. Ekkert er betur fallið, til þess að gera öðrum þjóðum ljóst og fullvissa þær um, að við séum sérstök þjóð, heldur en háskóli. Þá munu menn í öðrum löndum verða þess vísari, að hér er þjóð, sem hefir fullkominn tilverurétt og fullan rétt til þess að gera alt það, sem hún óskar sér. Það helzta, sem aðrar þjóðir vita um okkur nú er, að við erum í félagi, sem heitir Atlantshafseyjafélagið, sem við köllum Skrælingjafélag —. En allir vita, að í Grænlandi búa Eskimóar, og þeir vita líka, að Grænland er í Atlantshafseyjafélaginu, og einmitt þetta hugmyndasamband kemur því til leiðar, að menn halda að hér búi Eskimóar. Þessu hefir líka verið barið inn í þjóðirnar öldum saman, að hér byggju ekki aðrir en skrælingjar, af því skrælingjar búi í Grænlandi. Þegar háskólinn er kominn á stofn, munum við losna úr Atlantshafseyjafélaginu.

Eg veit, að þeir, sem unna Íslandi, munu ekki gleyma því, hver stefnuskrá þeirra er. En ef þeir fella tillögu mína, þá berjast þeir móti sinni eigin stefnuskrá.

Nú á þessu ári, 17. júní, er 100 ára afmælisdagur Jóns Sigurðssonar. Það var hann, sem fyrstur barðist fyrir stofnun háskóla hér á landi. Hann var allra manna bezt að sér í íslenzkum fræðum og þess vegna væri það vel til fallið, að við héldum hina fyrstu háskólahátíð á 100 ára afmæli hans, hér í þessum sal. Hér ætti þessi sundurlynda þjóð að koma fram á 100 ára afmæli hans sem einn maður, og sýna honum þann heiður, sem við aldrei mundum sýna nokkrum lifandi manni slíkan. Íslenzka þjóðin, sem svo oft hefir verið hrakyrt fyrir sundurlyndi og fátækt, ætti þá að sýna, að hún er einhuga um að heiðra minningu þessa manns.

Það er líka kominn tími til þess að sýna, að lögin um stofnun háskóla hér á landi séu meira en dauður bókstafur. Kostnaðaraukinn er mjög lítill við að stofna háskóla. Það er ekki annað en auka laun þeirra, sem kenna nú, og svo bæta við nokkrum kennurum. Allur kostnaður yrði 7400 kr. Það er ekki svo mikið, að það sé ekki vinnandi vegur. En þá munu menn segja, að háskólinn sé húsnæðislaus. Það fór illa, að felt var hér í deildinni frumv. um flutning þingtímans. En það er ekki frágangssök að hafa háskóla hér í þinghúsinu, þótt um þingtímann sé, en það hefði verið miklu hægra, hefði þing verið haldið á þeim tíma, sem háskólinn starfar ekki. Hér uppi á lofti eru mörg herbergi, þar sem landsskjalasafnið var áður, og sömuleiðis eru mörg herbergi niðri, og það mundi ekki kosta nema 2—3 hundruð kr. að breyta þeim þannig, að við mætti una. En til þess að vera alveg viss um, að þing og háskóli komi ekki í bága hvað við annað er ekki annað en setja í nýju stjórnarskrána, að þing skuli koma saman 1. júlí. Eg fæ ekki skilið, að það sé hægt að færa fram neina skynsamlega ástæðu gegn þessari fjárveitingu. Eg get ekki stilt mig um að minnast á, að því hefir verið skrökvað, að við ætluðum ekki að veita fé til háskóla og setja hann á stofn, meðan andstæðingar okkar sætu við stýrið. Við ætluðum að fresta málinu, þangað til sá flokkur, sem eg heyri til kæmist til valda, til þess hann gæti veitt flokksmönnum embættin. Þetta er getsök um alveg ótilhlýðilega og dæmalausa »corruption«. Því þó eg ætti það alveg víst að verða prófessor eftir eitt ár, ef beðið væri með fjárveitinguna, þá mundi eg ekki vera með til þess að fresta háskólastofnuninni. Getsakir og dylgjur eins og þessar eru alveg ótilhlýðilegar. Þegar margir flokkar eru á þingi, eiga þeir að kosta kapps um, hver getur gert mest og bezt gagn. Og þessir 2 eða 3 flokkar, sem nú eru hér á þingi, munu sjá um, að enginn skerist úr leik og verði móti fjárveitingu þessari. Og eg sezt niður í þeirri von, að allir greiði atkvæði með þessari fjárveitingu. Það væri þeim öllum til sóma.