23.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (1076)

87. mál, fjáraukalög 1910 og 1911

Björn Jónsson:

Mér datt í hug, þegar eg sá breytingartillögu um að færa niður eftirlaun frú Þóru Melsteð, að eitthvað meira en lítið mætti hann vera bágborinn fjárhagurinn, ef brýna nauðsyn bæri til að fara svona með þessa stórmerkilegu konu, sem vafalaust er hin langmerkasta kona, sem lifað hefir í þessu landi, síðan alþingi hið nýja tók til starfa. Þessi kona, sem með kostgæfni og samvizkusemi hefir um 40 ára skeið unnið meira og betra verk í þarfir þjóðfélags vors, en nokkur önnur kona á þessu landi; með hana á nú að fara svo, að hún komist því nær á vonarvöl í ellinni — mjög hárri elli — því að hún er nú komin fast að níræðu. Mér getur ekki annað en flogið það í hug í þessu sambandi, hversu undarlegt það virðist, að sama löggjafarþingið, sem í hitteðfyrra veitti einum heiðursmanni, ónefndum þó, sem að vísu hafði verið framkvæmdarmaður, en einatt haft há laun fyrir starfa sinn og átti enga kröfu til eftirlauna, þetta sama þing veitir honum þá 4000 kr. eftirlaun, og án þess eg lasti það í minsta máta, þá finst mér hitt furðanlega hégómlegt, að heyra nú sömu mennina vera að yrðast um það, hvort þessari konu, sem á engan hátt er ómerkari en maðurinn, sem eg gat um, séu veittar 400 til 600 kr., og þetta gera hinir sömu menn, sem látast í orði kveðnu unna jafnrétti karla og kvenna og halda fagrar ræður um, að kvenfólk sé jafnvel gefið og karlar. Það er sýnilegt, að alt þeirra hjal um þá hluti eru tóm orð, orð, orð — — eins og skáldið sagði (Shakespeare).

Mér er það óbærileg tilhugsun, ef þetta þing gerir það fáheyrða drengskaparbragð(!) að láta þessa konu ekki fá þennan lítilfjörlega eftirlaunaauka og eg skil ekki, að nokkurt mannsbarn á landinu geti misvirt það, þó vel sé farið með þessa konu, en þúsundum manna mun gremjast, ef þinginu ferst illa og óverðuglega við hana.

Eg hafði lofað því við 2. umr. þessa máls, að gefa skýrslu um kostnað við utanför síldarmatsmannsins á Akureyri. För hans til Vesturheims stafaði af því að síldarveiðaútgerðarmenn á Akureyri höfðu farið þess á leit við matsmanninn og tjáð sig um það við stjórnina, að mjög svo æskilegt væri, ef hægt væri að senda þangað skynbæran mann til þess að komast þar í markaðssamband með síld, og til að kynna sér alla meðferð síldarinnar þar og hvernig haganlegast væri að senda hana þangað. Árangurinn af förinni hefir orðið sá, að breytt hefir verið til um verkun á síld, sem þangað hefir átt að fara, og eins hefir síðan verið tekið upp annað og rétt lag til að koma síldinni þangað. Áður hafði síldin verið send í stórum förmum í einu, en það sýndi sig nú að vera mesta óráð, því þegar hún kemur vestur verður að geyma hana í ís, þangað til hún selst, á svo og svo löngum tíma, en það hefir mikinn kostnað í för með sér. Hér er því alls eigi um fjáreyðslu að ræða, eins og sumir hafa viljað halda fram, heldur fjárframlag eftir eindregnum tilmælum viðkomandi manna til þess að efla og bæta einn af meiri háttar atvinnuvegum landsins. Og þegar þess er gætt að ferð þessi kostaði manninn, sem hana fór — enginn annar bauðst — um 2000 kr., þar af fékk hann 1300 kr. úr landsjóði, en 6—700 kr. borgaði hann sjálfur, þá má segja, að fáum krónum hefir verið betur varið, því síldin hefir selst miklu betur síðan og þar að auki er fenginn geysistór markaður, sem áður var lítt þektur. Eg vildi ekki láta undir höfuð leggjast að gefa þessa skýrslu, en hvað deildin vill gera við þetta mál, hvort hún vill lögsækja mig, eða hvað hún gerir ræður hún að sjálfsögðu.