27.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 614 í B-deild Alþingistíðinda. (1087)
87. mál, fjáraukalög 1910 og 1911
Björn Kristjánsson:
Eg vildi að eins leyfa mér að geta þess að eg á breyt.till. á þgskj. 699, sem fer fram á að ekki sé veitt fé til háskólans nema á fjárlögunum. Vona eg að háttv. deild samþykki tillöguna.