27.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 615 í B-deild Alþingistíðinda. (1088)
87. mál, fjáraukalög 1910 og 1911
Björn Sigfússon:
Eg hefi leyft mér að koma fram með breyt.till. á þgskj. 684 um að setja inn í fjáraukalögin 6000 kr. byggingarstyrk til kvennaskólans á Blönduósi. Eg þarf ekki að fjölyrða um þessa styrkveitingu, því að það hefir rækilega verið rætt um hana áður. Eg vil því að eins leyfa mér að æskja þess að hún verði samþykt. Og þótt háttv. efri deild hafi felt burtu styrkveitinguna, hygg eg eftir því sem eg hefi komist næst, að hún geri þetta ekki að kappsmáli. Vona eg því, að tillagan nái fram að ganga.