22.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í B-deild Alþingistíðinda. (1138)

143. mál, tillögur yfirskoðunarmanna landsreikninganna 1908 og 1909

Ráðherrann (Kr. J.):

Viðvíkjandi orðum háttv. framsögumanns (Ó. Br.) um 4. lið tillögunnar, skal eg taka það fram, að stjórnarráðið lítur svo á, þegar um lögfyrirskipuð gjöld er að ræða, að þá verði að greiða þessi útgjöld úr landssjóði með þeirri upphæð, sem heimtuð er eftir úrskurðuðum reikningum, og stjórnarráðið getur eigi annað en búist við því, að þetta hljóti að vera vilji alþingis. Þess vegna álít eg það algerlega óþarft, að taka slíkar umframgreiðslur inn í aukafjárlög. Þær ættu og aldrei að geta orðið sérlega verulegar. Hér verður að eins að ræða um mismuninn á milli áætlunar þingsins og hins virkilega kostnaðar. Dæmið, sem háttv. framsögumaður (Ó. Br.) kom með um ferðakostnað fiskimatsmannsins sýnir þetta ljóslega. Kostnaðurinn hefir reynst nú um 100 kr. meiri en þingið hefir áætlað hann, og það er ekki unt að líta svo á, að þingið hafi ekki ætlast til þess, að allur kostnaðurinn við ferðina væri borgaður af landsfé, vitanlega eftir réttum og sanngjörnum reikningi.

Fyrirspum háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) get eg ekki svarað öðruvísi en svo, að mér virðist það sjálfsagt, að stjórnarráðið taki form landsreiknininganna til íhugunar. Eg verð fyrir mitt leyti að álíta, að formið á þeim er ekki eins glöggt og æskilegt væri. Eg hefi í 6 ár verið endurskoðunarmaður landsreikninganna og get borið um það, að erfitt getur stundum verið að sjá af þeim hinn sanna hag landsjóðsins. Eg býst þess vegna við, að landsstjórnin muni fúslega gera það, sem tillagan fer fram á í þessu efni, ef hún verður samþykt.