24.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 685 í B-deild Alþingistíðinda. (1143)

12. mál, vantraustsyfirlýsing og ráðherraskipti

Jón Jónsson (1. þm. S.-Múl.):

Eg býst ekki við, að mér takist að segja það, sem eg ætla mér, svo vel, sem eg vildi. En eg tek til máls, til þess, einkum og aðallega, að skýra háttv. deild frá því, að flokkur sá, er eg til heyri, Heimastjórnarflokkurinn, mun gefa tillögu þeirri, sem hér er til umræðu, atkvæði, þótt hún sé fram borin af andstæðingum vorum.

Það er ekkert launungarmál, heldur vita það allir, að skoðun vor hefir verið sú frá upphafi þessa tveggja ára tímabils, sem núverandi ráðherra hefir setið að völdum, að hann væri ekki maður til að skipa þann sess viðunanlega. Vér álítum hann ekki fallinn til þessa starfa, og höfum ekki farið dult með, að vér teldum það fulla nauðsyn að hann væri leystur frá þeim starfa fyrir löngu. Vér hefðum sjálfsagt á þessu þingi gert skyldu vora og reynt að koma ráðherra frá völdum, talið oss skylt að gerast frumkvöðlar þess; en með því að andstæðingar vorir hafa orðið fyrri til, segjum vér það gott og blessað, og styðjum þá fúslega að svo þörfu verki. Vér höfum nú heyrt ástæður þær, er knúðu meiri hlutann til að koma fram með tillögu þessa, og get eg skrifað undir ýmsar þeirra, en sumar ekki; skal eg nú víkja að þessu seinna, um leið og eg vil reyna að færa rök fyrir því, hvers vegna vér Heimastjórnarmenn teljum það þjóðaróhapp að ráðherrann (B. J.) komst nokkurn tíma í það sæti. Mun eg sýna fram á, hversu hann á flestum svæðum valds síns, að eg ekki tali um, þegar hann hefir farið út yfir lögleg takmörk þess valds, hefir orðið til þess að vinna þjóð vorri ógagn og til að rýra álit vort og traust meðal annara.

Eg veit vel, að þetta eru hörð orð, en eg skal þá um leið taka það fram, að eg vil eftir mætti forðast að víta manninn sem mann. Hann er nokkuð hniginn að aldri, og naut langa stund álits og virðingar margra manna, og mun enn eiga allsterk ítök í tilfinningum ýmsra manna. En hann er lúinn af striti lífsins og þarfnast hlífðar og hvíldar. Eg vil, eins og eg sagði, ekki meiða manninn; en eg get víst ekki komist hjá að fara allhörðum orðum um ráðherrann, stjórnandann, og vænti að mér takist að sýna, að það voru hörmuleg mistök, er meiri hluti síðasta þings lyfti honum upp í valdasessinn, og að það var hinn mesti misskilningur, er hann sjálfur hugði sig færan til að gegna því starfi. Og þótt eg verði nokkuð langorður, þá geri eg mér í hugarlund, að þetta geti ef til vill sparað nokkuð af eldhúsdagsumræðunum, sem nefndar eru og því sparað tíma.

Það er varla hægt að tala um mál þetta, án þess að minnast áhrifa ráðherra á mál vor gagnvart Dönum. Flutnm. (B. Sv.) talaði um þetta, en að nokkru leyti út frá öðru sjónarmiði, og þótt eg sé honum að mörgu samdóma í þeim efnum, vil eg þó tala nokkuð um það frá mínu sjónarmiði.

Eg skal fyrst víkja að áhrifum ráðherra á sambandsmálið. Eg er á þeirri skoðun, að enginn einn maður hafi unnið meira en hann að því óhappaverki, er þjóð og þing gerði 1908 og 1909. Ráðherra tók fyrst líklega í málið, að sagt er, en það stóð ekki lengi. Það lítur út fyrir, að bæði hann og aðrir hafi séð, að hér var góður leikur á borði til þess að fella þáverandi ráðherra. Og þótt ekki sé hægt að rekja þetta útí yztu æsar hér, þá mun tíminn síðar sýna, að mótstöðumenn vorir hafa unnið hið mesta óhappaverk, þá er þeir drápu sambandsmálið. Millilandanefndin vann stjórnmálaþrekvirki í viðureigninni við Dani, sem er meir en nokkurt annað verk sama eðlis, er nokkurntíma hefir verið unnið af íslenzkum mönnum, nema ef til vill þrekvirki það er Þorgeir Ljósvetningagoði vann forðum daga, er kristni var lögtekin og friður hélst í landinu fyrir hans tilstilii og viturleik. Og eg er þess fullviss, að á sínum tíma verður þetta viðurkent og meirihluti millilandanefndarinnar fær almannalof fyrir starfið. Núverandi ráðherra (B. J.) var einn af allra áhrifamestu mótstöðumönnum sambandsmálsins, og þetta, sem hefði átt að vera nóg til að sýna, að hann var óhæfur, varð einmitt til að lyfta honum. Svo var ógæfa vor þá rík.

Háttv. flutningsm. (B. Sv.) vítti ráðherra fyrir að hafa verið því mótfallinn á þingi 1909, að sambandsmálið yrði leitt til lykta í frumvarpsformi, en vildi láta afgreiða það með rökstuddri dagskrá. Eg álít ástæðulaust fyrir háttv. flutningsm. (B. Sv.) að ávíta ráðherra fyrir þetta, því að það hefði verið miklu viturlegra að afgreiða málið með rökstuddri dagskrá, en að samþykkja það í frumvarps formi. Með því var öll samningaleið við Dani lokuð, og það var álíka óviturlegt og að brenna skip sín, áður en gengið er til orustu, þegar ósigur er vís. Aftur á móti er eg háttv. flutningsm. (B. Sv.) samdóma um það, er hann sagði um framkomu ráðherra gagnvart Dönum. Enda þótt eg telji það bæði rétt og skylt að sýna Dönum kurteisi, þá hefir þó ráðherra gert of mikið að því. Enginn vill annað en að ráðherra vor haldi uppi virðingu sinni og vorri, en ýmsar sögur hafa gengið um, að út af því hafi borið hjá honum og er slíkt ilt. Enda þótt eg af fullri sannfæringu geti sagt, að skilnaðarstefnan sé algerlega ótímabær, þá verð eg þó að telja ummæli ráðherra um hana í Danmörk mjög óhyggileg og auk þess röng. Skilnaðarhreyfingin er ekki eins lítill kraftur eins og ráðherra gerði úr henni í Danmörku, og það sannast að hún verður bráðum svo stór, að taka verður eitthvert tillit til hennar, þegar ræða er um pólitískar horfur í landinu.

Að því er snertir botnvörpungasektamálið, er eg á sömu skoðun og ráðherra um að það sé tæplega sæmilegt að gera það að kappsmáli að halda sektafénu fyrir Dönum, fyrst þeir láta sér draga að heimta það af oss. Hinsvegar verðum vér að halda uppi virðingu vorri, en framkoma ráðherra í máli þessu hefir orðið okkur til minkunar, sökum óeinlægni hans og einurðarleysis, og er rétt að víta það harðlega.

Þá verð eg að leiða athygli að því, að það er næsta óviðkunnanlegt, er ráðherra sjálfstæðisflokksins, sem þykist ætla að sækja rétt vorn og sjálfstæði í hendur Dönum, lætur sér þó, að nauðsynjalausu, sæma að skjóta málum, sem innlendir dómstólar eru alveg sammála um, til úrskurðar dómstóls í Danmörk. Sú athöfn ráðherra vakti megnan óhug víðsvegar um land, jafnvel meðal einlægra flokksmanna hans. Þetta er mér vel kunnugt um, og gæti sannað með dæmum ef þyrfti.

Eg vil geta þess, að eg er einnig sammála háttv. frummælanda í því, að það er óviðkunnanlegt og jafnvel óþolandi, að ráðherra, sem búsettur á að vera í Reykjavík, sé ? hluta ársins í Danmörku eða á ferðalagi annarsstaðar. Við munum eftir því, þegar Valtýskan var á ferðinni, að núverandi ráðherra hélt því fram, að ráðherra Íslands. skyldi vera búsettur í Khöfn — var sú stjórnmálastefna því af mörgum kölluð Hafnarstjórn, — en nú lítur svo út, sem hæstvirtur ráðherra hafi ætlað að koma þessu í framkvæmd á stjórnartíð sinni, og þess vegna dvalið í alt haust og fram á vetur suður við Eyrarsund. Af því hefir leitt, að mikið af frumvörpum þeim, sem stjórnin leggur nú fyrir þingið, er samið suður í Danmörku, frumsamin á dönsku og ekki til á íslenzku fyr en rétt fyrir þingbyrjun. Eg vil biðja menn að hugsa sér, hvað Ísafold mundi hafa sagt, þegar núverandi ráðherra var ritstjóri, ef slíkt hefði komið fyrir í stjórnartíð fyrverandi ráðherra Hannesar Hafstein. Eg man þá tíð, að Ísafold vítti H. Hafstein fyrir, að frumvörpin 1907, þegar þing hófst 1. júlí, voru ekki komin fyrir almenningssjónir fyr en í maímánuði. Þau komu samt svo snemma, að hægt var að ræða þau á þingmálafundum, það get eg borið vitni um sem var þingmaður fyrir Seyðisfjarðarkaupstað, en bjó á Norðurlandi. Eg fékk frv. þá svo snemma, að eg gat farið með þau á þingmálafund í kjördæmi mínu, áður eg færi til þings. Eg man að eg var þó ekki allskostar ánægður með, hvað frumvörpin komu seint, en sé það borið saman við það, sem nú er, sjá allir hvílíkur munur þar er á. Þótt ekki væri nema þetta framkvæmdar- og dugnaðarleysi, væri það eitt ærið til að sýna, hve óheppilegur maður situr í ráðherrasessi, en það vill nú svo til, að margt fleira og ekki betra er óupptalið.

Þessu næst vil eg minnast nokkrum orðum á afskifti hæstvirts ráðherra af ýmsum fjármálum landsins. Ekki er það þó svo að skilja, að eg ætli að fara að útlista bankamálið; það var gert allítarlega í efri deild fyrir 2 dögum, en þó verður ekki hjá því komist að snerta dálítið við því og er þá bezt að byrja á byrjuninni. Það muna óefað allir, hvílíkum óhug sló á þing og þjóð, þegar það kom í ljós 26. apríl 1909, að ráðherra hafði skipað nefnd til að rannsaka allan hag landsbankans og gerðir bankastjórnarinnar um takmarkalausan tíma. Rannsóknarnefnd þessi hafði vald til að heimta munnlegar og skriflegar skýrslur af hverjum sem hún vildi. Við skulum hugsa okkur, hvaða áhrif slík fyrirvaralaus stjórnarráðstöfun mundi hafa haft í öðrum löndum, þar sem þjóðbankar eru. Allir mundu hafa sagt, og það með réttu, að þvílík ráðstöfun hlyti að verða til niðurdreps trausti stofnunarinnar og yfirleitt alls landsins, sem þar hefði sína aðalpeningastofnun. Allsstaðar annarsstaðar en hér mundu menn hafa þyrpst til að taka fé sitt út úr stofnuninni og með því bakað henni ómetanlegt tjón. En hér á Íslandi vildi nú svo heppilega til, að slysið varð ekki eins mikið og tilverknaðurinn var vondur, og bar tvent til, sem úr því bætti. Í fyrsta lagi það, að alþing var hér saman komið og meiri hlutinn sýndi þá rögg af sér, sem hann á þakkir skilið fyrir, að hann knúði ráðherra til þess að gera þá yfirlýsingu hér á þinginu, að rannsókn þessi stafaði ekki af vantrausti eða tortrygni á bankastjórninni. Í öðru lagi var traust almennings á stofnuninni og bankastjórninni meira en traustið á þem, sem ráðstöfunina gerði, svo að hér varð ekki svo mikill skaði að. Það hefir oft verið borið fram bæði í Ísafold og seinast í efri deild í fyrra dag, að minni hlutinn hafi gert alt sitt til að vekja óróa og hræðslu, en eg verð að lýsa það tilhæfulaus ósannindi. Hvað mig snertir, þá vill svo vel til, að eg get sannað það með símskeyti, sem eg sendi um það leyti, að eg vann á móti þessari hræðslu eftir megni og gerði mitt til að koma í veg fyrir hana. En satt er það, að sumir menn — og það af báðum flokkum — urðu skelkaðir í svip og tóku út dálítið af fé. En eins og eg sagði, það var álit almennings og rótgróið traust á bankastjórninni, sem gerði það að verkum, að bankinn í þessu tilliti slapp nokkurnveginn óskemdur, þrátt fyrir þennan frámunalega klaufaskap.

Á 22. nóvember ætla eg ekki að minnast mikið, það var gert svo rækilega í Ed. í fyrra dag. En hraparlegt er það, að stjórnarblaðið Ísafold dag eftir dag og viku eftir viku, gerði alt það, sem í þess valdi stóð til þess að veikja traustið á bankanum. Það tjáir ekki að mótmæla því, allir geta sannfærst um það, með því að blaða í dálkum Ísafoldar frá þeim tíma. Það sem hér á Íslandi bjargaði bankanum, traust almennings, var ekki nóg til þess að bjarga áliti hans, og þar með alls landsins, í útlöndum. Stjórnarráðstöfunin hefir haft óútreiknanlegar afleiðingar í þá átt, að stórminka traust landsmanna, og alls, er íslenzku nafni heitir, sem sjá má ljóslega af því, að jafnvel Landmandsbanken, sem bezt þekkir landsbankann erlendis, og mest viðskifti hafði við hann haft, varð svo hræddur, að hann sendi hingað 2 menn til að rannsaka, hve mikil ástæða til ótta væri og stjórnin sá sér ekki annan kost vænni en að taka því vel og heimila þessum mönnum allan aðgang að bankanum. Dettur mönnum nú í hug, að Landmandsbanken hefði gert þetta, ef bankafarganið hefði ekki verið af stað komið? Nei! Skuld landsbankans var ekki stór um það leyti og þar að auki hafði Landmandsbanken ágæta tryggingu fyrir henni í verðbréfum; og meðal þeirra verðbréfa voru t. d. bréf fyrir 500 þús. kr., sem búið var að selja, og var sú upphæð greidd inn í Landmandsbanken um áramótin rétt á eftir.

Það þarf að sinni ekki að fara fleiri orðum um þetta, það er öllum ljóst, að afskifti stjórnarinnar af landsbankanum hafa veikt stórmikið traust hans meðal ókunnugra manna, og þessi afskifti væri útaf fyrir sig nóg til að sýna, að ráðherra á ekki að sitja lengur í embætti því, sem hann nú hefir.

En hæstvirtur ráðherra hefir haft fleiri afskifti af fjármálum, sem eg ætla að drepa á, og þá fyrst minnast á franska bankann. Saga hans hefir verið birt í blöðunum — raunar ekki sem stjórnarauglýsing — en frásögninni hefir ennþá ekki verið mótmælt, svo að óhætt mun vera að byggja á henni.

Sagan byrjar á líkum tíma og bankafarganið, og atburðirnir mætast stundum svo kynlega, að sennilegt er að þeir hafi haft áhrif hvor á annan, eins og eg skal seinna koma að. 25. febrúar 1909 eða um líkt leyti og forsetaförin var farin, barst hingað tilboð um nokkurra miljóna lán, frá Frakklandi. Ráðherra bað þá, sem um vissu, að halda þessu leyndu um hríð, eins og eðlilegt var, þar sem hann var að stíga á skipsfjöl, en skiljanlegt, að hann vildi sjálfur hafa hönd í bagga með. En þegar heim kom, er tilboðinu enn haldið leyndu. Af hverju? Því er ósvarað enn. Þegar er ráðherra var heimkominn fór hann þess á leit við þingið, að hann fengi heimild til lántöku fyrir landið. Nefnd þeirri, er um peningamálin fjallaði, sagði hann ekkert um franska tilboðið, en kvaðst aftur á móti geta fengið danskt lán, með þeim kjörum, er hann tiltók — en þinginu var ekki gefinn kostur á að bera lánstilboðin saman. Með þessu get eg ekki annað séð, en hæstv. ráðherra hafi ekki sýnt þinginu þá virðingu, er vera bar. Danska lánið var dýrt lán, miklu dýrara en það lán, sem H. Hafstein tók og slapp ekki ámælislaus fyrir hjá núv. ráðherra og hans liði. Margt er óupplýst í þessum peningamálum, sem æskilegt væri að hæstv. ráðherra gæfi upplýsingar um. Meðal annars segja sumir, að það hafi ekki verið tilviljun ein, að danska lánið fékst í sama banka og Thorefélagið hefir viðskifti sín við, því að einmitt á sama tíma og lánið kom til orða, var borin fram hér í þinginu tillagan um Thoreskipakaupin. Vera má, að þetta sé staðlaus grunsemd, en það ætti þá að vera hægðarleikur fyrir hæstv. ráðherra að slá hana niður. En hvað sem öðru líður, er það auðsætt, að ráðherra leist ekki á franskt lán vorið 1909. — En þegar á sumarið líður, taka nokkrir framtaksamir menn í Reykjavík sig saman og mynda félagsskap til þess að láta gott tækifæri ekki ganga sér úr greipum, en reyna að ná í féð, til þess að það geti komið að notum við góð fyrirtæki. Þetta var lofsvert og ekki tiltökumál, þótt þeir vildu sjálfir hafa einhvern ábata af því. Sumir af þessum mönnum voru ráðherra nákomnir og leituðu því fulltingis hjá honum, og er það ekki að lasta, þótt hann í sínu hjarta hafi viljað veita þeim einhverja aðstoð, ef fyrirtækið að öðru leyti hefir verið álitlegt. Um haustið 1909 er ráðherra orðinn ákveðinn fylgismaður þessa félagsskapar, og lofar honum fullri aðstoð, viðskiftum við landssjóðssölu bankavaxtabréfa o. s. frv. Þessi skjótu umskifti frá því um vorið, er óupplýst spursmál. Ýmislegt af þessu styðst við bréf dagsett 24. október 1909. Ráðherra heldur áfram að styðja fyririrtækið, kemur einum vina sinna, Ara Jónssyni, í stjórn, gerist sjálfur heiðursformaður fyrirtækisins, og annar vinur ráðherra, núverandi bankastjóri Björn Kristjánsson, tjáir sig fyrirtækinu hlyntan og lofar góðri samvinnu fyrir hönd landsbankans. Þetta skeður 3 vikum áður en fyrverandi bankastjórn var rekin frá, svo ekki er undarlegt, þótt mörgum kunni að detta í hug, að hér sé eitthvert samband á milli. Af hverju var tilboðið aðgengilegra um haustið en um vorið? Getur það ekki verið af því, að um haustið hafi verið litið svo á, að ekki skifti miklu, hversu færi um landsbankann. Vonandi hefir það þó ekki ráðið neinu um aðfarirnar 22. nóv. 1909. Og væntanlega hafa ekki hagsmunir einstakra manna haft áhrif á álit ráðherra á fjárútvegunum frönsku. Áframhaldið er svo það, að um sama leyti og bréfið, sem eg gat um var útgefið, sigldi franski konsúllinn til Frakklands á vit fjárins, og litlu síðar sigldi Einar Hjörleifsson suður í lönd, og alt virtist vera í bezta gengi. Landsbankinn fær ákveðið tilboð um franskt fé, og gerir um það samning 6. apríl 1910.

Snemma á árinu 1910 kemur fram annað nýtt mál, skylt þessu. Þá kemur hr. Einar Benediktsson í marzmánuði hingað til Reykjavíkur. Hann lætur þá vel yfir sér, og kveðst eiga ráð á miklu fé ensku til gagnlegra fyrirtækja og stofnana hér á landi, svo sem banka, verzlana o. s. frv. Það er fullyrt, að ráðherra og landsbankastjórnin hafi tekið þessum málaleitunum fremur fálega, enda munu þeir þá enn hafa verið hlyntir franska bankamálinu. Hitt hefi eg fyrir satt, að hæstv. ráðherra hafi lofað því, að gefa hr. Einari Benediktssyni skrifleg svör, áður hann færi héðan. Það mun þó ekki hafa efnst, og mun þó svarið hafa verið til búið. En einhverjir vinir ráðherra fengu hann til að senda ekki svarið.

Um sama leyti fer svo herra Sveinn Björnsson yfirréttarmálaflutningsmaður til Englands og kemst þá sýnilega að einhverju leyti í þjónustu enska fyrirtækisins, hr. E. B. og hans manna. Að minsta kosti er sagt svo í útgefinni skýrslu, að þegar 20. apríl 1910 hafi félagið fengið hann til þess að taka að sér málfærslustörf fyrir sig og taka þátt í stjórn bankans. Þetta varð nú að vísu alt almenningi kunnugt löngu seinna, en eg vil benda á það, að síðan hefir landstjórnin aldrei stutt franska bankafyrirtækið einu orði, heldur algerlega slegið hendinni af því, hvort sem það stendur í nokkru sambandi við hitt, að hr. Sv. B. hafði loforð um atvinnu við ensku fyrirtækin.

Hvað munu nú franskir fjármálamenn álíta um stjórn og peningastofnanir þess lands, þar sem svo er hringlað með tilboð þeirra? Nærri má geta, að aðrar eins aðfarir og þessar hljóta stórum að spilla áliti þeirra á oss. Út á við hafa þær bakað oss óvirðingu, og innanlands hafa þær vakið tálvonir hjá þeim, er væntu betri kjara, sökum þess, hve glæsilega var látið af tilboði þessu fyrst í stað. Hæstv. ráðherra hefir að vísu lýst yfir því í dönskum blöðum, að hann hefði aldrei hlynt að enska fyrirtækinu, en annað segir hr. E. B. og hans menn. Þeir fullyrða hið gagnstæða í skjölum, er eg hefi hér fyrir mér. Yfirleitt var yfirlýsing hæstv. ráðherra í þessu máli allloðin, og mun blaðið »Börsen« hafa skorað á hann að gera þar hreinna fyrir sínum dyrum og taka af öll tvímæli, en hann eigi enn gert það. Hr. E. B. og hans menn fullyrða, að þeim hafi verið lofað seðlaútgáfurétti, sparisjóðs hlunnindum o. s. frv. o. s. frv. Mér dettur nú eigi í hug að bera það fram hér, að það sé alt rétt, sem þessir menn herma gegn mótmælum hæstv. ráðherra, en eg verð að taka það fram, að mig vantar enn skýlaus orð hans fyrir því, að engu hafi verið lofað af því er hér segir.

Þá er enn að geta eins, er snertir fjármálin. Á síðasta þingi kom fram tillaga hér í deildinni, er peningamálanefndin fjallaði um, þess efnis, að landssjóður skyldi kaupa 2 milj. króna í hlutabréfum Íslandsbanka, er þá voru á boðstólum, með ákveðnum skilyrðum. Hæstv. ráðherra var þá ekki þessu mótfallinn, heldur hét því fylgi sínu áður hann færi utan. En þegar til efri deildar kom, þá er þetta felt af nánustu fylgismönnum hans. Hann mun ef til vill segja, að þetta sé ekki sitt verk, en laust trúi eg því, að hann hefði ekki getað ráðið við það mál, ef hann hefði viljað. Það verður að ætla, að eitthvað það hafi gerst, frá því er þetta kom fyrir þingið og þangað til það var felt, er hafi haft áhrif á skoðanir hæstv. ráðherra. Og eg get ekki stilt mig um það, að benda á tvo atburði, er einmitt gerðust á þessu tímabili. Annar er sá, að þá kom franska tilboðið, og hinn sá, að á þeim tíma varð fyrirrennari hæstv. ráðherra, hr. Hannes Hafstein, bankastjóri Íslandsbanka. Eg skal nú ekkert ákveðið um það segja, hvernig í þessu liggur, en víst er um það, að þessi kaup á hlutabréfum Íslandsbanka voru mörgum áhugamál og að þeim hefði vafalaust orðið mikill fjárhagslegur gróði, og þá hefði meiri hluti hlutafjárins orðið íslenzk eign og umráðin yfir bankanum þar með innlend. Þess vegna þótti mér hlýða að leggja allmikla áherzlu á þetta atriði. Þetta er eitt með öðrum dæmum þess, hvernig hæstv. ráðherra hefir brugðist sjálfstæði þessa lands, því að öllum er augljóst, hve nauðsynlegt það er, að landsmenn ráði sem mest slíkum stofnunum sjálfir.

Það er óþarfi að fjölyrða mikið meira um afskifti hæstv. ráðherra af fjármálum landsins og bankamálum. Eg þykist þegar hafa sýnt nokkuð fram á þau og áhrif þeirra. Afskiftin af landsbankanum hafa stofnað lánstraustinu í hættu út á við og rýrt álit bankans hér heima fyrir. Nú er og öll starfræksla hans miklu dýrari en áður, og þótt það kunni ekki að vera fyrir beina tilhlutun stjórnarinnar, þá hefir hún þó að minsta kosti ekki hindrað það, eins og hún hefði átt að gera. Hún hefir slegið úr og í við frönsku bankamennina og vakið með því ótrú þeirra og lítilsvirðingu á oss, og síðar meir einnig Englendinga. Yfirleitt er viðleitni stjórnarinnar á þessum sviðum engu líkari en því, ef ólækningafróður maður færi að fást við að græða sár á sjúkum manni, og viðskiftin okkar voru viðkvæm næstu árin á undan, miklar skuldir og margt að græða. Eg vil ekki efast um það, að tilgangurinn hafi oft og einatt verið góður, en viðleitnin gat ekki orðið til annars en þess, að gera ilt verra í reyndinni. Og þótt ekkert hefði verið að hæstv. ráðherra að finna annað, hvorki út á við í sjálfstæðismálinu, né í embættisfærslu hans innan lands, þá er þetta eitt nægilegt til þess, að sýna það og sanna, að hann átti aldrei með völdin að fara.

Þá hefir margt það borið við í þessari tveggja ára stjórnartíð hæstv. ráðh., sem vottar það, að stjórn hans hefir eigi ætíð verið svo einlæg og hreinskilin, sem vera ætti, og skal eg nú fara um það nokkrum orðum. Það er auðvitað, að æzti maður lands og þjóðar verður að vera afarvandur að virðingu sinni í hvívetna, og þá fyrst og fremst áreiðanlegur og einlægur í orði og verki Út af þessu hefir sorglega borið hjá hæstv. ráðherra, og er það ein aðalástæðan til þess, að eg tel það hættulegt, að hann fari með æztu völd með þjóð vorri.

Eg skal minna á eitt dæmi, sem þegar er allkunnugt hverjum flokki hugsandi manna hér heima, sem sé »botnvörpusektamálið«. Í febrúar í fyrra vetur var boðað til þingmálafunda hér í Rvík, að vísu voru þeir flestir heimastjórnarmenn, sem það gerðu, en þó ekki allir. Þm. bæjarins var boðið og menn gerðu sér vonir um að fá nú einu sinni merkilega almenna fundi hér í höfuðstaðnum. En í stað þess að koma, studdu þingmennirnir að því, að samtímis voru haldnir aðrir fundir með flokksmönnum þeirra einum saman, og var þá ekki að undra, þótt ráðherra mætti á þeim fundum frekar en annars staðar, þótt vita mætti hann þá þegar, að hann hafði glatað meirihlutanum. Í þeim svifum bárust símskeyti frá Kaupmannahöfn um framkomu hans þar í botnvörpumálinu. Þær fréttir komu sér illa, vöktu hvarvetna mikinn óhug, vöktu jafnvel óróa í sjálfu stjórnarliðinu. Nú voru góð ráð dýr, og hver urðu þá ráðin? Það er sorglegt, en satt, að hæstv. ráðherra talaði þá tvö kvöld í röð og hélt fram algerlega röngum skýringum á framkomu sinni, skýrði alveg ósatt frá stjórnarathöfn og reyndi að skella allri skuldinni á fyrv. ráðh. (H. H.). Mér hnykti við, þegar eg komst að þessu. Eg er ekki fróður maður í sögu eða stjórnarfari annara landa, en eg hygg það ólíklegt, að til séu mörg slík dæmi, ef þau eru þá nokkur. Þetta verður ekki afsakað, nema ef vera skyldi með gleymsku hæstv. ráðh., en það væri eigi til annars en þess, að sýna það enn betur, að hann er eigi starfa sínum vaxinn. Til samanburðar mætti benda á eitt dæmi. Það átti sér stað um líkt leyti í Danmörku, að einn maður í Zahleráðuneytinu talaði nokkur ógætileg orð um eina stétt manna. Hann hafði gefið það í skyn — og það með mildum orðum, að minsta kosti á vorn mælikvarða — að eigin hagsmunir hefðu ráðið framkomu herforingjanna í einu máli. Þessu var auðvitað mótmælt. Herforingjarnir þutu upp til handa og fóta, blöðin sömuleiðis, og svo var hamast að honum sjálfum heima fyrir. Hann varð þá eitthvað dálítið tvísaga. Hvað ætli hefði nú verið gert úr þessu hér? — Þarna varð hann að fara frá völdum, eingöngu fyrir þetta. Meðstjórnendur hans þoldu ekki annað. Hérna á Íslandi er meirihlutinn ekki hárviðkvæmur fyrir þessháttar smámunum!

Blaðskeyti, er send hafa verið til útlanda af hálfu ráðh., eða hans manna, hafa reynst óáreiðanleg, og hafa sprottið af því málaferli. Framkoman hefir verið ógætileg hér, eins og oftar, fyrst neitað, síðan játað, en reynt að klóra yfir og fóðra alt einhvern veginn. Hæstv. ráðh. reyndi um daginn í Ed. að afsaka sig með því, að hann ætti ekki að ábyrgjast vörnina í málaferlum þessum. En eg spyr, hvort umboðið, er hann gaf, hafi eigi verið takmarkalaust, og hvort ummælin hljóti þá ekki að vera á hans ábyrgð. Þetta er nú eitt dæmi, en mörg eru til fleiri um miður áreiðanleg ummæli úr þessari átt, einkum í dönskum blöðum, er öll miða að því, að rangfæra og afbaka afstöðuna hér.

Þá er að minnast á þingfrestunina. Það verður að álíta það sannað, eða að minsta kosti hefir því ekki verið mótmælt, að hæstv. ráðh. hafi hugsað sér að fresta þinginu. En það er jafnframt haft fyrir satt, að hann hafi eigi borið fram því til stuðnings þá ástæðu, sem allir vita að er hin eina sanna frá hans sjónarmiði, sem sé þá, að losna við hina núverandi kgk. þm. Það er óhreinskilni, sem ekki á að eiga sér stað, að bera fyrir sig örðug ferðalög eða þess háttar, í stað þess að segja satt um þetta.

Listinn gæti orðið nokkuð langur, ef alt ætti til að tína, sem ástæða væri til, (Ráðh.: Jú, ef halda ætti áfram svona skáldskap), tína til öll ósannindi ráðherrablaðsins. Auðvitað getur hann sagt að hann eigi ekki sök á öllu, sem þar stendur, en einhvern hemil hefði hann þó átt að geta haft á öllum þeim taumlausu ósannindum og rangfærslum, sem þar hafa staðið í hverju blaði. Eg skal t. d. benda á eina grein í 67. tbl. frá 22. okt. Ráðherra var þá nýkominn til Danmerkur, svo að búast mátti við, að hann gæti verið búinn að skrifa þaðan. Og greinin var um það, hvernig hann og hans flokkur væri affluttur í dönskum blöðum. Meirihlutinn af ummælunum, er höfð voru eftir, voru í gæsalöppum, án þess þó að tilgreint væri, hvar þau stæðu í dönskum blöðum. Margir hafa getið þess til, að grein þessi væri eftir hæstv. ráðherra. Ekki veit eg sönnur á því, en hitt veit eg, að ekkert af öllu því, sem þar er tilfært, hefir nokkurn tíma staðið í nokkru dönsku blaði. Það er alt saman bláber uppspuni. (Ráðh.: O, sei sei, sei sei!) Eg veit það með vissu, hvað sem hver segir.

Þá er að minnast á Atlantseyjafélagið. Ekki get eg verið háttv. frummælanda (B. Sv.) samdóma um það, að ávíta ráðh. fyrir það, þótt hann kæmi þar og stæði fyrir sínu máli. En hitt er það, að hann fór þar óviðurkvæmilegum og ógætilegum orðum um blaðaósannindi í Danmörku. Haft eftir honum, að það væri orðið alsiða hér, að veðja um það, hve miklu mætti ljúga að Dönum um Íslands mál. Blaðið »Riget« skoraði á hann skömmu síðar, að skýra þessi orð sín betur, eða finna þeim stað, en það mun ekki hafa verið gert.

Á þessa leið mætti halda lengi áfram, ef maður vildi og færi að blaða í »Ísafold«. Það er sjálfsagt ekki rétt að skrifa það alt á reikning hæstv. ráðherra, er blaðið hefir flutt í þessu efni, en það er víst, að hæstv. ráðherra hefði verið auðvelt að hafa áhrif á blaðið eða tóninn í því.

Þótt þetta sé þegar orðið alllangt mál verð eg enn að syndga upp á náðina og telja til fáein fleiri mál. Og skal eg þá fyrst rifja upp fyrir mönnum afskifti hæstv. ráðherra af Thoreskipakaupunum, og minnast á, hversu holl sú stefna hans var að reyna að fá landið til að kaupa skipin. Raunar þarf eg ekki að vera langorður um það efni, því að það er alþekkt og öllum í fersku minni. Hæstv. ráðherra lagði svo mikið kapp á það mál, að hann agiteraði fyrir því, ekki einungis meðal meðflokksmanna sinna heldur og meðal andstæðinga sinna. Eg tel víst, að hæstv. ráðherra hafi fylgt málinu af fullri sannfæringu, og lasta eg hann ekki fyrir það, en það sýnir, hversu sannfæring hans auðveldlega getur leiðst á villigötur, er hann beitir öllu sínu mikla afli til að hrinda því máli áfram, einhverri hinni glæfralegustu tilraun til að spila með fjárhag landsins, sem þekst hefir, að vitni flestra manna, þar sem eg er kunnugur, jafnt andstæðinga stjórnarinnar sem stjórnarmanna. Á þinginu var málið sótt svo fast, að við sjálft lá, að það næði fram að ganga, og þar með landinu steypt í hinn mesta voða. Það voru einstaka þm. stjórnarflokksins, sem beittust á móti málinu og björguðu landinu. Það er full ástæða til að gjalda þeim mönnum þökk fyrir framkomu þeirra bæði í því máli og sömuleiðis er þeir fengu ráðherra til að gefa út yfirlýsinguna í landsbankamálinu. Eg fyrir mitt leyti mun jafnan láta menn njóta sannmælis og kann þeim þökk fyrir. Það er annars táknandi, að hið fyrsta mál, sem hæstv. ráðherra lagði kapp á og barðist fyrir eftir að hann var orðinn ráðherra, mál sem nokkuð snerti verulega fjárhagsástand þessa lands, það er þetta mál, eitt glæfralegasta fyrirtæki, sem fyrirhugað hefir verið, að allra manna dómi.

Eg þykist nú hafa sýnt fram á, að þrátt fyrir alla aðra mikla hæfileika sína, hefir hæstv. ráðherra sýnt það, að hann hefir ekkert vit á fjárhagsmálum eða bankamálum, og má helzt ekki koma nærri slíkum efnum.

Viðvíkjandi þeirri aðferð hæstv. ráðherra, að hefja hinar miklu lögsóknir gegn blöðum andstæðinga sinna og ritstjórum þeirra, þá hefi eg það fyrir satt og má fullyrða, að sú aðferð mælist hvarvetna mjög illa fyrir. Fjöldinn allur af þessum málum var miklu ósaknæmari en sakargiftirnar í blaði hæstv. ráðherra sjálfs við fyrverandi ráðherra og var þó aldrei fitjað upp á málsóknum út af þeim blaðagreinum. En nú notar hann þessi gömlu og úreltu lög, sem hann hefir sjálfur brotið meira en nokkur maður annar. Og hver er tilgangur hæstv. ráðherra með þessum lögsóknum? Eg fæ ekki annað séð — og það er skoðun manna alment — að hæstv. ráðherra hafi með þessu viljað einungis hefna sín á fátækum andstæðingum sínum með stórum fjárútlátum frá þeirra hálfu, og sú skoðun breytist ekki, hvernig sem dómar falla í málunum. Eg er ekki svo fróður, að eg viti, hvort þetta er síður merkilegra stjórnmálamanna hjá öðrum mentuðum þjóðum, að ofsækja þannig andstæðinga sína, en það er mér sagt, að hinn alkunni Alberti hafi beitt sömu aðferð einu sinni við andstæðinga sína í Kaupmannahöfn og er hæstv. ráðherra sízt öfundsverður af slíkri fyrirmynd.

Það hefir verið tekið fram hér í dag, og eg er því samþykkur, að undirbúningurinn undir frv. þau, sem lögð hafa verið fyrir þetta þing frá stjórninni, hafi verið lítilfjörlegur. Það er fátt, sem er nýtilegt í frv. þessum og starfið, sem í þau hefir verið lagt lítið og ómerkilegt. Af nýmælunum skal eg nefna t. d. frv. um fræðslulög. Það er mikið nýmæli að því leyti, að ætlast er til með því að kollvarpa algerlega nýútgefnum lögum um sama efni, en að öðru leyti er frv. einkis virði, þar finnast engar skýrslur né gögn um málið í heild sinni. Annað nýmæli er færsla þingtímans. Það sýnir bezt, hve illur undirbúningur hefir verið undir það mál, að í frv. er valinn sá tími, sem að allra manna dómi er hinn óheppilegasti, og hefir hæstv. ráðherra sýnt með því, að hann hefir ekki ráðfært sig við nokkurn mann. Frv. um ullartoll er líka nýtt, en það er þó það frv., sem helzt hefir fengið undirbúning. 2 önnur merkileg lagaboð, viðskiftalögin og siglingalögin, eru að eins þýðingar á dönskum lögum.

Þetta er nú starfsemi og undirbúningur hæstv. ráðherra undir þetta þing. Fjárlagafrv., sem ætíð er allmikið verk, mun vera eitt af þeim fáu frv., sem samin eru hér heima á Íslandi. Og þó er hin merkilega fundna tala, tekjuliðurinn 360 þús. kr. áfengistollur fyrsta árið, sem lögbannað er að flytja nokkurt áfengi til landsins, sett í frv. í Kaupmannahöfn. Það er sjálfsagt óhætt að draga 200 þús. kr. frá á þessum lið. Það er jafnan skemtilegt að láta tekjur og gjöld »balancera« en þessar 200 þús. kr. eru hvergi til nema í tunglinu. Hæstv. ráðh. hefði átt að leita aðstoðar og ráðfæra sig við þá menn, sem skyn bera á málin áður hann lagði þau fyrir þingið. En það hefir hann ekki gert. Það lá nærri að leita álits fræðslumálastjórans — eg bið forláts ef hann hefir fengið eitthvert annað lögheiti — um fræðslulögin. En ekki hefir það verið gert, að því er eg má frekast fullyrða. Ekki hefir heldur verið leitað álits símastjórans um nýja síma, og ekki heldur um það nýmæli að stofna 2 loftskeytastöðvar, aðra í Reykjavík og hina í Vestmannaeyjum. Sama er að segja um hinn fyrirhugaða síma til Stykkishólms, og það má eg fullyrða, að áætlanin um kostnaðinn er algerlega sett af handahófi og miklu lægri en sú áætlun, sem gerð hafði verið af skynberandi mönnum. Af því, sem nú hefir verið sagt, má öllum vera ljóst, að hæstv. ráðh. hefir ekki notið við krafta annara manna til þess að undirbúa málin sæmilega og sjálfur er hann auðvitað ekki maður til þess.

Þá kem eg að einu stórmálinu enn, en það er Thoremálið. Eg heyrði það í Ed. þegar minst var á það mál á dögunum, að hæstv. ráðherra mæltist fremur undan að svara fyrir sig í því máli fyr en fjárlögin kæmu til umræðu. En eins og eg tók fram í upphafi ræðu minnar, hafði eg hugsað mér, að þessi dagur yrði nokkurskonar eldhússdagur, og skal eg því leyfa mér að fara dálítið út í málið.

Til þess að athuga þetta mál nokkuð rækilega, verður að fara aftur í tímann. Á þinginu 1907 kom fram tilboð frá sameinaða gufuskipafélaginu, þar sem það býðst til að halda áfram ferðunum framvegis fyrir ákveðið tillag úr landssjóði. Það býður að láta byggja 2 nýtízkuskip með kælirúmum og að öðru leyti haga ferðunum eftir þeim kröfum, sem komið höfðu fram hér á landi. En þessi boð félagsins voru bundin við 10 ára fastan samning. Nú þótt þingið annars vegar játaði, að tilboðið væri mjög nýtilegt, bæði vegna bættra samgangna, hinna nýju skipa og hóflegra fjártillagna úr landssjóði, þá hikaði þingið sér hins vegar við að ganga að tilboðinu, með því að þingmönnum þótti viðsjárvert að binda landið svo langan tíma, 10 ár. Í stað þess veitti þingið heimild til að semja við félagið fyrir 6 ára tíma og færði jafnframt niður tillagið úr landssjóði. En þá um haustið tóku að hefjast hin miklu peningavandræði víðs vegar um heiminn, svo sem kunnugt er, og sameinaða félagið átti þá verra með að leggja fé til nýrra skipa, svo sem skiljanlegt er. Félagið notaði sér þá breytingar alþingis til þess að ganga frá hinum fyrirhugaða samningi. En fyrir ötula framgöngu fyrv. ráðh. (H. H.) náðust þó samningar um, að félagið héldi áfram ferðunum næstu 2 árin, 1908 og 1909, með aðgengilegum skilmálum, árstillagið úr landssjóði var að eins 30 þús. kr. Veturinn 1908—1909 er fyrverandi ráðh. (H. H.) var í Kaupmannahöfn leitaði hann bæði til sameinaða félagsins og Thorefélagsins til að fá tilboð um gufuskipaferðir. Það reyndist árangurslaust við framkvæmdarstjóra Thorefélagsins; hann kvaðst ekkert tilboð mundu gera. Það er eftirtektavert, að sú neitun er gerð sama dag, sem Thore veitir málaflutningsmanni hér í Reykjavík umboð til að semja um sölu á skipum félagsins. Aftur á móti sendi sameinaða félagið umboðsmann sinn hingað til þess að þingið gæti samið við hann. Hann hafði umboð til þess að gera fulla samninga við þingið. En tilboðið hljóðaði svo, að ferðunum yrði haldið áfram í sama horfi með þeirri viðbót, að »Botnia« kæmi í stað eins af gömlu skipunum, og hún yrði útbúin með kælirúmi, en 3 strandbátar kæmu í stað þeirra tveggja, er áður höfðu verið. Þessu tilboði var komið fyrir kattarnef. En Nd. setti inn í fjárlögin heimild fyrir stjórnina til að semja um gufuskipaferðir um næstu 2 ár með nánari skilyrðum, er miðuð voru við tilboð sameinaða félagsins. En undir þinglok kom fram tillaga um breytingar á skilyrðunum í þá átt, að ferðirnar yrðu »mun betri« en verið hefðu, nokkrar ferðir væru farnar til Hamborgar og kælirúm yrðu í tveim skipunum; þar með skyldi og heimild verða veitt til að gera samninga um gufuskipaferðir til 10 ára. Þetta mál var nú rætt fram og aftur á þinginu, og að lokum var tillagan samþykt. Lítið var þó útlistað, hvað átt væri við með orðunum »mun betri«. Eg man, að framsögumaður fjárlagan. í Ed., eða framsögum. flokksins, sem vel mátti kalla hann, skýrði þessi orð svo, að ekki væri meiningin með »mun betri«, að litlu betri skip nægðu, heldur allmiklu betri. Þau mættu ekki vera eins og »dallar þess sameinaða«, svo sem hann komst að orði. Þetta varð nú úr, að stjórninni var falið að gera samninga samkvæmt þessum skilyrðum. En stjórnin gerði samning við Thorefélagið, svo sem kunnugt er. En sá samningur er svo úr garði gerður, að í framkvæmdinni eru nálega öll skilyrði fjárlaganna virt að vettugi. Eg skal ekkert um það segja, hvort stjórnin hefir farið svo klaufalega að í samningsumleitununum, að Thorefél. hefir getað farið sínu fram. En það verða allir að viðurkenna, að skilyrði þingsins um »mun betri skip« er að engu skeytt, svo sem eg mun síðar víkja að. Í öðru lagi var það sett sem skilyrði, að viðkomur skipanna í Færeyjum yrðu ekki fleiri en hjá skipum sameinaða félagsins. En hjá því félagi komu skipin við í Færeyjum í 20 ferðum, þar af 14 að eins með póst, og til verulegrar tafar urðu einungis 6 ferðir. Hjá Thorefél. koma skipin þar í móti við í Færeyjum 34 sinnum og viðkomustaðir þar voru 84 árið sem leið. Eg skal ekki fara neitt út í hina ólöglegu fjárveiting til Thorefélagsins, 6000 kr., í þetta sinn. En svo að eg víki aftur að skipunum, þá er það fullvíst, að það er svo langt frá, að því skilyrði hafi verið fullnægt, að skipin yrðu mun betri, að þau eru miklum mun verri. Framsm. fjárl.n. í Ed. tók það fram, eins og eg sagði áðan, að skipin mættu ekki vera gamlir dallar, eins og skip sameinaða félagsins, er það bauð fram til ferðanna, »Botnia«, »Ceres« og »Laura«. En hvernig urðu nú skip Thorefél.? Viti menn, eitt skip að eins er þægilega innréttað, það er »Sterling«; hin öll eru miklum mun lakari en skip sameinaða félagsins.

Eitt af skilyrðum þeim, sem sett voru í fjárlögunum, var, að í skipunum yrði kælirúm. Mér er sagt, að kælirúm sé í skipinu »Ingólfi«, en hvort svo er eða ekki, verður ekki sagt með vissu, því að enginn hefir að eg hygg notað það. Eg hefi haft spurnir af því, að kaupmaður einn á Sauðárkrók hafi ætlað að gera tilraun með að flytja út kælt kjöt, og hafi í því skyni beðið um flutning þess á »Ingólfi«. Í sama mund var á Sauðárkróki allmikið af hrossum, sem fara áttu með skipinu. En eins og oft vill verða um Thorefélagsskipin, varð »Ingólfur« á eftir áætlun, komst að eins á Akureyri og hélt þaðan til útlanda, svo að kaupmaðurinn varð af þessari tilraun sinni, en sá, er hrossin átti, varð að reka þau til Akureyrar með ærnum tilkostnaði og fyrirhöfn. Þetta er alt sem eg veit um kælirúmið í »Ingólfi«; hvort það er nokkurs virði eða hvort það yfirleitt er til, skal eg láta ósagt. Ráðherra, blað hans og fylgifiskar gerðu afarmikið úr því, að ráðherra hefði fengið Thore til að ganga inn á að hafa kælirúm í strandferðaskipunum tveimur og mundi það verða til hins mesta hagræðis. Það hefði nú mátt ætla, að þetta hefði mátt verða í góðu lagi, því að skipin eru ný. En líklega verða þó kælirúmanna lítil not, eða að minsta kosti hafa þeirra verið lítil not það sem af er. Eg skal nefna eitt dæmi. Í sumar átti að senda síld með »Austra« frá Eyjafirði til Austfjarða, en þegar austur kom, reyndist síldin ónýt. Eg hefi sterkan grun um, að svo sé með þessi kælirúm, sem sumt fleira, sem gumað hefir verið af og talið ráðherra til lofs, að það sé ekki annað en hégóminn einn. Nýju strandbátarnir héldu sæmilega áætlun og sömuleiðis skipið »Sterling«. En farþegarúm í strandbátunum er mjög ófullnægjandi, og þegar alls er gætt miklu lakari en það, er vér höfum átt að venjast í »Skálholti« og »Hólum«. Að vísu er 1. pláss dálítið stærra á þessum nýju bátum, en 2. pláss er illbrúkandi og 3. pláss lítið og óbrúkandi; þetta vita allir þeir mörgu sjómenn og verkafólk, sem farið hefir með hvorutveggju skipunum. Önnur skip Thores bæði Suðurlandsbáturinn og millilandaskip önnur en »Sterling« halda nær aldrei áætlun og hefir af því hlotist mjög mikill skaði. Eftir þessu sem nú var sagt, er því svo langt frá því, að skipin hafi orðið eða reynst »mun betri« en skip sameinaða félagsins, að þau hafa einmitt reynst miklum mun verri.

En hvernig eru svo ferðaáætlanir þessara landssjóðsskipa? Eru þær gerðar svo haganlega og vel úr garði, að reynt sé að fullnægja helztu þörfum vorum? Til þess að glöggva sig á því efni vil eg sýna, hversu vel séð er fyrir sambandi höfuðstaðarins við útlönd, og annars vegar sambandi höfuðstaðarins við aðra landshluta. Að það samband sé sem bezt, er eitt mikilsverðasta atriðið í samgöngumálum vorum, jafn áríðandi fyrir höfuðstaðinn sjálfan og fyrir aðra landshluta, sem auðvitað þurfa allir meira og minna að nota samband við Reykjavík.

Samband höfuðstaðarins við útlönd með Thoreskipunum, er svo sem hér skal sýnt í ágripi:

Skipin komu 18 sinnum frá útlöndum til Reykjavíkur og auk þess tvisvar austan og norðan um land og tvisvar frá Austfjörðum sunnan um land.

Tímabilin milli þessara 18 ferða frá útlöndum eru ærið misjöfn. Einu sinni, 16. janúar til 22. febrúar, 36 dagar; tvisvar 31 dagur, einu sinni 30 dagar, tvisvar 29 dagar, 26, 25, 23 og 20 dagar (20 dagar tvisvar), og mismunandi alt niður í 4 daga.

12. maí komu 2 Thoreskip beina leið frá útlöndum og 15. og 16. júlí komu sömu leið, eitt skip hvorn daginn.

Þetta tel eg 2 viðkomur ekki 4.

Beint frá Rvík til útlanda fara skipin 14 sinnum. Bilin milli ferðanna eru 75 dagar einu sinni (18. des. til 3. marz), 33—34 dagar þrisvar sinnum, 24—28 dagar sex sinnum, 13 dagar, 10 dagar, 10 dagar og tvisvar aðeins 4 dagar.

Það sést af þessu yfirliti, að samband höfuðstaðarins við önnur lönd með Thoreskipunum er svo fjarri því að vera viðunanlegt, að nær sanni er að segja, að með svo mörgum ferðum sé varla hægt að gera það óhentugra og ófullkomnara, og hefði ráðherra átt að vera vorkunnarlaust að sjá um, að áætlanir skipanna hefðu verið skárri að þessu leyti. Hér er hann þó nógu kunnugur. Hitt kemur engum á óvart, þótt hann beri lítið skyn á, hvað öðrum hlutum Íslands hagar, og enginn mun eiginlega furða sig á því, þótt lítið hafi verið hugsað um hagsmuni þeirra, er áætlun Thoreskipanna hefir verið samþykt. Enda sýnir það sig ljóslega af yfirliti því, er eg nú mun gefa um samband Reykjavíkur við aðra landshluta. Thoreskipin koma aðeins 4 sinnum til Rvíkur frá öðrum hlutum landsins, að Vesturlandi undanteknu. 1. 27. apríl eftir að hafa komið við á Austfjörðum og að eins á tveim stöðum á Norðurlandi (Akureyri og Sauðárkrók).

2. 25. ágúst, og koma þá ekki við á Austfjörðum og hvergi fyrir norðan nema á Akureyri, Sigluf. og Sauðárkrók.

3. 5. október sunnan um land frá Austfjörðunum.

4. 22. nóvember, sömu leið og hitt og hefir hvorugt skipið komið við nema á 4 af Austfjörðum.

Húnaflói allur (þ. e. Húnavatnssýsla og Strandasýsla), Suður-Þingeyjarsýsla og Norður-Þingeyjarsýsla og Norður-Múlasýsla eiga aldrei kost á að nota Thoreskipin (auðvitað að strandbátunum undanteknum) á leið til höfuðstaðarins.

Ferðir frá Rvík til annara hluta landsins eru litlu meiri. Fimm ferðir eru að nafninu vestan og norðan um land.

19. janúar. Viðkoma á Blönduósi, Akureyri og Austfjörðum.

16. júlí með viðkomum á Blönduósi, Sauðárkrók og Akureyri.

20. september, viðkomustaðir: Hvammstangi, Blönduós, Akureyri og Húsavík.

13. október, viðkomustaðir: Norðurfjörður, Blönduós, Sauðárkrókur og Akureyri.

24. nóvember, viðkomustaðir: Sauðárkrókur og Akureyri.

Einu sinni á ári, í október, er því hægt að nota þessi skip frá Rvík til Strandasýslu, og það aðeins til nyrzta hluta hennar, Trékyllisvíkur.

Til Húnavatnssýslu fjórum sinnum, í janúar, júlí, september og október.

Til Skagafjarðarsýslu þrisvar, í júlí, október og nóvember.

Til Eyjafjarðarsýslu 5 sinnum, í janúar, júlí, september, október og nóvember.

Til Suður-Þingeyjarsýslu einu sinni, í september.

Til Norður-Þingeyjarsýslu og Norður-Múlasýslu aldrei.

Svona er nú séð fyrir þessu, og skal eg enn nefna eitt dæmi.

Fjöldi námsfólks og kaupafólks víðsvegar af Norður- og Austurlandi þarf að komast til Reykjavíkur í september. Nú er öllu svo vísdómslega niðurraðað, að ekkert skip, hvorki sameinaða gufuskipafélagsins né Thore, kemur frá Norður- eða Austurlandi til Reykjavíkur í september, nema strandferðabátarnir. En með þeim má heita frágangssök að ferðast, sökum þess, hve langan tíma það tekur.

Eg skal svo ekki fjölyrða meira um þetta Thoremál. Eg hefi sýnt, að skilyrði fjárlaganna fyrir 10 ára samningi eru að engu höfð, að Thoreferðirnar eru að öllu leyti lakari, ekki »mun betri«, en þær er í boði voru af hálfu þess sameinaða. Hér er um tvent að gera. Annaðhvort að ógilda samning þann, er ráðherra hefir gert við Thore, og það væri auðvitað réttast og bezt, eða ef það þykir ekki tiltækilegt, þá að stjórn sú, sem nú tekur við, geri alt sem unt er, að fá fyrirkomulaginu breytt í viðunanlegra horf. Að eiga að búa við þetta ástand í 10 ár, munu allir játa að sé óþolandi, og sá ráðherra, sem valdið hefir slíku á sannarlega ekki að sitja í stjórnarsæti lengur.

Eg veit nú að sumum kann að þykja eg vera orðinn nokkuð langorður, og þó er ærið margt ótalið enn, af því sem ráðherra hefir til saka unnið, og vert væri að skýra frá. En eg skal láta nægja að minna á nokkur atriði, svo sem silfurbergsmálið, sem allmikið umtal hefir orðið um, og eflaust hefir margt misjafnt að geyma, gæzlustjórahringlið, þeir voru 7 við landsbankann á minna en 3 mánuðum, frá 22. nóv. 1909 til 15. febr. 1910, og munu allir sjá, hvaða gagn muni vera að alókunnugum mönnum í þeirri stöðu, auk þess sem þeir, er ráðherra setti til starfsins, voru allir ólöglegir.

Stórri upphæð af Thorkillisjóðnum hefir verið varið til útgáfu dýrrar bókar, sem fáir lesa og engir kaupa. Það fé er tekið af fátækum börnum.

Alþýðudaður og lýðskrum ráðherrablaðsins, og stöðug viðleitni þess, að vekja tortrygni gegn embættismönnum landsins gæti verið efni í langt mál; en eg verð að láta mér nægja að minna aðeins á það.

Eg ætla ekki að tala um lögbrotin, sem hæstv. ráðherra hefir framið á háyfirdómaranum, og heldur ekki um 6000 kr. fjárlagabrotið; eg skal ekki heldur fjölyrða um viðskiftaráðunautinn, og heldur ekki um það, að hvert bein, smátt og stórt, hefir verið gefið flokksmönnum. Má þar til skýringar nefna marga póstmála starfsmenn og launahækkanir slíkra manna. Og þá ekki síður starfsmannafjölgunina við landsbankann. Eitt blaðið kallaði landsbankann um daginn forsorgunarstofnun þurfandi ráðherra-fylgifiska, og sýnist það ekki vera rangnefni.

Eg hefi hér að framan sýnt það, að ýms atriði í ráðlagi ráðherra eru svo vaxin, að þau, hvert fyrir sig, eru nægileg til þess að gera þessa fyrirliggjandi vantraustsyfirlýsingu réttmæta og sjálfsagða, og mér þykir ótrúlegt, að nokkur alþingismaður þori að taka á sig þá ábyrgð, sem það hefir í för með sér að að leyfa núverandi ráðherra að sitja lengur að völdum.

Afleiðingar þessara tveggja ára eru margar og slæmar. Við höfum mist virðingu allra þeirra, er nokkuð þekkja til okkar, og það sem er enn verra og hættulegra, við höfum glatað virðingunni fyrir sjálfum okkur. Í hitt eð fyrra datt engum í hug, að nefna sem ráðherraefni annað en verulega tilkvæmdarmenn. En nú er svo komið, að menn á strætum og gatnamótum leyfa sér að nefna hina og þessa óvalda pólitíska labbakúta, sem ráðherraefni. Svo lítils metum við sjálfa okkur nú.

Eg sagði hér í þingdeildinni 23. febr. 1909, þegar ræða var um vantraustsyfirlýsing þá, er fram var borin að ástæðulausu yfir H. H.: Verk það, sem hér er verið að vinna, er hið mesta óhappaverk.

Það er hugboð mitt, að þetta sé aðeins einn hlekkur í samanhangandi keðju samskonar verka.

En eg hefi sagt þetta nú, til þess að geta sannað síðar, að eg hafi séð fyrir, hvað er í aðsigi.

Þetta, sem eg sagði þá, hefir fyllilega rætst, hver óhappa atburðurinn hefir rekið annan. En nú vona eg að fari að rætast úr, og að ekki líði á löngu, þangað til við getum litið á þessi tvö síðustu ár, sem ljótan, liðinn draum.