24.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 716 í B-deild Alþingistíðinda. (1145)
12. mál, vantraustsyfirlýsing og ráðherraskipti
Ráðherrann (B. J.):
Eg vil biðja virðulega þingdeild að afsaka, að eg fer aftan að siðunum og fæst fyrst við síðasta númerið, ræðu vinar míns, hins stórvirðulega sýslumanns (Jóh. Jóh.) Það var skopleg roka, sem frá honum kom, um ofsóknir og svívirðingar af minni hálfu gegn embættismönnum landsins. Eg hlýt að spyrja: Er manninn að dreyma eða hversvegna talar hann þann veg út í hött? Eg veit ekki til, að eg hafi mína ráðherratíð mælt öfugt orð um sýslumenn eða aðra embættismenn; ef ástæða hefði verið til að taka í taumana vegna embættismensku þeirra, mundi eg hafa farið embættisleiðina. Kynlegt finst mér það, ef eg á að vera óhæfur til eftirlits með sýslumönnum vegna þess, að eg á eftirlitsferð minni hafði með mér skrá yfir bækur þeirra; það hafa þó hingað til allir eftirlitsmenn gert, bæði stiftamtmenn og amtmenn sér til minnis og glöggvunar, enda þori eg að fullyrða, að þó eg sé ekki eða hafi ekki verið sýslumaður, — sem víst mun vera eitthvað mikið — þá get eg þó vel séð, ef bækur þeirra eru stórhneykslanlega eða sviksamlega haldnar. Þessi aðdróttun er því hin skoplegasta fjarstæða og öfgar, en ef til vill hefir hinn virðulegi þm. átt við einhverjar nafnlausar greinar í einhverju blaði og þá dreymt að það hafi verið í Ísafold, og eignað mér þær. Hann veit þó mikið vel, að eg hef fargað Ísafold; og þó að sonur minn sé eigandi og ritstjóri blaðsins, þá er það ekki sama og eg væri það. Hann er allsendis óháður mér, enda kæmi mér ekki til hugar að beita neinu valdi í því efni, þótt eg gæti það. Sannleikurinn er sá, að eg hefi mánuðum saman ekki ritað einn staf í Ísafold t. d. kom þar ekki nokkurt orð eftir mig alla þá stund, sem eg var utan nú síðast, ekki skemur en 4 mánuði. Að mann dreymir, að hann hafi einhverntíma lesið einhverja grein í einhverju blaði með óvirðingarorðum um sýslumenn og dreymir að það blað hafi verið Ísafold og það hafi verið í minni ráðherratíð og dreymir að höfundurinn hafi verið eg, nafnlaus, — það eru svo miklir draumórar, að eg leiði minn hest alveg frá að eiga við að svara slíkum hégóma.
Þá á það að vera ein af dauðasyndum mínum, að eg höfðaði ekki sakamál móti gæzlustjórunum við landsbankann. Áður hefir mér heyrst, að það hafi verið dauðasynd að víkja þeim frá, nú er hitt líka orðið dauðasynd að láta ekki hefja sakamálsrannsókn gegn þeim. Eg hefi áður lýst því yfir, að eg telji menn þessa valinkunna sæmdarmenn, sem hafi ekki stungið 1 eyri í sinn vasa af því stórfé, sem bankinn hefir tapað í þeirra höndum, og hvers vegna skyldi eg hefja sakamálsrannsókn gegn mönnum, sem eg hefi slíka skoðun á? Eg þykist þá hafa svarað þessum heiðursmanni (Jóh. Jóh.).
Eg spurði sjálfan mig í morgun, er umræður hófust um þetta mál: Er þetta alvara eða er það gamanleikur? En nú þarf eg ekki að spyrja, — þetta er gamanleikur alt saman! Hér er verið að klína saman hrófatildri af fyrirslætti og yfirdrepsástæðum undir fyrirfram ráðna niðurstöðu í máli, fyrirfram ráðinn dauðadóm yfir mér, ráðinn og samþyktan af bandalagi því hinu nýja, er á hefir komist í því skyni hér í deildinni; þess vegna er verið að tildra öllum þessum ástæðum upp, þess vegna er öllu tjaldað sem til er, hve lítilfjörlegt sem er, og ef fátt verður um föngin, þá er skáldað í viðbót, ýmist í snatri hér í deildinni eða þá að lánað er úr eldri skáldskap ýmissa sómamanna. — öll ræða virðul. flutningsmanns (B. Sv.) var ákaflega skoplegt hrófatildur. Hann bar á mig eitthvað 8 eða 9 dauðasakir og taldi vitaskuld allar sannaðar, en því vil eg spá, að ef hann eftir nokkur ár lítur í ræðu sína, þá hljóti hann að spyrja sjálfan sig: Var eg svona mikill óviti þá, svona ofstækisfullur galgopi, svona hégómlegur heimskingi!
Hann talaði fyrst um forsetaförina, að eg þá hefði haft í frammi skjall og fagurgala við danska blaðamenn. Það var hin fyrsta dauðasök. Það er víst skjall, að eg talaði vel um Dani sem þjóð, sagðist ekki vera Danahatari, heldur þvert á móti hafa mætur á þeim, — en hélt þó tilslökunarlaust fram stefnu flokks vors og réttindum landsins! Það kann að vera glæpur, að tala vinsamlega til mótstöðumanna sinna. En eg hefi nú aðra skoðun. Eg tel það jafnan einu skynsamlegu leiðina til þess að koma máli sínu fram, hvort sem mótstöðumaðurinn er meiri máttar eða minni.
Þá á eg að hafa brugðist í sambandsmálinu, og fann flutnm. mér það fyrst til foráttu í því máli, að eg hefði ekki mótmælt uppástungu um, að því máli skyldi lokið á síðasta þingi með rökstuddri dagskrá. Þetta var í fullu samræmi við það, sem Dönum hafði verið skýrt frá í forsetaförinni, að enginn bilbugur væri á Íslendingum, þeir sætu fastir við sinn keip. Hins vegar lagði eg enga áherzlu á, að stefna vor kæmi fram með neinni skerpu í forminu, hvort heldur í frumvarpsmynd eða ekki, en fanst hitt miklu meira máli skifta, að vilji vor kæmi fram skýrt og skilmerkilega.
Þetta var nú önnur dauðasökin.
Þá á viðtal mitt við blaðamann frá »Politiken« núna í vetur að vera glæpur; þar gerði eg ráð fyrir, að flokkur vor mundi halda fast við hina sömu stefnuskrá, sem hingað til, en um skilnaðinn sagði eg, að eg byggist ekki við, að menn mundu telja þá leið færa að sinni, þó sagðist eg fremur halda þetta en vita, vegna þess, hve örðugt væri fyrir alþingismenn að tala sig saman fyr en á þing væri komið. Slíkt hið sama sagði eg í Atlantshafseyjafélaginu og gæti endurtekið það þann dag í dag. En eg þekki þetta vel, að hvað sem eg segi eða geri þar syðra, þá er það alt flutt heim rangfært, aflagað og litað í þágu virðulegra kappa í hinum herbúðunum, enda fær stúdent einn í Höfn 200 kr. laun fyrir það starf, að síma hingað alt það, sem honum getur hugkvæmst að verði mér eða mínum flokki eða málefni því, sem eg berst fyrir, til óþurftar. Síðan er þetta soðið upp og lagt út af þessu í máltólum virðul. mótstöðumanna minna. Allir vita, hvernig þeim blöðum er háttað; raunar er eg sjálfur þeim ókunnugur, — hefi sem sé árum saman haft þann sið, að lesa ekki einn staf í þeim, því að eins og eg vil ekki sjá annan mat á borð borinn en þann, sem hreinn er og sæmilega hollur, eins vil eg ekki nærast á öðru en hreinni andlegri fæðu, og þó að eg sé maður félítill, þá á eg þó svo mikið bókasafn, að það getur meir en enst mér um mína daga, þótt fleiri yrðu en líkur eru til, og því skyldi eg þá leggja mig niður við að lesa óþverra? Hlutverk þessara blaða er að flytja óþverra, róg, níð, svívirðingar og ósannindi um mótstöðumenn sína; ef til vill stendur eitthvað meira í þeim, eitthvað af fréttum t. d., en slíkt eru nóg ráð að ná sér í annan veg, og eg vil ekki hafa þau inn fyrir mínar húsdyr.
Næsta dauðasökin var, að eg hefði þokað fyrir konungsvaldinu í þingfrestunarmálinu, og var auðheyrt, að flutnm. ætlaðist til, að eg hefði heldur átt að falla en slaka til í því máli. Eg hefi heyrt á fleiri flokksmönnum mínum, að þeir hafa viðlíka skoðun. — Eg vil skjóta því inn hér, ef þessi orðrómur um tilslökunarsemi mína í þessu máli kynni að vera runninn frá dönskum blöðum, að á þeim er aldrei mark takandi, er til íslenzkra mála kemur, því að það vita allir menn með heilbrigðum skilningarvitum, að þau eru nærð héðan heiman að úr hinum herbúðunum, en eru sjálf allsendis ófróð um íslenzk mál. Nú um langa hríð hafa þau nálega ekkert annað flutt en níð um meirihlutann og mig, og hefir níðið ýmist verið símað héðan, eða nokkrir þar til kjörnir landar í Höfn hafa birgt þau að þeim forða. Vanagangurinn er víst sá, að einhverjum óhroðanum úr máltólum minnihlutans hér er snúið á dönsku og það símað til Hafnar; það sem á vantar sjá svo erindrekar minnihlutans í Höfn um; nýlega hafa dönsku blöðin orðið fyrir því happi, að næla sér í tíðindamann, sem fyrir skemstu var leppur hér heima fyrir einu af aðalmáltólum minnihlutans, sem mestmegnis var ritað af einum stórhöfðingja úr minnihlutanum, sem var svo lítilþægur að fela sig í skúmaskoti bak við leppinn.
Þá mintist flutnm. á botnvörpusektirnar og sagði hann sögu þess máls á líkan hátt og sumir hafa áður gert. Hann hafði þau orð, að eg hefði látið hafa mig til að setja botnvörpusektaathugasemdina inn í fjárlögin. Fróðlegt væri að vita, hvað sannleikselskandi og óhlutdrægir menn segja um þetta, þegar ofstækisvíman er horfin. Þegar þetta ákvæði var fyrst samþykt, vissi hvorki eg né aðrir annað, en að þetta væri óþarfadaður við danska stjórnmálahöfðingja, eins og allir vita að það er ofan í íslenzk lög. Það var samkvæmt tillögu fyrirrennara míns, að þetta komst inn í fjárlögin, en á þinginu 1909 var þetta nýmæli aftur strikað út úr fjárlögunum, vegna þess að þingmenn vissu mjög ógerla, hvernig það var undir komið. Eitthvert hjal heyrðist þó um einhverjar bollaleggingar, sem fram hefðu farið milli ráðuneytisforsetans danska og Íslandsráðherra. Svo líður fram að þeim tíma, að fjárlögin skyldi bera upp til konungsstaðfestingar, og þá kemur það upp úr kafinu, að Danir teljast sviknir og tala um samningsrof eða samkomulags, sem gilda hefði átt um aldur og æfi. Sumir höfðingjar í minnihlutaherbúðunum hér fóru að tala um fjárlagasynjun, er væri í vændum út af þessu og skipun viðskiftaráðunautsins, og svo mikill fagnaðarauki var þeim tilhugsunin um þetta, að einn þeirra á að hafa hrópað upp yfir sig í stóru samkvæmi: »Og saa skal vi se Löjer«. Hann mun hafa hlakkað svo yfir væntanlegum afleiðingum af synjuninni, sem voru: aukaþing þá um haustið og þar með augljós forlög ráðherra. Svona var nú þjóðræknin þá, ekki kviðið, heldur hlakkað yfir slíku böli og kostnaði fyrir þjóðina. Eg minnist ekki, að eg legði trúnað á þetta hjal, þótti þúfa sú of lítil til að valda slíku hlassi; en til að mýkja málið talaðist svo til milli mín og stjórnarinnar, að eg lofaði að bera málið aftur undir næsta þing, án þess þó að lofa að veita því fylgi mitt og enn þá síður hét eg neinu um að útvega Dönum neitt af botnvörpusektunum frá árunum 1909 og 1910, eins og skáldað hefir verið af einum tilberanum í Höfn. Frekara hefir ekki gerst í þessu máli, hér er ekki um neitt nýtt samkomulag að ræða, að eins hitt, að málið er af nýju borið undir alþingi vegna nýrra skýrslna, sem hið danska ráðuneyti hefir gefið í málinu, nefnil. að Danir líta svo á sem hér sé um samning eða samkomulag (overenskomst) að tefla; eg hefi hvorki gert að neita þessu eða samsinna, en að eins heitið því að bera málið enn af nýju undir alþingi til frekari athugunar. Það er þá öll óhæfan, að eg hefi tekið gamla athugasemd inn í fjárlögin aftur, eftir að eg af bréfi fyrverandi ráðuneytisforseta, J. C. Christensen hafði komist að raun um, að það var engin furða, þótt Danir teldu sér það vonbrigði, er alþingi feldi margnefnda athugasemd úr fjárlögunum. Þar með er það mál fullskýrt.
Ein meiri háttar dauðasök á það að vera, skilst mér, að eg sagði á fundi hér í fyrra, að samningur eða samkomulag hefði verið gert um þetta mál; annað sagði eg ekki, og víst er að Danir líta svo á samtal ráðuneytisforsetans og Íslandsráðherra, sem svo hafi verið. Hins vegar er það föst regla, að ákvæði, sem komin eru inn í fjárlög samkvæmt samkomulagi við annan málsaðila, eru ekki burtnumin aftur af öðrum aðilanum, nema hinum hafi verið veitt vitneskja um það og hans samþykkis leitað. Eftir ströngum lagaskilningi getur þetta ekki heitið samningur, en ekki er það óeðlilegt, þótt Danir hafi litið svo á.
Eg skal engu spá um afdrif þessa máls hér á þinginu, en vil leyfa mér að benda á það eitt, að ef þingmenn kjósa sér ekki þarflausan fjandskap við Dani, þá er rétt að slaka hér til. Eg mundi því ekki telja illa farið, þótt þetta yrði samþykt, því að það horfir heldur til að draga úr misklíðinni milli þjóðanna, enda er hér ekki um bein útlát frá vorri hálfu að tefla, heldur um skifting á eins konar lotterivinningi.
Þá skal eg snúa mér að viðskiftaráðunautnum. Lítið númer, bygt á misskilningi. Þegar fram kom á þingi fjárveiting til viðskiftaráðunauta, var óðar símað til Danmerkur, að þokkapiltarnir þeir, sem feldu uppkastið fræga, ætluðu nú að bæta gráu ofan á svart og fara að skipa íslenzka konsúla. Danir urðu ókvæða við, sem nærri má geta, þeirra
(?: Danastjórnar) órengdur réttur er, að skipa konsúla fyrir alt ríkið. Þetta var því vel til þess fallið að egna þá til fjandskapar. Blað í Svíþjóð, oss einkar vinveitt, er Ragnar Lundborg stýrir, varaði sig ekki á öðru en að þetta væri satt, og segir að þá hlyti konungur að hafa fallist á þetta. En auðvitað var þetta tómur skáldskapur. Það vita þeir sem til þekkja. En Danir settu þetta vel á sig. Altaf var verið að ala á þessu. Þegar átti að bera fjárlögin upp til staðfestingar fór utanríkisráðherrann að grenslast eftir, hvernig væri um þessa konsúla. Var honum þá sagt hið sanna. Ennfremur var honum sagt, að viðskiftaráðunautnum væri sett erindisbréf, sem bannaði honum meðal annars að vinna nokkur konsúlastörf, og var honum lofað eftirriti af því til sannindamerkis um það. Eg get sagt frá prívatviðtali því, er eg þá átti við utanríkisráðherrann. Hann sagðist vonast eftir að ekki yrði skipaður í þetta neinn Danahatari. Eg hét því með ánægju, en hinsvegar sagði eg að það yrði víst maður, er fylgdi sömu stefnu og eg, líklega þingmaður, en því færi fjarri, að allir sjálfstæðismenn væru Danahatarar. Svo leið og beið. En er út á veturinn kom, kom kvörtun frá utanríkisráðherranum, sem þá var nýr maður (E. Scavenius) yfir því, að viðskiftaráðunauturinn hefði rægt Dani í Noregi. Kvörtun þessi kom til af því, að í ómerkilegu norsku blaði, útkjálkablaði, hafði staðið eitthvað, er viðskiftaráðunauturinn átti að hafa sagt í erindi um Ísland, er hann flutti í Noregi. Auðvitað var þetta rangt hermt hjá blaðinu, því að það hafði alls ekki staðið í fyrirlestrunum. Viðskiftaráðunauturinn átti að varast alla áreitni við Dani, og því fylgdi hann að minni vitund. Eg svaraði utanríkisráðherranum, að líklega væri þetta rangt hermt hjá blaðinu, en ef satt væri og hann léti ekki af slíku, mundi hann verða kvaddur heim samkvæmt erindisbréfinu. En svo uppgötvaðist að ekki var búið að senda utanríkisráðherranum eftirritið af erindisbréfinu, það hafði gleymst. Það var svo sent, og um leið komist svo að orði, að leitt væri það skyldi hafa gleymst. Nú er það kátlegt atvik, að þegar farið var að skýra frá þessu í ónefndu blaði, þá er látið standa í bréfi stjórnarráðsins, að gleymska sú hefði verið »mikið sorgleg«. En þar hafði aðeins staðið að það væri »beklageligt«. Allir, sem kunna nokkuð í dönsku, vita hvað orðið »beklageligt« þýðir í því sambandi, það þýðir ekki á íslensku sorglegt, heldur »því miður« eða því um líkt, og er það algengt kurteisisorðatiltæki og annað ekki. Út af þessu er svo fult af ákúrum í minn garð. Eg átti að hafa gefið utanríkisráðherranum auðmjúkt svar, en svaraði ekki öðru vísi en kurteis maður er vanur að svara kunningja sínum og embættisbróður. Viðskiftaráðunauturinn hafði í raun réttri ekki gefið neina átyllu til umkvörtunar. Svo var þagað. Engin ástæða til að rekast í þessu framar. Sú er nú þessi dauðasökin.
Svo hygg eg, að virðul. framsögumaður hafi farið út í bankamálið. Hann á þó dálítið erfitt aðstöðu hér, því að til skamms tíma mun hann hafa verið á bandi með mér í því máli. En hvað gerir hann? Hann fer að tala um útbú Íslandsbanka á Akureyri. Kennir stjórninni að bankastjóri stal úr bankanum, Átti hún að halda vörð við bankann? Virðulegur flutningsm.
(B. Sv.) vítti stjórnina fyrir að hafa vanrækt skyldu sína með því, að hafa ekki látið rannsaka málið. En maðurinn var sagður dauður. Eftir þeirri vitneskju, er eg fékk í sumar, þá er eg var staddur á Akureyri, er alkunnugt, hversvegna ekki náðist í hann. Hann fól sig í kofa. Það sagði virðul. 6. kgkj. þm. (St. St.) mér. Benti hann mér á kofann um leið og hann sagði: »Þarna sat hann í 3 vikur og horfðist í augu við okkur hérna« (í gagnfræðaskólanum). Slíkt varast enginn. En svo vitnaðist síðar, að hann var strokinn en ekki dauður. Hafði leynst burt á skipi og farið til Ameríku. Bankinn var rannsakaður þá, og ekkert annað við hann að athuga. Flutningsm. þegir um það, að þá er bankinn var rannsakaður hér, voru sendir menn til þess að rannsaka útbúið á Akureyri. Með þessu gerði stjórnin sína fylstu skyldu. Hefðu einhverjar misfellur verið, hefðu þær komið fram. Við Íslandsbanka var ekkert annað að athuga en þjófnaður þessi. Það geta allir stolið. Undir eins og það vitnaðist, að bankaþjófurinn var strokinn, voru sendar út auglýsingar um það, og það hafði þau áhrif, að maðurinn fanst í Canada fyrir 4—5 mánuðum. Uppgötvaðist hvar hann átti heima þar. Landsstjórinn í Canada sendi utanríkisráðherranum í Lundúnum tilkynningu, en hann aftur utanríkisráðherranum í Khöfn og hann gerði Íslandsráðherra viðvart um það, — hann var þá staddur í Khöfn. Því næst voru gerðar ráðstafanir til að fá bankaþjófinn sendan hingað heim til þess að fá hann dæmdan og láta taka út hegninguna. Frekara veit eg ekki að svo stöddu. Sennilega næst maðurinn og verður sendur hingað til landsins. Eg get fullyrt, að landsstjórnin hefir gert sitt ítrasta í þessu máli. Alls ekki vanrækt neitt.
Enn er eitt brigslið á hendur mér, að maður vestur í Tálknafirði hafi verið dæmdur út af 25 aurum. Eg veit ekki hvort virðul. flutningsm. (B. Sv.) er kunnugt um atvik að þessu. Sé svo, er það harla lítilfjörlegt að koma með þetta. Það var búið að afgreiða mál þetta hér í stjórnarráðinu, áður en eg fékk að sjá það. Málið er nú í yfirrétti. Mesta hégómamál, er aldrei hefði átt að fara á stað með. Það er sagt fyrir vestan, að þetta sé ekki annað en pólitísk ofsókn gegn manninum, sem er meirihluta maður. Eg tel það formlega rétt, að próf voru haldin í málinu, en að efni til er það hinn mesti hégómi.
Þá hefir háttv. flutningsm. (B. Sv.) komið að síðustu dauðasökinni, sem er sú, að undirbúningur lagafrumvarpa fyrir þetta þing fór að miklu leyti fram í Danmörku. Sú dauðasök, sem altaf hefir viðgengist, og auk þess er hálfur sannleikur. Sumt af frumvörpunum er samið hér, en sumt í Danmörku. Hafa frumvörp aldrei áður verið samin á dönsku í Danmörku og svo komið hingað og verið lögð út á íslenzku hér? Það var gert þá er fyrirrennari minn var við völdin. En að meira hafi verið um það en áður að jafnaði, er að kenna lasleika mínum. Eg fór hans vegna fyr héðan til Khafnar, en ella mundi, og vann því þar að frumvörpunum að miklu leyti. Eg ætlaði að hafa þau fyr tilbúin, en gat það ekki. En batna gerði mér í utanförinni, sem betur fór, og er nú vel hraustur. Eg get ekki að því gert, þótt sumum muni líka það miður.
Eg vil bæta því við fyrir þá, sem ekki vita það, að það hefir sparnað í för með sér að semja lögin á þessum óheillastað (Khöfn), því þá þarf aðeins að prenta danska textann. Þegar eg kom heim lét eg þingmenn og fjölda marga aðra vita, að þeir gætu fengið frumv. í stjórnarráðinu þegar í stað á dönsku, og smámsaman á íslenzku, jafnóðum og lokið væri prentun þeirra. Þetta er fullkomlega löglegt og hver maður tekur þetta gilt, nema sá, sem vill fá einhverja yfirdrepsástæðu til þess að ráða mig af dögum.
Í sambandi við þetta vil eg minnast á eina dauðasökina enn. Það er sú að eg hafi ekki komið fram með stjórnarskrárbreytingarfrv. Eg hefi áður gert grein fyrir, hvernig á því stendur. Það er álit mitt, að stjórnarskrármálinu sé betur borgið, með því að bera það ekki upp í ríkisráði fyrst og eiga á hættu, að því verði gerbreytt á eftir hér á þingi. Eg þurfti að bera mig saman við flokksmenn mína um breytingarnar. Eg ætla mér að vinna með öðrum góðum þingmönnum að stjórnarskrárbreytingafrv. og vona, að ekki líði langur tími, þangað til mér gefst færi á því, ef bráðlega slotar Hjaðningavígunum, sem nú hafa staðið frá þingbyrjun.
Síðast en ekki sízt hafa mér verið borin mörg brigzl og ónot sökum þess, að eg hafi látið sjá mig í Skrælingjafélaginu, sem öðru nafni nefnist Atlantshafseyjafélag. Eg hefi aldrei verið í því félagi, þótt eg hafi oft átt kost á að ganga í það. Þar eru margir góðir menn bæði Íslendingar og útlendir og tilgangurinn er góður, þó hann fari nokkuð í aðra átt en eg mundi kjósa. Eg þarf enga afsökun að gera, þótt eg kæmi þangað. Eg kom þangað eftir vinsamlegu boði frá stjórn þess til að hlýða á erindi um samband Íslands og Danmerkur, er vinur minn einn, Arne Möller lýðháskólastjóri, sem ferðaðist hér um land í sumar sem leið hélt, og flutti fyrirlestur um oss heimkominn og ritaði um oss mjög vingjarnlega. Eg var boðinn og það hefði verið dálítið undarlegt ef eg hefði ekki komið til þess að hlýða á erindi þetta, af þeirri ástæðu einni, að fyrirlesturinn var fluttur í húsi félagsins. Hr. A. M. dró vorn taum í erindi sínu og sagði að oftast valdi báðir þegar tveir deili, en hér mundi Dönum þó meira um að kenna. Út af þessum ummælum reis upp einn Stórdani, sem hefir verið þingmaður áður, en féll við síðustu kosningar. Maður þessi var Schack höfuðsmaður; hann hefir verið foringi á varðskipinu hér fyrir nokkrum árum og gat sér þá góðan orðstír. Þingmenn héldu honum þá veizlu hér. Sem þingmaður kom hann mjög óviturlega fram í vorn garð. Nú reis hann upp með þjósti miklum og kvaðst ekki geta hlustað á það, að Danir séu hafðir fyrir rangri sök. Landvarnarflokkurinn, sem sé minn flokkur, hafi nýlega ályktað að gera skilnað við Dani. Eg rói þar sjálfsagt undir, eins og minn sé vandi. Þessu mátti ekki vera ómótmælt. Símskeytið um fundarályktun Landvarnar hafði staðið í »Nationaltidende«, meðan eg var yfir á Englandi og eg hafði enga hugmynd um það. Eg sagði að minn flokkur héti ekki Landvarnarflokkur heldur Sjálfstæðisflokkur. Eg geti ekki sagt um, hvað muni gerast, en það sé hugboð mitt, að skilnaðarstefna muni ekki verða ofan á á næsta þingi, heldur muni stefnunni frá 1909 verða haldið áfram. Annað en þetta sagði eg ekki þar og geta þeir Íslendingar, sem á fundinum voru vitnað um þetta. En tilberinn í Kaupmannahöfn hefir rangfært þetta eins og annað. Seinna bætti eg því við, þegar fleiri höfðu tekið til máls, að mér hefði alls ekki komið ræða Schacks höfuðsmanns á óvart, því á þingi í fyrra hefði hann haldið ræðu um Ísland og íslenzkt stjórnarástand, sem hefði verið »lutter Taabeligheder og Uelterretteligheder«. Eftir fundinn kom hann til mín og sagðist vonast til, að eg væri sér ekki reiður. Eg sagði, að hann nyti þess, að eg vissi, að hann hefði ekki talað af neinni illgirni í vorn garð, heldur hefði óhlutvandir strákar látið þessa vitleysu í hann. Daginn eftir sagði einn merkur stjórnmálamaður við mig, að eg hefði ekki átt að vera að svara Schack. Hann gæti vel verið »en flink Röverkaptain«, en hann væri »ganske umulig som Politiker«.
Í sambandi við þetta skal eg minnast á alþýðufyrirlestrana, sem eg flutti á Jótlandi og mér er einmitt fundið til foráttu. Svo stóð á því, að eg sagði einhverntíma við Appel kenslumálaráðherra, er stýrði áður lýðháskólanum í Askov, að mig langaði til þess að sjá þá stofnun, er vér ættum hið bezta til að segja. Hann lét vel yfir því, og bað mig taka þar til máls, ef eg kæmi þar. Eg hét því. Eg fór þangað. Það var mæta vel tekið á móti mér. Eg talaði þar »um daglegt líf á Íslandi« og var látið vel af því. Daginn eftir heimsótti eg Árna Möller í lýðháskóla hans og flutti þar hér um bil sama erindi og var látið vel af því þar líka. Eg flutti þessar tölur mínar undirbúningslaust, og mintist þar ekki neitt á stjórnmál. Hvar er dauðasök í þessu? Eg botna ekki í því! Það skyldi þá vera, að stefnuskrá þessara manna sé, að viðureignin við Dani eigi að vera fólgin í því að berja í borðið hér á Íslandi, og gera harðar og óvægilegar kröfur og hafa ill orð um Dani; annað munu þeir kalla flokkssvik.
Borðið knefum barði
Benedikt, svo hrikti
— — í málrófshjalli.
Eg virði þann Benedikt, sem þetta var kveðið um, en það lítur út fyrir, að um þennan nafna hans megi kveða þetta með miklu meiri sanni.
Þessar 8 eða 9 dauðasyndir eru nú orðnar harla léttvægar. Þær eru ekki annað en fyrirsláttur, yfirdrepshjóm og átyllureykur. Hinni sönnu ástæðu er leynt, það þykir ekki henta að hafa hátt um hana.
Þá skal eg snúa mér að nágranna mínum, virðulegum fyrri þm. S.-Múl (J. J.) og þurfti hann tvær klukkustundir og 8 mínútur, en eg skal að minsta kosti reyna að vera hálfu stuttorðari. Eg var fyrst að hugsa um, hvort ræðumanni væri alvara eða gaman og eg veit það ekki enn, hvort heldur hefir verið. Í þessu sambandi þá duttu mér í hug nokkrar alkunnar alþýðuvísur, er nefnast öfugmælavísur. Þar í eru meðal annara þessar stökur:
Eitur er gott í augnarann,
ýrt með dropa feitan.
Það er holt fyrir þyrstan mann
að þamba kopar heitan.
Í eld er bezt að ausa snjó,
eykst hans log við þetta.
Gott er að hafa gler í skó
þá ganga menn í kletta.
Séð hef eg kapalinn eiga egg,
álftina folaldssjúka.
Úr reyknum hlaðinn vænan vegg,
úr vatninu yst er kjúka.
En þetta kemur mér í hug af því, að hann hafði sýnilega vandað sig og eytt löngum tíma til þess að setja eintóm öfugmæli, eintóma ranghverfing á sannleikann, að svo miklu leyti sem það var ekki áður saman sett af sannleiksmáltólunum þeirra félaga í minni hlutanum. Mikið af því mun hafa verið þaðan. Hann byrjaði ræðu sína á því, að leggja út af gerðum mínum í Danmörku, og studdist þar að vanda við það sem tilberinn í Kaupmannahöfn hafði skáldað og staðið hafði í sannleiksmáltólunum hér. En þar var eins og ávalt hverju orði umhverft og var því auðvelt fyrir virðulegan þm. að bera fram eintóm öfugmæli, rangfærslur og vitleysur.
Ummæli hans út af návist minni á Atlantshafseyjafundinum voru hin sömu hér um bil og félagi hans hafði, sá er á undan honum talaði, og hefi eg svarað þeim. Sama er að segja um botnvörpusektamálið.
Þá er næsta dauðasökin, að eg hafi farið með bankamálið fyrir danska dómstóla. Það á þá að vera glæpur, að leita réttar síns lögum samkvæmt alt til hins æzta löglega dómstóls! Eg vil ekki hafa hörð orð, en eg vil að eins spyrja virðulegan 1. þm. S.-Múl. (J. J.), ef hann tapaði máli, sem næmi 20 þús. kr. og lögfróðir menn segðu honum, að hann mundi vinna það í hæstarétti, mundi hann þá ekki áfrýja því? Hér stendur svo á, að dómarar geta ekki verið óhlutdrægir. Eg veit, að það mun þykja ókvæði að segja slíkt um þá, en þeir munu vera rammir flokksmenn og úr þeim ham geta þeir ekki farið; það væri að gera þá að meira en ofurmennum og mikilmenskujötnum; það væri að gera þá að englum. Enginn segir, að þeir geri það vísvitandi, en máttur venzla og flokksofstækis er svo mikill að þeir fá alls ekki við ráðið, hvað fegnir sem þeir vilja.
Eitt atriði, sem hann fann að, var það, að eg hefði verið þriðjung ársins í Danmörku, og að eg hafi undirbúið stjórnarfrumvörpin þar. Eins og það hafi ekki verið oft áður og ekki þótt nein óhæfa, og því síður er það aðfinsluvert eða hægt að gera númer úr því, þegar kunnugt er, hvernig á því stóð. Það er vitanlega hægt að vinna Íslandi til þarfa í Danmörk og ekki sjálfsagt að Ísland þurfi að hljóta ilt af því að stjórnandinn sé þar fleiri vikur en brýn þörf er á. Annars eru undarleg þessi óp heimastjórnarmanna um að ekkert sé hægt að gera nema á Íslandi, en þeir gæta ekki að því, hvort hér séu betri tæki en þar til að vinna, gá ekki að því, að í Danmörku eru menn eins og á næsta bæ við allan heiminn um allar skýrslur og gögn. Úr því eg nefndi heimastjórnarmenn á nafn, sem gárungarnir eru nú farnir að kalla heimskustjórnarmenn eða Hafnarstjórnarmenn, þá er nógu gaman að geta þess, að um það nafn hjálpaði maður flokknum fyrir 10 árum, maður, sem nú er utan flokka og ekki hér á landi, til þess að þeir gætu blekt þjóðina á sér. Þessu nafni þeyttu þeir út um alt land, og sögðu það markmið heimastjórnarmanna að fá ráðgjafann hingað heim, en þá sem meira vildu fá, nefndu þeir Hafnarstjórnarmenn. En eg vil kveða upp úr um það, að meiri Hafnarstjórnarmenn séu ekki til í þessu landi en einmitt helztu menn úr andstæðingaflokki vorum. Hjá þeim er alt bundið við Kaupmannahöfn og Danmörk. Eftir að ráðherrann kom hingað heim, voru þessir Hafnarstjórnarmenn þektir að því, að þeir vildu láta ræða íslenzk mál í dönskum blöðum. Dönsk blöð tóku því þegar að hlaða því óskapa lofi á ráðherrann, sem þá var, að ekki varð annað en brosað að. Þau gerðu fyrirrennara minn að slíku ofurmenni og þeim snilling, að þeir sem til hans þektu gátu ekki annað en hlegið að: En alt var undir því komið, að hann væri í góðu áliti þar. Þetta tókst þeim líka. Það kviknaði í Danmörku á honum nokkurs konar átrúnaður. Hann varð þar að reglulegu átrúnaðargoði. Til þessa stuðlaði líka bardagaaðferð vor andstæðinga hans, sem þá voru. Þeir mæltu aldrei misjafnt orð í hans garð þar. Þeir höfðu sem sé sett sér þá meginreglu í upphafi, að varast að minnast á hann annarstaðar en í innlendum blöðum. Heima ætluðum við að bítast, en ekki rægja hann erlendis. Hinir vissu, að alt mátti segja Dönum, enda alt gert sem hægt var til þess að hann fengi vinsældir í Danmörku. Árangurinn varð líka sá, að vinsældir hans þar í landi héldust alla hans tíð. Það þarf ekki lengra að fara en í síðustu kosningabaráttu, 1908. Þá bar það varla til, að ef hans flokkur beið ósigur á kjörfundum, að þess væri getið í dönskum blöðum. Það voru þá einhverjir landar í Kaupmannahöfn, sem vildu segja frá því, að hans flokkur hefði ekki alt af sigur. En blöðin tóku það ekki. Ritzau tók það eitthvað einu sinni. Þegar komið var með meira næst af sams konar fréttum, vildi hann ekki taka það. Hann sagði eitthvað á þessa leið: »Blessaðir verið þið, þessu hafa danskir blaðalesendur ekkert gaman að«. Svo þegar hann vann sigur í sínu kjördæmi, þá leit það út í dönskum blöðum, eins og hann hefði sigrað um alt landið, og úr þeim sigri var gert þetta voða númer, að ég er viss um, að vel hefði lánast að telja mörgum dönskum blaðalesendum trú um, að það kjördæmi væri sama sem alt eða mest alt landið. Kynni Dana af landinu eru nú ekki meiri en svo. Þeir þekkja ekki þessa eyju eða þennan hólma öðru vísi en í spéspegli. Þegar eg var á Jótlandi í vetur, sagði eg fólki til gamans sögur um vanþekkingu Dana á Íslandi. Þeir voru alveg hissa, að nokkru sinni hefði verið til svo vitlaust fólk. Eg sagði þeim sögu af amtmannsfrú einni, sem hefði ætlað til Íslands, og heimsótti vinkonu sína til að kveðja hana, og var þá spurð: »Ætlið þér landveg til Íslands eða sjóveg?«. Þetta er sönn saga. Hér lifir enn í bænum merkiskona, dóttir hennar, sem mér hefir sagt þetta. Margar fleiri sögur sagði eg. Ein var sú,að nýlega hefði kona í Kaupmannahöfn spurt Íslending að því í samkvæmi, hvort þeir skemtu sér ekki, þegar gott væri veður á kvöldin og tunglsljós, við að róa í kring um eyna! Þegar menn hafa svona hugmyndir um landið, þá er ekki að undra, þó hægt sé að koma inn hjá þeim misskilningi.
Þessi regla, sem eg gat um áðan að fylgt hefði verið af andstæðingunum í tíð fyrirrennara míns, var óðara lögð niður og skift var um ráðherra. Þá var farið að fylla dönsk blöð með látlausu níði og rógi um mig og minn flokk. Og það stafaði frá mönnum í hinum flokknum. Eg segi ekki að það hafi verið þingmenn eða helztu menn flokksins, þótt það sé hyggja mín, að þeir hafi haft þar sumir hönd í bagga með. Það er t. d., að þegar rétt var að því komið að eg yrði ráðherra, safnaði maður í Kaupmannahöfn úrklippum úr dönskum blöðum með verstu skömmum um mig, allstórum bunka, og sendi á mjög háan stað, sem eg hirði ekki að nefna. Það átti víst að bæta fyrir mér, að eg næði í ráðherraembættið. En sá sem við tók var ólíkur þeim sem sendi. Hann las aldrei það sem í umslaginu var, ekki nokkurn staf; hann hafði þann viðbjóð á slíkri bardagaaðferð.
En svo eg snúi mér að meiri háttar máli, nefnilega landsbankamálinu, þá geri eg ráð fyrir, að öllum sé kunnugt hvenær hófst rannsókn á hag landsbankans. Það var undir þinglok 1909. Hún hófst lögum samkvæmt, eftir þeim lagastaf, að landsstjórnin mætti þegar henni þóknaðist láta rannsaka allan hag landsbankans. Þessa hefir ekki verið getið, hvorki hér í deildinni eða hinni deildinni. Það hefir líklega ekki þótt hlýða af þeim manni, sem þá tók til máls. Móti þessari ráðstöfun stjórnarinnar var þá þegar hafin mótspyrna, hvort hún hafi stafað af því, að ? af bankastjórninni voru nánustu venzlamenn fyrverandi ráðherra eða af öðrum ástæðum, það skal eg ekkert um segja. En eg og aðrir höfðu haft spurnir af, að ýmislegt væri þannig í stjórn bankans og starfrækslu, að ekki mundi vanþörf á að framkvæma þessi fyrirmæli laganna, því fyrirmæli eru það, þótt orðuð séu sem leyfi. Til þess var skipuð 3 manna nefnd — verkið fljótlegra fyrir 3 heldur en 1 eða 2. Í nefndina voru skipaðir 3 valinkunnir sæmdarmenn og eins fróðir um peningamál og frekast var kostur á hér. Út af þessu var þá undir eins vakinn geysiþytur á þingi, margar ræður haldnar, mörg digurmæli töluð og skáldleg orð. Mikið talað um háska þann, sem bankanum. væri stofnað í með þessu, o. s. frv. Átti með þessu að bæla niður rannsóknina með þinglegu ofríki og láta hætta við hana.
Því hefir verið haldið fram hér í dag með óskiljanlegu áræði, að bankanum hafi verið stofnað í háska með þessari ráðstöfun, bæði utan lands og innan, en á það hefir ekki verið minst einu orði, hvaða háski hefði getað stafað af því, ef bankinn hefði verið látinn óskoðaður, ekki betra orð en fór af stjórnseminni og reglunni þar. Eg leit svo á, að það væri einkaskilyrði fyrir því, að bankinn kæmist í gott álit aftur, að svona skoðun færi fram. Reyndist þessi orðrómur um ólagið á ónógum rökum bygður, þá var betra að það kæmist upp, heldur en að óorðið héldi áfram. Hvernig sem á þetta mál var litið, þá var það sjálfsagður hagur fyrir bankann, að þetta væri gert, enda var fjöldi manna og allir óvilhallir sæmilega greindir menn á því. Auðvitað urðu nánustu vinir og vandamenn bankastjórnarinnar óðir og uppvægir, töluðu um, að þetta væri pólitísk hlutdrægni af mér og að eg væri að steypa bankanum í óálit utan lands og innan. Mótstaða þessi var að sjálfsögðu að vettugi virt, enda sýndi það sig, að engin vanþörf var á þessari skoðun. Niðurstaða rannsóknarnefndarinnar sýndi það bezt. Það fór líka svo, að ekkert vantraust kviknaði á bankanum, hvorki utanlands né innan, nema hvað nokkrir menn, sem eg hefi áður sagt um, að hafi verið flokksmenn andstæðinga minna, reyndu að gera hræðsluaðsúg að bankanum með því að bera út mestu öfgar um, hvað mikið væri tekið út úr honum og fá menn til að taka fé sitt úr honum. Nokkrir fóru ef til vill sjálfkrafa, það skal eg ekki um segja, en yfirleitt reyndust lítil brögð að úttekt úr bankanum.
Einn mikilsháttar embættismaður úr andstæðingaflokknum sagði fyrsta kveldið eftir nefndarskipunina, að búið væri að taka úr bankanum 90 þúsund krónur. En það var ekki nema sem svaraði 9—10 þús. Þessar taumlausu ýkjur áttu auðvitað að ýta undir almenning til að taka fé sitt úr bankanum, og ef þessu hefði verið trúað, mátti mynda hræðsluaðsúg að honum. Jafnvel einn af bankaþjónunum, sem fylti flokk andstæðinganna, var á þönum út um bæinn í bankatímanum með frásögur um það á strætum og gatnamótum hvaða óhæfu væri verið að gera, hvílíka ósvífni hinn nýi ráðherra væri að fremja og að verið væri að steypa bankanum á höfuðið. Og þetta var hann að gera í miðjum starfstíma bankans. Eg býst auðvitað við, að það hafi verið að fornspurðri bankastjórninni, en hún hefði átt að hafa eftirlit með því, að bankaþjónarnir væru ekki burtu í starfstímanum. Og það lægi því miklu nær að ímynda sér, eg segi ekki að svo hafi verið, að þetta væri gert með ráði einhvers úr bankastjórninni — manninum hafi verið gefið frí í því skyni. Þetta starf var svo rekið ósleitilega í nokkra daga, þangað til tókst að bæla niður og eyða allri hræðslu. Það hefir verið sagt hér í dag, að andstæðingarnir hafi líka gert sitt til að girða fyrir að aðsúgur yrði gerður að bankanum. Eg trúi vel, að það sé satt um þá suma hverja, en það er ekkert til að hrósa sér af. Það hefði verið ósæmilegt og ósvífið, ef þingmenn hefðu stutt að því, að aðsúgur væri gerður að bankanum; til þess urðu nógir aðrir menn og þeir unnu óspart. En árangurinn varð minni en ráð var fyrir gert.
Einhver þingmanna sagði það nýlega, að ráðherra hafi verið knúður til þess af sínum flokki, að gera yfirlýsingu á þinginu síðast til að bæla niður aðsúginn. En þetta er bara venjulegur skáldskapur, eins og vant er úr þeirri átt.
Eg skal nú fara fljótt yfir sögu og víkja til dagsins, sem bankastjórninni var vikið frá um stundarsakir. Margir hafa talað um það, að það hafi verið gert mjög sviplega. Sú skröksaga jafn vel búin til, að bankastjóranum hafi ekki verið leyft að ljúka við að skrifa undir útgjaldaskipun að víxli. Það hefir líka verið talað um það, að þeim hafi ekki verið gert viðvart um það, að það ætti að víkja þeim frá. En það er ekki vanalegt, að starfsmönnum og embættismönnum sé gert viðvart um það áður. Það þykir ekki hlýða að ónýta þannig ráðstafanir stjórnarinnar. Allir vita hvernig hefði farið, vinir bankastjórnarinnar hefðu safnað liði í skjaldborg umhverfis bankann og aftrað afsetningunni. Einn ódæmavirðulegur þingmaður kvað hafa raupað af því nýlega, að hann gæti fengið »karlana« til að gera hvað sem vera vildi, jafnvel að ráða núverandi ráðherra af dögum. Ef slíkur maður hefði verið viðstaddur þann dag, mundi hafa verið fylkt liði í kring um bankann og aftrað því, að skipanir stjórnarinnar væru framkvæmdar (um frávikning bankastjórnarinnar um stundarsakir). Að frávikningin hafi verið um stundarsakir, sést í tilvitnaðri lagagrein í bréfi stjórnarráðsins; það var látið duga að vísa til hennar. Þetta segi eg af því að mér hefir verið borið á brýn, að eg hafi látið málafærslumann lýsa því yfir í sóknar- eða varnarskjali, að frávikningin væri fyrir fult og alt. Eg hefi aldrei haldið öðru fram, en að frávikningin hafi verið um stundarsakir. Og úr því að ekki var gert það sem fyrirhugað var um eitt skifti, að hleypa gæzlustjórunum að um nýárið, þá hlaut frávikningin að standa um ótiltekinn tíma, jafnvel fram til þings.
Eg skal geta þess til dæmis um, að frávikning um stundarsakir getur staðið lengi nokkuð, að fyrir mörgum árum var einum sýslumanni hér á landi, merkismanni að öðru leyti, vikið frá embætti fyrir peninga vanskil, og stóð sú frávikning um tvö ár. Það getur því ekki verið nein óhæfa þó frávikning gæzlustjóranna standi á annað ár. Eg skýrði frá því á fundi í Ed. fyrir nokkrum dögum, hverjar voru ástæðurnar til þess að stjórnin hvarf frá því áformi að setja hina fráviknu gæzlustjóra aftur inn um áramótin. Vitanlega hafði traust stjórnarinnar til þeirra ekki vaxið, hún vissi að þeir myndu halda uppteknum hætti, en um nýárið áttu að verða bankastjóraskifti, og var þá nokkur trygging fengin fyrir því að þeir mundu ekki vinna bankanum tjón, enda myndi rannsókninni þá að mestu lokið. Var það því áform stjórnarinnar að láta þá aftur taka til starfa um nýár, en frá því var horfið eftir ráðum dönsku bankamannanna. Sumir hafa legið stjórninni á hálsi fyrir að taka við þessum bankamönnum og leyfa þeim að rannsaka bankann. En það var ofur eðlilegt að Landmandsbankinn í Khöfn, sem átti um eina miljón hjá Landsbankanum, vildi sjá það með eigin augum, ef svo mætti segja, hvort bankinn, eftir margra ára meingallaða stjórn, væri eigi orðinn svo illa staddur, að réttast væri að slíta sambandinu við hann. Það var ekkert vit í því að amast við þessum mönnum. Hefði stjórnin neitað þeim um að rannsaka bankann, þá gat litið svo út, sem stjórnin áliti ástandið svo slæmt, að ekki væri rétt að þeir fengju að kynna sér það, og þá hefðí Landmandsbankanum auðvitað orðið tífalt annara um að senda mennina, og jafnvel fleiri. Samt gera andstæðingar mínir það að dauðasök, að eg leyfði þetta. Það hefði verið miklu fremur dauðasök, ef eg hefði neitað um það, og líklega hefðu andstæðingar mínir legið mér á hálsi fyrir það, þó þeir segi annað nú. Bankanum gat stafað hætta af því, ef rannsóknin hefði ekki verið leyfð, og var því sjálfsögð skylda stjórnarinnar að leyfa hana. — Ástæðan til þess að stjórnin hætti við að setja gæzlustjórana að aftur um nýár,var sú, að er þessir dönsku bankamenn heyrðu að það væri í ráði, þá sögðu þeir, að ef það yrði gert, yrðu þeir að leggja það til við umbjóðendur sína, að slitið væri þegar í stað viðskiftasambandi Landmandsbankans við landsbankann, og þetta merkti það, að láninu hefði verið sagt upp fyrirvaralaust og gengið eftir skuldinni. Landsbankinn hefði þá óhjákvæmilega orðið gjaldþrota. Það var til að afstýra þessari hættu, að gæzlustjórunum var ekki hleypt að bankanum aftur. Er eg skýrði frá þessu í Ed. reis upp annar gæzlustjórinn þm. Borgf. (Kr. J.) og lýsti þetta ósannindi. Það er leiðast hans vegna, því eg get sannað, að hann ber mér saklausum ósannindabrigzl. Eg hefi hér vottorð þriggja manna um það, að þetta er satt, og skal eg leyfa mér að lesa það upp fyrir háttv. deild. Það er á þessa leið:
»Vér undirskrifaðir vorum heyrnarvottar að því að hinir dönsku bankastjórar, er hér komu í fyrra vetur til að rannsaka ástand landsbankans, sendir af stjórn Landmandsbankans í þessum erindum, sögðu svo rétt áður en þeir sneru heimleiðis, að ef hinir gömlu gæzlustjórar, er hafði verið vikið frá um stundarsakir 22. nóv. 1909, yrðu látnir taka við því starfi aftur eftir áramótin, svo sem heyrst hefði ávæningur um, þá teldu þeir, hinir dönsku erindrekar, sér skylt að leggja það til við sína umbjóðendur, stjórn Landmandsbankans, að slitið væri þegar í stað viðskiftasambandi hans, Landmandsbankans, við landsbankann í Reykjavík.
Reykjavík 23. febr. 1911.
Ó. G. Eyjólfsson. Björn Kristjánsson. Björn Sigurðsson.«
Þetta, að Landmandsbankinn vildi kynna sér ástand þessa viðskiftanauts síns, stafaði meðfram af því að því hafði verið komið í dönsk blöð, að frávikningin væri sprottin af pólitískum fjandskap ráðherra við bankastjórann fyrverandi, að ráðherra væri hatursmaður hans út af stjórnmálum. Hinir dönsku bankamenn sannfærðust undir eins um það, að þetta var algerlega ósatt; að í þessu máli hefðu engar pólitískar hvatir ráðið, heldur hefði frávikningin verið alveg nauðsynleg. — Hér lifðu andstæðingar stjórnarinnar lengi á því, að dönsku bankamönnunum hefði verið lagt svo fyrir, að tjá eingöngu umbjóðendum sínum, hvernig ástand landsbankans væri. Þetta var satt, enda ofureðlilegt. En fyrir því var það, að þó mér og öðrum væri kunnugt um niðurstöðu þá, er þeir komust að með rannsókn sinni, þá var oss meinað að gera hana heyrinkunna; við urðum að þegja og þagað hefi eg til þessa dags, þó oft hafi verið mikil freisting til að tala. Bankamennirnir komu til Hafnar í janúar og var skýrsla þeirra samin í þeim mánuði og send stjórn Landmandsbankans. Er hún hafði lesið skýrsluna var hún stjórninni hér algerlega samdóma um, að frávikning bankastjóranna hefði verið nauðsynleg til að forða bankanum frá því að sökkva enn dýpra niður í fenið. Síðan var skýrslan lokuð niður nema hvað nokkrum dönskum fjármálamönnum meiri háttar var leyft að sjá hana í trúnaði.
Það hefir verið borið fram hér að stjórnin hafi með aðgerðum sínum í landsbankamálinu spilt trausti bankans erlendis. En þetta er gersamlega rangt. Traustið á bankanum varð einmitt meira eftir en áður, og er það meðal annars skoðunargerð hinna dönsku bankamanna að þakka. Hitt mun og sannara að veila hafi verið orðin á trausti til bankans meðan hin gamla bankastjórn réð fyrir honum. Því eyddi hin nýja landstjórn með því að vera svo röggsamleg, að skipa nýja stjórn við bankann. Hitt er annað mál, að verið getur að kaupmenn, einkum smákaupmenn hafi haft minna traust í Danmörku hin síðustu missiri en áður, en það stendur ekkert í sambandi við bankamálið. Þess hefir verið farið á leit hvað eftir annað við stjórn Landmandsbankans, að stjórnin fengi að sjá skýrslu umboðsmanna hennar, hinna dönsku bankastjóra, sér til varnar hér gegn látlausum rógi og ofsóknum. En það var ófáanlegt þangað til fyrir fám vikum, að eg fann sjálfur að máli hinn unga bankastjóra, Emil Gluckstadt, er tekið hefir við af föður sínum. Og gerði hann það loks fyrir mín orð að senda skýrsluna hingað og leyfði að hún yrði gerð kunn væntanlegri rannsóknarnefnd á þingi. Nú er skýrslan hingað komin, hvort sem það gleður andstæðinga mína eða ekki. — Eg held að virðulegur andmælandi minn og nágranni minn hér í deildinni (J. J. S.-M.) hafi hnýtt því aftan við lýsingu sína á bankafarganinu að síðan stjórnarskiftin urðu við bankann hafi starfræksla hans verið dýrari, og bætti við að það hafi verið með mínum ráðum gert eða með minni vitund. Eg skal að eins svara því, að það er hlutur, sem stjórninni kemur ekkert við, hún hefir ekkert vald til að blanda sér í það, hversu marga starfsmenn bankinn hefir eða því um líkt; þar um er bankastjórnin einvöld, enda veit hún bezt, hversu mikið lið þarf til starfrækslu bankans. Hitt er annað, að stjórnin getur vítt það, ef henni virðist óþörf eyðsla höfð í bankanum í þessu efni. Annars geri eg ráð fyrir, að starfsmönnum bankans verði fækkað, þegar búið er að koma lagi á það sem aflaga hefir farið. En það munu allir skilja, að það er meira en tilvinnandi að hafa nógu marga menn til að vinna nauðsynjaverk, heldur en láta þau fara í ólagi.
Því næst kom andmælandi minn að botnvörpusektamálinu. Um það þarf eg ekki að fara mörgum orðum, því það mál hefi eg rakið áður. Það er uppvíst orðið, að Hannes Hafstein, fyrverandi ráðherra, hefir sama sem gert samning við fjárlaganefnd fólksþingsins danska um sektirnar. (Hannes Hafstein: Ósatt!) Það þýðir ekki hót að neita því. Danskir embættisbræður hans sögðu svo frá, að samkomulag hefði á komist um það mál, og samningur og samkomulag þýða í þessu sambandi nákvæmlega hið sama. Danir skoða það svo sem þetta hafi verið samningur, og álíta það samningsrof að láta ekki athugasemdina um botnvörpusektirnar standa í fjárlögunum.
Eitt var það ámælisefnið, ein dauðasökin, að eg á að hafa við flutning málsins um þingfrestun þagað yfir því, að aðalástæðan væri sú, að eg vildi losna við konungkjörnu þingmennina. Það á nú að vera glæpur, dauðasök. Virðulegur andmælandi hrópaði það hvað ofan í annað, hástöfum, að þetta og þetta eitt væri nóg til að ráða mig af dögum. Þegar átyllurnar eru litlar, þá er bara að hafa þær nógu hátt! Hann fullyrðir að þetta hafi verið aðalástæðan fyrir því, að eg æskti þingfrestsins. Eg mætti ef til vill benda honum á, að eg hefi ekki alls fyrir löngu rætt það mál — um skipun nýrra kgk. þingmanna — í bréfi til flokksmanna minna, og eg geri ráð fyrir að hann verði að játa að eg hafi ekki stutt það mál þar, og bendir það ekki á, að eg hafi óskað að losna við þá kgkj. þm. Margir menn úr báðum flokkum létu í ljós, að þeir skoðuðu það stjórnarskrárbrot, ef hinum núverandi kgkj. þm. væri leyft að vera á þessu þingi, en eg áleit mér skylt, að fara í þessu máli eins og öðrum, eftir sannfæring minni, þó hún væri mér í óhag.
Það var eitt málið, sem hann mintist á, sem átti að vera hið glæfralegasta fyrirtæki, sem gert hafði verið á þingi, en það var kaup Thorefélagsskipanna.
Ráðagerð, sem var sama sem samþykt á þinginu, féll á síðustu stundu.
Það átti að hafa verið eitt af mínum glæpaverkum, að hafa mælt fram með kaupunum.
Það var þó ljóst, og má hann muna það, ef hann vill, að með í þessum ráðum voru þeir menn, sem taldir eru hinir fjármálahygnustu menn deildarinnar. Í þeirra augum var þetta gróðavegur og áhætta engin.
Eg tel það nokkuð glæfralegt að fara þeim orðum, sem þingmaðurinn gerði, um þessa hugmynd, og það þó hann vilji ná í mig, svívirða mig á alla lund.
Þá fara að tíðkast breiðu spjótin, ef á að smána menn með gífurlegum brigzlum og aðdróttunum um glapræði út af því fyrirtæki.
En svo bætir hann gráu ofan á svart, er hann fer að lýsa samgöngum Thorefélagsins.
Er annaðhvort svo, að hann er illa fyrirkallaður, eða algerlega sviftur minni, eða hann hygst að geta blekt þingmennina svo gífurlega, að varla þekkjast dæmi til annars eins.
Hann hagar svo orðum, sem eg hafi gert samningana við Thorefélagið eitt, bæði um strandferðir og millilandaferðir og fær svo út úr því, að ferðirnar séu alveg óhafandi.
Er það hrekkjabragð, að hann þegir um að eg samdi einnig við Sameinaða gufuskipafélagið ?
Þetta var óhjákvæmilegt vegna sambandsins við annað fjárveitingavald.
Millilandaferðir tekur Sameinaða gufuskipafélagið að sér, en Thorefélagið annast strandferðirnar.
En Thorefélagið gerir mjög mikið fram yfir skyldu sína. Það fer tuttugu ferðir milli landa auk allrar skyldu og hefir kælirúm í tveimur skipum, og er þetta alt ofanálag ofan á það, sem þingið ætlaðist til.
Ef þingmaðurinn kannast nú við blekkingartilraun sína, þá er hún fyrirgefanleg, en ef hann heldur henni fram enn, þá er hann nokkuð langt fyrir neðan það sem annars er kallað virðingarvert.
Þegar þingmaðurinn er að reyna að telja mönnum trú um, að Thorefélagið sé bundið samningi um þessar millilandaferðir, þá er það svo hrekkvíslegt, að enginn mundi trúa því að óreyndu, að nokkur þingmaður leyfði sér slíkt.
Allir vita að Sameinaða gufuskipafélagið annast millilandaferðirnar.
En þingmaðurinn lýsir því svo, að Thorefélagið fari þessar 20 millilandaferðir til þess að fullnægja kröfum síðasta alþingis (1909) um slíkar ferðir. Eg veit ekki hvað er hrekkvísara, og taki hann ekki aftur þessa villukenningu sína, þá lízt mér svo á, að tilraun sé gerð hér til að blekkja menn og er það afar vítavert, svo vítavert að stórhneyksli er að.
Landsstjórninni var heimilt að semja um ferðirnar til 10 ára, ef mun betri ferðir fengjust.
Nú fengust þær, og það mun betri en hægt var að búast við.
Tuttugu millilandaferðir í ofanálag, nokkrar (4) ferðir til Hamborgar, tvö kælirúm og margt annað.
Þá flutti hann langt mál um afskifti mín af fjármálum við frakkneskt peningafélag, en það var sú botnleysa frá upphafi til enda, og brigzlasamsull, sem engin leið er að greiða úr á skömmu bragði.
Í allri þessari vitleysisflækju var sama sem ekkert satt orð eða rétt.
Hann bar það fram, að eg hefði fengið frakkneskt tilboð um peningalán hinn 23. febrúar 1909 eða löngu á undan Hafnarferð minni. Þetta eru helber ósannindi. Eg lýsi manninn helberan ósannindamann að þessu.
Þó hann hafi ef til vill lesið um þetta í einhverju ósannindamálgagni þeirra félaga í minnihlutanum, þá er það honum ekki til afsökunar; hann er vísvitandi ósannindamaður að þessu, er hann hefir annað fyrir sér, og það er ekki til neins að hrópa eða þræta.
Þessu tilboði átti eg svo að hafa haldið leyndu af undirferli, og hætt við að sinna því eftir Hafnarferðina. Í Höfn á eg að hafa komið mér í samninga við banka, sem Thorefélagið stóð í samningum við.
Hér eru nýjar getsakir, nýr rógburður og annað ekki.
Eg samdi ekki við Handelsbankann einn saman, heldur ásamt tveim öðrum bankastofnunum, sem sé Landmandsbankann og Privatbankann. Og stóðu þessir samningar ekki í neinu sambandi við Thorefélagið.
Önnur umsögn í ósannindasamsetningnum snerti Sif, Samvinnufélag íslenzkra fasteigna, félag, sem ætlaði að ná sér í frakkneskt fé til slíkra bankastofnana hér, og lána það út á annan veðrétt í íslenzkum fasteignum. Þar var höfð í ráði lántaka handa landsjóði. Hann segir að eg hafi í upphafi verið þessu félagi hlyntur, en síðan snúist á móti því. Þá vefur hann hér saman franska tilboðinu, sem aldrei var til, og verður ekki heil brú í neinu, er hann segir.
Um þetta franska tilboð, sem altaf er klifað á, veit eg þetta frekast:
Maður einn hér þykist hafa umboð frá frakkneskri peningastofnun, til þess að semja um lánveitingu, en þetta umboð hefir aldrei sést, og eru menn hér löngu komnir að þeirri niðurstöðu, að það muni aldrei hafa verið annað en reykur.
Með fyrstu trúðu ýmsir á það. Eg gat ekki sint því, þar sem aldrei fékkst að sjá neinar heimildir, og hefði ekkert vit verið í að draga sig eftir öðru eins út í tóma óvissu, en að svo komnu skal eg ekki fara lengra út í þá sálma.
Þá er hann með aðdróttun um, að eg hafi sent son minn til Lundúna, er einhverjar féfangadyr hafi opnast þar, í því skyni, að við hefðum báðir hagnað af því.
Hann skýrir svo frá, að sonur minn hafi átt að verða forstjóri fyrir væntanlegum enskum banka. En það sem eg veit frekast um það mál er, að hann og annar málfærslumaður hér áttu að verða lögfræðislegir ráðunautar fyrirhugaðs ensks félags, sem ætlaði ef til vill að ráðast í ýms fésýslufyrirtæki hér á landi, þar á meðal jafnvel bankastofnun. Annars var þetta alt svo mikil vitleysuþvæla hjá þm. (J. J. S.-Múl.), að eg treysti mér ekki til að botna í henni. Séu orð hans svo að skilja, að eg hafi hér haft í frammi gróðatilraun fyrir mig eða mína, þá lýsi eg hann helberan ósannindamann.
Eg minnist þess, að þegar Thoremálið var á ferðinni á þingi (1909), að þá var sagt, að sonur minn ætti að fá 20 þús. kr. fyrir að koma samningum á, og svo átti eg auðvitað sjálfur að njóta einhvers ágóða um leið!! Sonur minn átti aldrei frekara við það mál, en að hann var umboðsmaður Thorefélagsins hér, og hafði verið árum saman, og sem slíkur stóð hann fyrir samningum fyrir þess hönd. Það er alt og sumt. Þess konar svívirðilegum aðdróttunum þykist eg eiga heimting á að mótmæla, hvort sem til nokkurs er eða ekki.
Eg ætla ekki að eyða mörgum orðum í að svara brigslum þeim í minn garð, sem hér hafa komið fram út af ósannindaskeyti, sem eg á að hafa sent til danskra blaða um uppþotsfundinn, sem haldinn var við ráðherrabústaðinn í fyrra vetur, viku eftir frávikningu bankastjórnarinnar. Hið eina skeyti, sem eg hefi sent um þetta uppþot, var til íslenzku skrifstofunnar í Kaupmannahöfn, til þess að hún hefði í höndum rétta frásögn af því sem þar gerðist, og gæti vísað á bug þeim ósannindasamsetningi, sem eg gekk að vísu, að minnihlutablöðin mundu síma til útlanda, eins og líka raun varð á. Öllum er kunnugt, að til uppþots þessa var stofnað með miklum viðbúnaði til þess að hrópa mig niður fyrir frávikningu bankastjórnarinnar. Ýmsir höfðingjar voru þar með hróp og köll. Einn af aðalforingjum andstæðinga minna stóð að baki annars manns, ónefnds blaðamanns þeirra félaga, og grúfði sig þar niður þegar hann æpti: Niður með ráðherrann. Hann fyrirvarð sig fyrir það. Leikslok urðu þau, að úr öllum þessum ópum og bölbænum varð það, sem á útlendu máli er kallað »Ovation« eða samfagnaðaróp, er yfirgnæfðu margfaldlega hin hrópin. Eg veit, að andstæðingar mínir hafa borið á móti þessu og látið málgögn sín segja, að eg hafi verið hrópaður niður. En það er gagnstætt öllum sannleik og hægt að leiða mörg vitni að því. (H Hafstein: En askan?). Mér þykir leitt, að þurfa að líta svo smáum augum á foringja andstæðinga minna, er hann ætlar að fara að nota svo lélegt og hlægilegt atvik, að maður henti einhverju dusti (Allehaande) í annan mann, hafa það að vopni hér í þingsalnum. Mál hefir risið út af þessu og svardagar orðið um það. Maðurinn þótti svara villandi fyrir réttinum eða þegja yfir einhverju ómerkilegu atviki, svo að stjórninni þótti rétt að höfða mál. Það sýnir, að hér er ekki feitan gölt að flá, er lotið er að svona litlu.
Næsta númer mun vera ráðherrablaðið. Satt að segja er mér ókunnugt um, að mér sé eitt blað fremur öðrum viðkomandi af þeim blöðum, sem minn flokk fylla. Hér mun þó vera átt við það, sem áður var mín eign, en nú annars manns, sonar míns, sem einn ræður hvað í því stendur, án þess að spyrja mig leyfis, og líkar mér það vel, þótt mér geðjist ekki alt af að því, sem hann ritar, eins og eðlilegt er. En þá kastar tólfunum með öfugmælin, þegar þetta blað ekki einungis er eignað mér, heldur á það og að vera og hafa verið hálfu ókurteisara og ósannorðara en máltól minnihlutans. Eg veit ekki betur en hið mikla álit og gengi Ísafoldar sé því að þakka, að ritháttur hennar hefir verið alla tíð miklu betri og vandaðri en í andstæðingablöðunum, og jafnvel öllum öðrum blöðum landsins.
Það sagði einhver í dag, að alment væri álitið um land alt, að eg hefði misbeitt valdi mínu í bankamálinu. Þeir, sem það segja, hljóta að vita, að það er ósatt. Eg hefi fengið úr öllum áttum margfaldar þakkir, og traustsvottorð fyrir þær aðgerðir mínar hefir verið á hvers manns vörum. Það hefir verið þar lýst hið mesta þarfaverk, að stinga á bankakýlinu, sem kallað er. En því gæti eg trúað, að vinir þeirra manna, sem mig bera brigslum, trúi þessu ekki né vilji leggja eyrun að því. Eg verð því að skrifa þetta á öfugmælaskrána, sem skáldið hérna á hægri hlið mér (J. J. S.-Múl.) flutti í dag.
Þá eru andstæðingar mínir svo nærgætnir, að bera mig brigslum fyrir það, að eg mótmælti ekki öllum lygasamsetningi danskra blaða um mig. Gera þeir ráð fyrir að nokkur ráðherra sé eða verði sá skynskiftingur og óviti, að gera sér að reglu að svara öllum ósannindasamsetningi um hann, sem stendur í blöðum hér eða í Danmörku? Eg skil það ekki. Þegar eg kom úr Jótlandsför minni, frétti eg að staðið hefði í blaðinu »Riget« einhver áburður á mig og jafnframt áskorun til mín að mótmæla því, sem mér væri til saka fundið. En ekki var mér sýnd sú kurteisi, að mér væri sent blaðið. Eg fór því til aðalritstjórans, sem eg þekki nokkuð til, og lézt hann hafa sent blaðið í gistihúsið, þar sem eg héldi til, en fyrst það hefði ekki komist til skila, skyldi hann senda það á stjórnarskrifstofuna. Þangað kom það aldrei og hefir ekki ennþá komið fyrir mín augu. Eg gafst upp við að leita að því, enda fanst mér óþarfi að vera að svara þessum einum samsetningi, þar sem úir og grúir af ósannindum og brigslum í minn garð út um alt land.