24.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 750 í B-deild Alþingistíðinda. (1148)
12. mál, vantraustsyfirlýsing og ráðherraskipti
Ráðherrann (B. J.):
Mér finst það ekki rétt, að ætla að kúga menn með þessu valdboði til þess að sitja langt fram á nótt. Eg vil þá heldur stinga upp á, að máli þessu sé slept og umræður skornar niður, svo að virðulegum andstæðingum mínum gefist kostur á að leiða mig þegar í stað á höggstokkinn.