24.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í B-deild Alþingistíðinda. (1156)

12. mál, vantraustsyfirlýsing og ráðherraskipti

Hálfdán Guðjónsson:

Þess vil eg fyrst geta um tillögu þessa til vantraustsyfirlýsingar á ráðherra, að mér þótti það alleinkennilegt, er eg sá hana, að hún skyldi vera litlaus. En svo nefni eg hana af því, að engar ástæður eða átyllur fylgja henni, er hún byggist á. Sjálfsagt þótti mér þá að vænta þess, að talsmenn tillögunnar mundu bæta úr þessu með því að rökstyðja hana rækilega í umræðum sínum, svo að við það fengi hún sterka liti og skýra. Eg hefi nú lengi hlustað á umræður þessar og orðið fyrir fullkomnum vonbrigðum. Þeir hafa auðvitað reynt að koma á hana ýmsum litum. Málararnir hafa komið með sinn litinn hver, en ekki hafa þeir getað orðið á eitt sáttir um það, hvernig þá skyldi nota. Litarblöndunin og litunin hefir því tekist svo óhönduglega, að þar er um ólit að ræða.

Tillögunni mætti líkja við reikningsdæmi með ýmsum stærðum óþektum. Þeir, sem tillögunni fylgja, hafa nú verið að stritast við að afla þessum óþektu stærðum ákveðins gildis. En samkomulagið í þeim tilraunum hefir ekki verið gott. Þar sem einn vildi setja + (plús), vildi annar setja ÷ (mínus). En þrátt fyrir það hafa þeir orðið á eitt sáttir um útkomuna, eins og hvergi hefði á milli borið um gildi hinna einstöku liða. Í mesta bróðerni fá þeir allir út, að um stórt »plús« sé að ræða hæstv. ráðherra til áfellis. Eg býst við, að fleirum en mér hafi þótt þetta einkennileg reikningsaðferð.

Þeir hafa, háttv. fylgismenn tillögunnar, kastað mörgum steinum, svo mörgum, að vænta mætti, að vér sæjum stóra steinadys. En dysin er ekki stór. Steinkastið hefir verið svo einkennilegt. Háttv. tillöguvinir hafa hver í kapp við annan kastað burtu þeim steinum aftur, sem hinir fylgismenn tillögunnar höfðu varpað að. En þrátt fyrir þessar aðfarir þykist eg vita, að þeir muni að lokum standa tengdum höndum og þykjast sjá stóra steinadys, er ríða eigi ráðherra að fullu.

Þessi ummæli mín vil eg styðja með nokkrum dæmum úr ræðum háttv. þingmanna, sem talað hafa með tillögunni. Að fara nákvæmlega út í það, yrði of langt mál, einkum þar sem umræður hafa staðið svo lengi. Verð eg því að láta fátt eitt nægja, þótt mjög margt mætti nefna á líkan hátt.

En áður en eg vík að hinum einstöku atriðum hjá háttv. ræðumönnum, vil eg segja nokkur orð út af einu sérstöku atriði í ræðu háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.). Hann talaði gætilega og skipulega, eins og honum er lagið. Því meir furðaði mig á því, að hann skyldi koma fram með yfirlýsingu um það, að hann hefði viljað og gert tilraun til að koma því til leiðar, að allir þingmenn í flokknum, sem við báðir teljumst til, kæmu sér saman um að samþykkja tillöguna, sem hér liggur fyrir, einnig þeir, sem honum var fullkunnugt um, að voru henni mjög ósamþykkir. Eg skildi orð hans svo, að vér andstæðingar tillögunnar hefðum getað þvegið hendur vorar á þann hátt, að lýsa velþóknun á framkomu ráðherra, en leggja svo til að lokum og ljá til þess atkvæðafylgi, að þessi háttv. deild lýsi yfir vantrausti á honum. Samkvæmnina í þessu skil eg ekki. Og mér er nær að halda, að háttv. þm. skilji þetta ekki heldur, þegar hann hugsar betur um það. Ósamræmið í fylginu við tillöguna virðist nóg, þar sem andstæðir þingflokkar taka höndum saman um hana af gagnstæðum ástæðum, þó að þetta bætist ekki við. Till. er eins og milli tveggja elda. En eldsneytið kemur þeim ekki saman um, tillögumönnum, og verða því til þess að slökkva eldana hverir fyrir öðrum. En eg býst við, að þeir gleypi við tillögunni samt í sameiningu.

Þá vil eg drepa á nokkur atriði til þess að sýna og sanna ósamkvæmnina í röksemdafærslu tillögumanna.

Frummælandi, háttv. þm. N.-Þing. (B. Sv.), talsmaður þeirra manna úr sjálfstæðisflokknum, sem tillögunni fylgja, gat þess, að eitt helzta óánægjuefni þeirra væri afstaða hæstv. ráðherra til sambandsmálsins. Hann byrjaði með að játa það, að enginn einn maður hefði meira að gert en ráðherra til þess að þingkosningarnar síðustu fóru svo, að sambandslagafrumvarpi millilandanefndarinnar var hrundið, en í þess stað samþykt annað frumv., sem betur trygði rétt og sjálfstæði Íslands. Þetta taldi hann ráðherra til gildis. En því næst hélt hann því fram, að ráðherra hefði eigi gengið nógu ötullega fram í sömu áttina síðarmeir. Hann taldi hann hafa dignað í sambandsmálinu. Þá sök virtist mér hann telja þyngsta á hendur ráðherra. Um það má sjálfsagt deila, hvort hæstv. ráðherra hefir í þessu máli gengið skemmra en frekast var fært málinu til sigurs. Því neita eg þó hiklaust, að hann hafi unnið til vantraustsyfirlýsingar fyrir afskifti sín af því máli.

Hvað segir nú talsmaður hins flokksins, háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.), um ráðherra í sambandi við þetta mál? Hann játar það einnig, að enginn hafi ötulli verið í baráttunni móti sambandslagafrumvarpinu en núverandi ráðherra. En hann telur þetta óhappaverk, og svo mun allur flokkur hans gera, og fyrir því sé því betur sem ráðherra sé fyr hrundið úr stöðu sinni. Þar sem frummælandi setur + (plús), setur þessi þingm. ÷ (mínus), þar sem annar þeirra kastar steini að, þar kastar hinn honum burtu aftur. En báðir láta þeir að sama brunni bera að lokum: samþykt tillögunnar. Að samræminu í þessu eyði eg ekki fleiri orðum.

Annað dæmi ætla eg að benda á. Það er þingfrestun að þessu sinni, sem mikið hefir verið rætt um, og þingseturéttur núverandi konungkjörinna þingmanna. Margir litu svo á, að samkvæmt anda stjórnarskrárinnar ættu þeir ekki sæti á þessu þingi, sem er 4. fjárlagaþing á kjörtímabili þeirra. En stjórnarskráin er ekki eingöngu andi. Hún á sér líka bókstaf. Og eftir bókstafnum virtust þeir eiga þingsetu að þessu sinni. Hér varð þá úr að skera stríði milli andans og bókstafsins, sem stundum stíga ónotalega hvor á annars tær. Hæstv. ráðh. hratt hinum konungkjörnu þingmönnum ekki frá þingsetu. Frummælandi ámælir honum fyrir að hafa ekki beitt sér í því máli. Næsti ræðumaður átelur hann fyrir það, að hann hafi viljað fá því framgengt. Sammála virðast þessir háttv. ræðumenn ekki vera. En samt komast báðir að sömu niðurstöðu, að með framkomu sinni hafi ráðherra unnið til vantraustsyfirlýsingar. — Hver getur fundið samkvæmni í þessu? Eg get það ekki.

Þá vil eg drepa á eitt atriði enn í ræðu háttv. frummælanda. Hann gat þess, að samkvæmt þingsályktunartill. síðasta þings hefði mátt vænta þess, að ráðherra legði fyrir þetta þing stjórnarfrumvarp til stjórnarskrárbreytingar, en þetta hefði hann ekki gert Eg skal játa það, að þegar eg sá stjórnarfrumvörp þau, er leggja átti fyrir þetta þing, þá þótti mér leitt að sjá ekki í tölu þeirra frumvarp til stjórnarskrárbreytingar, sem eg hafði fastlega búist við. En þegar eg kom hingað suður, þá sannfærðist eg um, að þetta væri ekki hæstv. ráðherra einum að kenna. Ýmsir flokksbræður hans hér höfðu verið í samráði um þetta, og þeir höfðu fastmælum bundið, að flytja frumvarp inn á þingið eigi að síður, þótt það kæmi eigi sem stjórnarfrumvarp. Þegar eg hafði fengið þessa vitneskju, þótti mér þetta minna máli skifta. Alt þetta var háttv. frummælanda fullkunnugt. Því meiri furða er að hann skuli nú gera þetta að ámælisefni.

Umræður um till. þessa hafa þegar staðið yfir hálfan sólarhring. Verður því að fara fljótt yfir sögur. Áður en eg lýk máli mínu vil eg þó fara nokkrum orðum um ráðstafanir ráðherra um stjórn landsbankans.

Öllum er kunnugt, að það mál hefir valdið meiri hávaða um land alt en nokkurt mál annað á hinum síðari árum. Það skal eg játa, að því máli er eg ekki svo kunnugur enn frá rótum, að eg vilji kveða upp neinn fullnaðardóm um allar framkvæmdir í því. Þessvegna dettur mér ekki í hug að fullyrða að þar geti um engan blett né hrukku verið að ræða á framkvæmdum ráðherra. Eg hefi aldrei gert mér von um það, að sá maður fengist í ráðherrastöðuna, sem svo væri fullkominn að öllu leyti, að ekki væri unt að finna neitt að neinum gerðum hans. Slíkur maður er ekki til. Það eru mér því engin vonbrigði, þó að eg þykist nú sjá það, að einhverjar framkvæmdir hefðu mátt betur fara á annan hátt. — Helzt hefði eg kosið að þurfa ekki að minnast á bankamálið nú þegar, þar sem vænta má að rækilega verði minst á það síðar á þessu þingi. En þar sem sumir af fylgismönnum tillögu þeirrar, sem hér er um að ræða, hafa notað það sérstaklega til að rökstyðja hana með, þá get eg ekki sneitt alveg hjá því.

Mér verður þá fyrst fyrir, að renna huganum að upptökum þessa máls skömmu fyrir þinglokin síðustu, er nefnd sú var skipuð, er rannsaka skyldi hag og rekstur bankans. Minnist eg þess, er rætt var um nefndarskipun þessa í háttv. Ed., að frummælandi þar taldi illa að verið að skipa slíka nefnd og óþarft með öllu, þar sem bankinn hefði jafnan verið í bezta lagi, hefði nálega engu tapað nokkru sinni og að engu leyti verið að stjórn hans fundið. Fullkunnugt er mér ekki um gallana, sem verið hafa á stjórn hans þá. En það er mér ljóst, að ofmælt hefir það verið, að ástæðulaust væri að rannsaka hag hans og rekstur. Til þess að reyna að tryggja mér það, að fara ekki lengra en rétt er, þá ætla eg að byggja á því einu, sem mér hefir skilist, að fyrverandi bankastjórn gefi sjálf í skyn að bankinn hafi tapað um þær mundir eða telur að hann muni tapa. Mun sú upphæð vera 1—2 hundruð þús. kr. Þegar eg auk þess lít á ýmsa galla á stjórn bankans, sem eg nú orðið er sannfærður um, þá blandast mér ekki hugur um, að það hefir verið þörf og nauðsynleg stjórnarráðstöfun, að hrinda því í framkvæmd, að bót yrði ráðin á stjórn hans. Svona fjarri stend eg þeim mönnum, sem telja þessa stjórnarráðstöfun réttmæta ástæðu til að styðja með tillögu þá, sem nú á að greiða atkvæði um.

Eg skal nú ekki þreyta háttv. deild með lengri ræðu. En þetta sem eg hefi sagt, hygg eg að nægi til þess að það sé ljóst, að eg mun greiða atkvæði móti tillögunni, og af hverjum ástæðum ég geri það.