08.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í B-deild Alþingistíðinda. (117)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Kristinn Daníelsson:
Eg held að ummæli hv. frsm. viðvíkjandi þessum vegi hljóti einmitt að vera bygð á misskilningi — eg vil ekki segja hlutdrægni. En eg vil enn þá einu sinni taka það fram, að það kemur ekki upp á, hvað vegirnir eru nefndir, heldur hvað nauðsynlegir þeir eru.