18.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 801 í B-deild Alþingistíðinda. (1171)

95. mál, vantraust á Kristján háyfirdómara Jónsson

Flutningsmaður (Skúli Thoroddsen):

Tilefnið til þessarar þingsályktunartill. eru atburðir þeir, er ný skeð hafa gerst með þjóð vorri.

Eins og kunnugt er, hefir hæstv. núverandi ráðherra (Kr. J.) tekið við skipun sinni sem ráðherra, þótt honum ætti að vera, hlyti að vera og væri kunnugt um það, að meiri hluti þjóðkjörinna þm. var á móti honum, ber ekki traust til hans, þegar hann lýsti yfir því, að hann tæki að sér ráðherrastöðuna.

Flutningsm. þessarar till. líta svo á, að með þessu hafi hæstv. ráðh. brotið þingræðisregluna, sem hingað til hefir verið fylgt hér við ráðherraútnefningar, síðan vér áttum þess kost, að njóta hennar, — bæði 1904 og 1908.

Það er nú öllum kunnugt, hve mikla þýðingu þingræðið hefir fyrir þjóðfélagið. Að það er fyrsta skilyrðið fyrir allri eðlilegri samvinnu milli þings og stjórnar — annars fer það alt í mola — fyrsta skilyrðið fyrir því, að undirbúningur þingmála geti farið fram á heppilegan hátt, og nauðsynleg trygging þess, að störf ráðherra verði leyst þannig af hendi, sem meiri hluti þings og þjóðar vill vera láta og álítur heppilegt. Ef traust þingsins á stjórninni vantar, þá lamar það krafta bæði hennar og þess. Það lamar ábyrgðartilfinningu þm. og áhuga og framsókn þjóðarinnar, þegar sú stjórn situr að völdum, sem meiri hluti þm. þjóðarinnar ber ekki traust til.

Það ríður því í fylsta máta á því, að þess sé vandlega gætt, að landinu sé stjórnað samkvæmt þingræðisreglunni. Og þegar hæstv. núverandi ráðherra tók við útnefningu sinni, þá vorum vér, flutn.m. þessarar till., samdóma um það, að það »gæti fyrirsjáanlega orðið almenningi að tjóni« og »stofnað hag hans í hættu«. Þessi orð eru nú tekin úr ráðherraábyrgðarlögunum frá 4. marz 1904, og sjáum vér eigi annað, en að hæstv. ráðherra hafi framið brot á 1. og 4. gr. þeirra laga. Í þeim greinum felst tryggingin fyrir þingræðinu, því að það er almennings-»tjón« og »hætta« ef því er traðkað.

En nú mun verða reynt að halda því fram, að hér sé þingræðinu alls eigi traðkað, og borinn fyrir réttur konungs, samkvæmt stjórnarskránni. Það er nú að vísu rétt, að þar stendur, að hann hafi vald til þess að velja sér ráðherra. En hér til er því að svara, að öll stjórnarstörf hans hátignar, konungsins, verða að vera framkvæmd á ábyrgð ráðherra, til þess, að þau hafi nokkra þýðingu að lögum, og þá auðvitað líka útnefning ráðherra, jafnt og önnur störf. Jafnvel þegar konungur heldur opinberar ræður eða tekur á móti sendiherrum erlendra þjóða, þá stendur ávalt einhver ráðh. hans við hlið honum, og gefur með því til kynna, að hann taki ábyrgð á orðum hans. Orður og titlar munu vera eina undantekningin frá þessari reglu.

Hæstv. núverandi ráðherra vor er því skipaður á eigin ábyrgð, og hefir sjálfur tjáð sig fúsan til þess að taka við starfanum. Hvað undirskrift hans undir útnefninguna snertir, sem gerð er með símskeyti, verður að líta svo á, að með henni sé framið bæði þingræðisbrot og lagabrot.

Að hans hátign, konungurinn, muni hafa viljað láta þingið ráða, nú eins og 1904 og 1908, sést glögglega af símskeyti hans til mín sem forseta sameinaðs þings 28. febrúar s. 1., er hljóðar svo:

»I Henhold til modtagne Telegrammer finder jeg til Situationens Afklaring heldigt at levne Tid til rolig Fortsættelse af stedfindende Forhandlinger forventer herefter Beretninger om Situationen til min Hjemkomst fra Sverige 11. Marts. Gruppeförerne bedes underrettede herom.

Frederik R.«

Konungur álítur það með öðrum orðum heppilegt, að samningatilraununum verði haldið áfram og óskar frétta um árangurinn af þeim við heimkomu sína frá Svíþjóð þ. 11. Af þessu er það ljóst, að hann hefir ætlast til þess, að þingræðið héldist. Í símskeyti sjálfstæðisflokksins til konungs 12. marz er honum svo skýrt glögglega frá því, hvernig sakir standa. Þar segir svo:

»Nítján af 24 þjóðkjörnum þingmönnum sjálfstæðisflokksins hafa tjáð sig meðmælta Skúla Thoroddsen, sem ráðherraefni.

Auk þess eru tveir ákveðnir flokksmenn, er annar lætur tilnefninguna afskiftalausa, en hinn — ráðherrann, sem frá fer — hefir lýst yfir því, að hann vilji eigi, að Thoroddsen sé feldur á þessu þingi.

Um þrjá er í óvissu.

Enginn annar en Thoroddsen getur vænst stuðnings sjálfstæðisflokksins, og þessvegna mælir flokkurinn allra undirgefnast með honum«.

Þetta símskeyti, sem samþykt var á flokksfundi sjálfstæðismanna að senda konungi, sýnir glöggt ástandið. 20 þm. hafa heitið mér fylgi og einn þm., Hálfdán Guðjónsson, lýst því yfir, að hann léti ráðherratilnefningu afskiftalausa. Það getur þá ekki verið að ræða nema um 19 þm., sem hafa fylgt núverandi ráðherra að málum. Það er ekki til nokkurs að þrátta um þetta. Símskeytið er samþykt á flokksfundi og bygt á skriflegri yfirlýsingu þeirra þingmanna, sem þar um er að ræða, nema hvað einn, háttv. 2. þm. Árn. (S. S.), snertir, að hann hefir ekki gefið skriflega yfirlýsingu, en lýst því yfir, í viðurvist tveggja votta, velæruverðugra klerka, Sig. Stefánssonar og Kristins Daníelssonar, að sig megi telja með, því að hann verði þeim meginn, sem meiri hluti þjóðkjörinna þingmanna sé. Annars vil eg geta þess, að það er í meira lagi hlægilegt og kynlegt, þegar andstæðingarnir eru í blöðum sínum að segja langar sögur af því, hvað sjálfstæðisflokkurinn hafi viljað; engir ættu að vita það betur en flokksmenn sjálfir og það er meiri dirfskan að vera að mótmæla því.

Í margumræddu símskeyti til konungs segir, að ekki nema þessi eini maður geti vænst trausts 21 manns. Það er því augljóst, að hæstv. núverandi ráðherra hefir aðeins haft fylgi 13 þjóðkjörinna og 6 konungkjörinna þingmanna. Honum var þetta líka fullkunnugt, því eftir hádegi 12. þ. m. fórum við síra Sigurður Stefánsson heim til hans, til þess að segja honum, hvernig sakir stæðu og inna hann eftir, hvort hann vildi ekki vera með, því að hann hafði sagt í viðurvist nægra votta, að hann mundi ekki leggja hálmstrá í götu þess manns, sem meiri hluti sjálfstæðismanna tilnefndi, en hæstv. núverandi ráðherra tók þvert fyrir að fylgjast með. Hann ætlaði að fylgja sínu stryki — og mátti honum þó vera fullkunnugt um, að við vorum ekki að flytja honum neinar lygafregnir. Hæstv. ráðherra gat heldur ekki borið fyrir sig neinn vafa, því að skylda hans var að leita nægilegra upplýsinga hjá sjálfstæðisflokknum, áður en hann hugsaði til stöðunnar. Og því gleypir hann við embættinu án þess að spyrja sjálfstæðisflokkinn nokkuð um, hvernig sakir stæðu? Nei! Það var um að gera að hafa sitt fram og því var ei int eftir neinu.

Eg vona, að öllum sé það ljóst, að heill þjóðarinnar krefst þess í fylsta máta, að meiri hluti þjóðkjörinna þingmanna ráði einn útnefningu ráðherra, en konungkjörnir þingmenn komi þar ekki nærri, ekki sízt þar sem kjörtími þeirra er útrunninn seint í næsta mánuði og menn hafa verið í vafa um, hvort þeir ættu að eiga sæti á þessu þingi. Þó að eg persónulega hafi álitið rétt þeirra til þingsetu óvefengjanlegan, hafa aðrir haft á móti því. Þar sem ráðh. styðst við minni hlutann hér á þingi og konungkjörna þm., má gizka á hvernig það fylgi er. Þótt einn þm. lýsti því yfir í Ed., að heimastjórnarmenn myndu ei bregða fæti fyrir ráðherra að ástæðulausu, þá er það fylgi ekki meira en svona og svona, því að hverjir dæma um, hvort ástæða sé fyrir hendi, eða ekki? Það gera heimastjórnarmenn. Með öðrum orðum, þetta er ekki loforð um neitt fylgi. En það, að ráðherra tók við embætti með aðstoð minnihlutans leiðir líklega til þess, að útnefning konungkjörinna þm. fari í aðra átt, en síðustu kosningar bentu á og ef svo fer þá er augljóst, að hæstv. ráðherra hefir ekki verið að gera það, sem gleddi þjóðina. Síður en svo. — í ræðunni, sem hæstv. ráðherra hélt hér í deildinni, þegar hann skýrði frá útnefningu sinni, kvaðst hann mundu láta stórmálin hvíla og vinna að eflingu friðarins í landinu. Getur nú nokkur ímyndað sér, þegar hann tók við embætti undir þannig löguðum kringumstæðum, að það væri efling friðarins? Getur hann vænst þess að gleðja þjóðina, eða þvert á móti? Honum gat ekki dulist, að þetta atferli hans mundi vekja tilfinningu, reiði og æsingu og hann mundi baka meiri hluta þjóðarinnar mikillar gremju. Slíkt er ekki ábyrgðarlaust og furðar mig á, að hæstv. ráðherra hefir gert sig sekan í því. Honum var það ei ókunnugt, að það, að hann tók við embætti, mundi leiða straum af ósannindum, blekkingum, rógi og ýmsu öðru góðgæti yfir landið, enda er það þegar orðið ljóst af minni hluta blöðunum. Skipun hans leiðir til þess, að öldur blekkinga, rógs, mannorðsspjalla og lyga veltast yfir landið. (Forseti:. Eg vil biðja háttv. þingmann að gæta velsæmis í orðum sínum). Það er óþarfi fyrir háttv. forseta að hringja. Þetta er sannleikur og sannleikurinn er rétthár og á heimtingu á, að hann sé sagður. Það er gerð tilraun til að veita þessari ólyfjan yfir landið. Hæstv. ráðherra ber ábyrgð á því og það er ekki enn séð, hvað af þessu hlýtst.

Eg býst við því, að mér verði talið málið of skylt og mér verði borið á brýn valdafíkn, launagræðgi o. s. frv. Eg þekki þetta svo ofur vel hér á þinginu. Þessu er því að svara, að ýmsir menn eru svo gerðir, að þeir þykjast færastir til allra hluta og stökkva upp á nef sér, ef nokkur efast um það, en ef aðrir álíta sig eins færa, þá kemur annað hljóð í strokkinn og þeir hafa ekki nógu mörg illyrði og brigsl að bera á þann mann um valdafíkn, aurasýki o. s. frv.. Þjóðfélagið ætti að vera svo að flestir menn væru hæfir í flestar stöður og að menn langi til að taka einhverja stöðu að sér, þar sem maður heldur, að maður geti orðið að liði, er hvorki óeðlilegt né hneykslanlegt. Fyrir mér vakti meðal annars, að í ráðherrasæti gæti eg komið fram ýmsum áhugamálum mínum, til gagns þjóðinni, sem vonlaust væri fyrir mig að koma fram sem þingmanni. Eg hefi þá reynslu, að það er sitt hvað að koma fram máli, sem undirbúið er af landsstjórninni, eða af einum þingmanni. Ráðherra hefir ekki annað við tímann að gera. Hann hefir bæði sjálfan sig og valda menn til þess að undirbúa málin. Mín stefnuskrá hefði ekki verið að láta stórmálin hvíla.

Þetta vildi eg að eins hafa tekið fram, því að eg þekki orðtakið og vil frábiðja mér getsakir um valdafíkn, launagræðgi og þesskonar.

Hvað peningahliðina snertir, þá er hægt að sýna það og sanna með tölum, sem ekki verður á móti mælt, að ráðherrastaðan hefði fremur orðið mér tap en gróði. Eg hefi »pension« og er bundinn við verzlun, blaðaútgáfu, prentsmiðju, bóksölu, búskap o. fl., sem eg þurfti að losa mig við alt og geta menn séð, hversu ódýrt það verður mér. En þetta var nú útúrdúr. Hitt er aðalatriðið, að vilja meiri hluta þingsins og meiri hluta þjóðkjörinna þingmanna er traðkað og hér skapað það fordæmi, sem óvíst er, hve skaðlegar afleiðingar getur haft. Þegar konungsvaldið eða danska valdið fer að smeygja sér inn og ætlar að fara að hafa áhrif á okkar dýrmætasta rétt, þingræðið, og svipta okkur honum, er ei vanþörf á, að þjóðin sé á verði og því höfum við borið fram vantraustsyfirlýsinguna til þess að mótmæla þessum aðförum.