20.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 862 í B-deild Alþingistíðinda. (1202)

1. mál, stjórnarskrá Íslands

Forseti:

Það hefir verið látið í ljósi, að rétt væri að taka mál þetta út af dagskrá eða jafnvel vísa því algerlega frá, vegna þess að fyrirsögn frumvarps­ins sé óformleg og komi í bága við 26. gr. þingskapanna. En þetta er ekki rétt athugað. Ákvæði 26. gr. þingskap­anna er sett til þess að koma í veg fyrir, að samþykt verði af þinginu einföld lög, er feli í sér breytingar á eða viðauka við stjórnarskrána, og því verði að sjást á fyrirsögninni, að þar sé ekki um almenn lög að ræða, heldur um stjórnarskrárbreytingu. En hér er öðru máli að gegna, því að frumvarp þetta fer ekki fram á breytingu á eða viðauka við stjórnarskrána, heldur er það frumvarp til nýrrar stjórnarskrár, er fellir alger­lega úr gildi núgildandi stjórnarskrá, ef það verður að lögum og það ber fyrirsögn frumvarpsins ótvírætt með sér. Eg sé því enga ástæðu til þess að taka mál­ið út af dagskrá eða vísa því frá.