29.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 911 í B-deild Alþingistíðinda. (1224)

108. mál, stjórnarskipunarlög

Bjarni Jónsson:

Þegar þing það hófst, sem nú stendur yfir, var svo í garðinn búið, að Danir höfðu að ástæðulausu slitið upp úr samningum við Ís­lendinga, sem legið hafa við borð síðan stöðulögin komu út 1871 eins og sjá má á fylgiskjali I. á þingskjali 287 frá mér og háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) og voru nú í byrjun. Nú höfðu þeir feng­ið að heyra vilja Íslendinga og kom því öllum sjálfsagt á óvart að fá engin svör frá Dönum. En úr því svo er far­ið málinu sem nú var sagt, þá er ekki til neins að halda því áfram á þessu þingi. Svar mun varla koma frá hin­um málsaðilanum frekar en síðast, þeg­ar þess var leitað. En Danir hafa með þessu óvirt alþingi og reynt að tefja þau réttu úrslit málsins, þ. e. konungssamband milli landanna. En þótt vér verðum að láta þetta mál hvíla að sinni, þá megum vér þó eigi heim fara af þingi nú, án þess að átelja slíkt með þingatkvæði voru á einn eður annan hátt.

Nú er oss þörf skjótra aðgerða um leiðréttingar á ýmsum atriðum í stjórnarskránni. Höfðu því þingmálafundir og þingmenn ætlast til, að henni yrði breytt með þeim hætti, að deiluatriði við Dani væri látin hvíla og liggja í þagnargildi, en þó varast að veikja málstað vorn.

Háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) og eg höfð­um ætlað okkur að vinna að þvílíkum breytingum á stjórnarskránni. En við bárum þó fram í byrjun þings á þgskj. 25 frumvarp til stjórnarskrár, eins og hún á að verða. Gerðum við það eigi til þess að tefja fyrir málinu, heldur til hins, að engum gæti til hugað kom­ið að segja, að við værum horfnir frá fyrri stefnu okkar, jafnvel eigi þjóðlygurum. (Jón Ólafsson: Hverjir eru þjóð­lygarar?). Eg hefi ekki vald til að útbýta titlum, en eg vona að þeir hirði sneið, sem eiga. Út úr þessu frumv. okkar hefir nú um stund spunnist ekki ófagur tvísöngur milli Lögréttu hérna megin hafsins og danskra blaða hinum megin. Er sá tvísöngur mjög í samræmi við það, sem þaut í tálknunum á sumum hér innan deildarinnar fyrir nokkru.

Okkur hefir verið ánægja að hlýða á, en alt rausið var þó harla mikill óþarfi, því að háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) sagði þegar í fyrstu flutningsræðu sinni, að frumv. væri stefnuskrá okkar, og ekki ætlað til þess að ganga fram á þessu þingi, heldur til þess að sýna, hver leikslok ætti að verða. Og sá skal um síðir endir á verða þessu máli, því að »fram skal ganga haukur húna, hvort hann vill eða ei«. En þá kom hitt, að verða ásáttur við aðra um þessar bráðabirgðabreytingar, sem gera þurfti. Þar í er fólgið starf nefndarinnar. Sveigð­um við þar svo mikið til, sem við gát­um, en berum nú fram breyt.till. við tillögur meiri hluta nefndarinnar. En þær einar breytingar höfum við farið fram á, sem við vorum vissir um, að bæði konungur og kjósendur gætu gengið að, en látið hinar bíða, sem gætu orðið að deiluefni.

1. greinin í breyt.tillögum okkar fellir burtu tilvitnanina í stöðulögin. Eg var lengi á báðum áttum í nefndinni, hvernig þessu skyldi haga. Síðan hafa ýmsir hér lagt þetta þannig út, að í þessu feldist viðurkenning á stöðulögunum, en það vildum við með engu móti. Eins og sést á fylgiskjalinu við nefndarálit okkar, þá var jafnvel Krieger, sem var dómsmálaráðherra þegar stöðulögin voru gefin út, þeirrar skoðunar, að Danir gætu ekki sett lögin án okkar samþykkis, og þann skilning höfum við og viljum ekkert úr draga. Við vorum því að hugsa um að hverfa frá þessu í nefndinni, því við gátum ekki fengið orðalag, sem átti við, er konungur mundi samþykkja og þó eigi veikja málstað vorn. En síðan fengum við þetta orðalag hjá vitrum lagamanni úti í bæ. Þetta orðalag á fyrstu greininni, gerir athugasemdina um hæstarétt umflýjanlega. En nú verður þetta íslenzkt mál og við felum hæstarétti dómsvald þangað til okkur sýnist annað. En þetta er ekki stórt atriði. Eg fæ ekki séð, að við höfum spilt rétti okkar neitt með þessu, þó við tökum greinina óskerta.

Þá höfum við lagt til, að framan við 4. gr., fyrir orðin »Engan má skipa . . . innborinna manna«, komi: »Engan má skipa embættismann á Íslandi annan en Íslending, nema hann hafi fæðingjarétt eftir þeim lögum, er alþingi hefir sett og samþykt«. En þetta kemur ef til vill nærri deiluatriði, og ef það hamlar samþykt, þá getum við fallið frá því að sinni.

Þá er ein lítil breytingartillaga, 5. breytingartillagan hjá okkur, að í stað »neðri deild alþingis« í 2. lið 5. gr. á þingskjali 228, komi: alþingi. Þótt þessi breyt.till. sé lítil, þá á hún þó að velta þungu hlassi, þar sem er alt efri deild­ar báknið. Eg hefði helzt kosið, að deildirnar skiftust eins og nú, en ef nokkur breyting yrði gerð, þá að hafa eina deild. En að búa til efri deild, þar sem kosningar fara alt öðruvísi fram, er ekki til bóta. Og svo þegar hún á að hafa miklu lengri setu en hin deildin, þá fer skörin að fara upp í bekkinn. Hér er verið að skapa sér stjóra, en ef mönnum er gott í hug, þá er hans ekki þörf. (Jón Ólafsson: Við þurfum stöðvun). Eldast tekur nú 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.) og má hann muna tvenna tímana. Eg held þingmaðurinn ætti að muna, að „hér er hjartanu hætt við að frjósa, hér þarf sannarlegt eldfjall að gjósa“. Hann ætti að taka tappann úr eldfjallinu og minnast síns fyrra og betra manns.

Þennan halaklepp á að búa til móti uppþotsólgustraumunum, sem geti þotið yfir landið. Þessir straumar hafa ekki komið, en ef þeir koma, þá á þetta líklega að vera góður stjóri.

Háttv. framsm. meiri hl. (J. Ól.) talaði um eitthvert vængfleygt orð. En hvað haldið þið þetta vængfleyga orð hafi verið? Jú, það var orðið »goluþytur«. Hversu vængfleygt það orð er, skal eg ekki um segja, en eg skal minna hann á, að goluþytur getur magnast og orðið að stormi. En þessi halakleppur er ekki til annars, en að það verður aldrei ann­að en goluþytur hjá okkur og allir eintómir lognhattar. (Sig. Sigurðsson: Logn er leiða bezt). Já, lognhattar kjósa auð­vitað latra manna leiði, og ekki er það annað en hugsunarleti, þegar þessir þinggarpar nenna ekki að hugsa um það, að þannig tilbúinn 12 ára halakleppur er ekki aðeins til þess að tefja fyrir okkur, þegar tækifæri gefst, heldur einnig til þess að drepa það. Því tækifærið kemur ekki nema einu sinni og þá verð­ur að taka við því, og það býðst ekki aftur þó við svo hefðum 12 efri deildir og hver þeirra sæti í 12 ár.

Menn eru að tala um þroskaleysi og að þinginu mundi verða svo hætt við að hlaupa af sér tærnar, ef það lægi ekki við stjóra. Það er undarlegt að heyra menn, sem oftlega hafa rekið sig á, að við hefðum alt of marga stjóra, vera með aldrinum orðna svona værugjarna. Og þegar þeim finst lítill skriður á skútunni, þá auka þeir ekki seglin, en þeir auka kjölfestuna. Ef skútan er góð og stýrið er gott, þá er goluþyturinn aldrei of mikill, ef siglt er í rétta stefnu.

Þá er eitt, sem háttv. framsögumanni (J. Ól.) þykir óhæfa, og það er að láta fátæka menn hafa kostningarrétt. Þótt þeir menn, sem gjaldþrota verða, hefðu þessi mannréttindi, þá ætti þó að vera jafnhægt fyrir skuldheimtumenn að ná rétti sínum á þeim fyrir því. Sama er að segja um þá, sem sveitarstyrks þurfa að njóta. Engin ástæða er til að halda, að sá, sem sakir heilsuleysis eða af öðrum ástæðum þarf að þiggja aðstoð þjóðfélagsins, verði heimskari þá en áður þegar ástæður voru betri. Þetta er ekki annað, en að þjóðfélagið notar þarna tækifærið til að hrækja á hann. Þetta er alveg sama og að miða vitsmuni við 4 kr. gjald. Þetta er »census« og ekkert annað. Er það nokkuð réttlæti að svifta mann í elli sinni, sem á sínum tíma hefir verið stólpi sveitar sinnar, þessum einföldu mannréttindum. Svo er það og einungis undir atvikum komið, hver er svo fátækur, að hann þurfi sveitarstyrk.

Hvað því víðvíkur, að leggja skólagjald á þá menn, sem engu trúarfelagi tilheyra, umfram aðra menn, þá sjá allir, að þetta er sektarfé og ekkert annað.

Um orður og titla skal eg ekki vera langorður. Um þá er styzt að segja það, sem Steingrímur Thorsteinsson segir í vísunni:

„Orður og titlar úrelt þing,

eins og dæmin sanna,

notast oft sem uppfylling

í eyður verðleikanna“.

(Jón Þorkelsson: Það eru nú margir titlaðir hér inni). Við viljum vera sérstakt ríki. Ef við viljum halda orðum og titlum við, þá ættum við að koma upp innlendum orðum, Fálkaorðu eða hvaða nafn menn nú vildu hafa, en ekki að vera að fá þær léðar frá öðrum ríkjum.

Á þjóðaratkvæði vildi eg minnast dálítið. Þegar er að tala um samband Ís­lands og Danmerkur, þá ætti að sjálfsögðu að bera það mál undir atkvæði þjóðarinnar. En í öðrum málum virðist mér það hættulegt, og gæti á stað komið mikilli óreglu. Má þjóðin vera sæmd af að láta fulltrúa sína ráða fyrir sig.

Ætti »referendum« að komast á, þá þyrfti ekki, þegar kosningarrétturinn verður almennur, að fara út fyrir Reykjavík til að finna 4000 kjósendur. En í öllum þeim málum, sem snerta frelsi þjóðarinnar út á við, á að sjálfsögðu að leita hennar atkvæðis.

Á breytingartill. á þskj. 264 furðar mig mest. Þar er stungið upp á því, að konur fái fyrst kjörgengi fertugar, og þær sem nú eru yngri, verði að bíða ákveðinn tíma. Jafn sjálfsögð mannréttindi og kosningarrétt hafa konur altaf í sjálfu sér haft jafnt og karlmenn, og að skila þeim ekki þeim rétti þegar og öllum í einu, í því er engin sanngirni né réttlæti.

Annars er ekki mikil ástæða til að hræðast aukningu kosningarréttarins yfir höfuð. Því hefir verið haldið fram, að öll þjóðfélagsstofnunin mundi leika á reiðiskjálfi. En það þarf ekki að óttast það. Í öðrum löndum gæti það átt sér stað, þar sem stéttaskifting er, en hér er enginn stéttamunur; við erum öll eitt. Til að kjósa eru konur eins þroskaðar og karlar. Í sveitum fá hvortveggja hið sama uppeldi, en í þorpum er heldur munur.

Eg sé enga ástæðu til, að menn geti verið á móti þessu, nema þá, að kvenfólkið sé ekki eins stórhuga og eins miklir skörungar sem karlar. En það er áreiðanlegur hlutur, að konur eru eins stórhuga og karlar.

Þá er að minnast á tillöguna um að enginn megi bera fram breytingar við fjárlögin nema ráðherra.

Optat ephippia bos,

piger gestit avare caballus.

Þeim virðist við ekki geta gengið beizlislausir. Það sé eðli stjórnarinnar að ráða og segja fyrir, hve mikið fé þarf og til hvaða fyrirtækja. Hvernig færi nú, ef deildin vildi koma einhverju fjármáli fram, en stjórnin setti sig á móti. Þá yrði að hafa ráðherraskifti. Þessi tillaga er svo langt frá mínum skilningi. Eina röksemdin, sem eg hefi heyrt, er sú, að þetta eigi sér stað í enska heiminum. En enski heimurinn er engin röksemd, og þótt eitthvað sé heppilegt á Englandi, þá er ekki með því sagt, að það þurfi endilega að vera það hér á Íslandi. Það virðist eðlilegast, að fulltrúarnir geti borið fram óskir fólksins, kjósenda sinna. En með þessu er þjóðin útilokuð. Stjórnin getur bara sagt: Þegi þú!

Þetta er svo öfugt sem vera má, og vonast eg eftir, að menn verði móti slík­um tillögum. Annars er betra að gera stjórnarskrána þannig úr garði, að hún verði vel við unandi, og að ekki þurfi að tjalda til einnar nætur. Er því betra að vera ekki að koma með neina útúrdúra, eins og þessa efri deild, sem stungið hefir verið upp á. En hvað kvenréttindamálið snertir, þá vonast eg eftir, að það sýni sig við atkvæðagreiðsluna í þessu máli, að hinir heiðruðu deildarmenn séu undir tufflinum.