29.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 973 í B-deild Alþingistíðinda. (1234)
108. mál, stjórnarskipunarlög
Jón Magnússon:
Eg hefði í raun og veru getað látið vera að tala í máli þessu, því að hæstv. ráðherra (Kr. J.) og háttv. framsm. meiri hl. nefndarinnar (J. Ól.) hafa tekið fram flestalt það, er eg ætlaði að segja. Það er rétt hjá háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.), er hann sagði, að almenn ósk hefði komið fram á þingmálafundum um það, að stjórnarskránni yrði breytt þannig, að tilvitnunin í stöðulögin yrði tekin burtu, og eg veit, að háttv. framsm. og fleiri háttv. þm. höfðu það fyrir augum í byrjun þingsins. Eg sé að vísu ekki beint ástæðu til að hræðast það, að þetta mundi valda því, að frumv. hlyti ekki konungsstaðfesting. Það hefir áður bæði af þingi og stjórn verið ráðgert að fara þessa leið, eins og farið er fram á að þessu leyti á þskj. 287, að telja upp öll þau mál, er stjórnarskráin fjallar um. En það er harla kynlegt, að Landvarnarmenn skuli einmitt nú fara þessa leið. Ef breyt.till. háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) og háttv. þm. Dal. (B. J.) verður samþykt, held eg að í rauninni verði á eftir enn örðugra að neita því, að stöðulögin gildi hér á landi. Stöðulögunum var mótmælt hér á hinu fyrsta alþingi, er saman kom eftir að þau komu út, en kenning Jóns Sigurðssonar var sú, og hið sama hygg eg að hafi alt af síðan verið viðurkent af Íslendingum, að stöðulögin giltu þá fyrst fyrir Ísland, er þau væri samþykt af Íslendingum annaðhvort í orði eða á borði. Upptalningarnir í 1. gr. sýna, að stöðulögunum er nákvæmlega fylgt, og ef vér samþykkjum slíkt, sé eg ekki betur en að vér samþykkjum stöðulögin eða aðalatriði þeirra á borði, viðurkennum þannig stöðulögin eftir kenningu Jóns Sigurðssonar. Eg vona því, að það sé ljóst, að frá sjónarmiði Landvarnarmanna ekki síður en annara hljóti það að vera miður heppilegt að samþykkja þessa brtill. Eg lasta ekki háttv. flutnm. fyrir að koma með brtill., en eg lasta þá fyrir það, ef þeir halda því til streitu. Og ef Heimastjórnarmenn hefðu komið með þetta, mundi hafa verið hrópað: »Innlimun«!
Þá vildi eg minnast á kosningarréttinn. Það er altaf nokkuð blint í sjóinn rent, er mjög er aukinn kosningarrétturinn — mjög fjölgað kjósendum, án þess trygging sé fyrir þroska þeirra eða kunnáttu. Að minni skoðun ættum vér þó að halda þeirri tryggingunni, sem er í aldrinum, og binda kosningarréttinn við 25 ára. aldur, því að það verður að tryggja það, að menn hafi nokkurn þroska, þá er þeir fá kosningarrétt, og það því fremur, sem hann er ekki bundinn neinum þekkingarskilyrðum, en slíkt getur naumast verið að tala um að svo stöddu. Engum mun geta dulist það, að ef kosningarrétturinn yrði bundinn einhverju þekkingarskilyrði, þá yrði þessi þekking að vera fáanleg í skólunum, en fyrir því er ekki séð enn. Auðvitað yrði ekki heimtuð þekkingarsönnun af neinum þeim, er kosningarrétt hafa fengið, áður en eða án þess að þeir sönnuðu þekking þá, er kosningarréttur kynni síðar meir að verða bundinn. Eg hygg, að rétt sé að veita öllu kvenfólki kosningarrétt, þá er það er orðið 25 ára. En mér finst alger óþarfi, þótt kosningarrétturinn verði almennur, að taka burtu höft þau, er hvíla á gjaldþrotum og þurfamönnum. Það er ekki rétt að taka burt þær skorður, sem halda mönnum til að gera skyldur sínar í þjóðfélaginu. Íslendingar eru ekki svo vel kyntir að skilvísi, að vert sé svo sem að uppörfa óskilvísi. Og eg hygg að ákvæði núgildandi laga um, að gjaldþrotar missi kosningarrétt á meðan að á gjaldþrotaskiftunum stendur, sé einmitt hvöt fyrir marga til þess að reyna að greiða skuldir sínar og koma fram á heiðarlegan hátt, í staðinn fyrir að leggja árar í bát og framselja bú sín til skiftameðferðar sem þrotabú. Eg álít meira að segja hollara fyrir þjóðfélagið, að gjaldrotar mistu kosningarréttinn þangað til að þeir væru búnar að greiða skuldir sínar eða hefðu fengið bú sitt framselt til frjálsra umráða. Eg vil þó ekki fara fram á þetta. En tel það aftur á móti óforsvaranlegt, að breyta hinum núgildandi ákvæðum að þessu leyti. Menn sem koma til mín í þeim erindagerðum að framselja bú sín til skiftameðferðar sem þrotabú, eða eru að hugsa um slíkt, spyrja oft fyrst: »Missi eg kosningarrétt ef eg verð gjaldþrota«? Og er eg svara þeim, að þeir missi hann um stund, þá hætta þeir stundum við að gefa sig upp, og baslast síðan fram úr skuldunum.
Það hefir verið talað um, að það geti komið óréttlátt niður, að þeir menn missi kosningarrétt, sem orðið hafi að þiggja sveitarstyrk. Það getur verið, að það komi fyrir að það sé órétt, að styrkur veittur af fátækrafé undir vissum kringumstæðum hafi í för með sér missi borgaralegra réttinda, en úr því mætti bæta með því að breyta fátækralögunum. Vanalega mun það vera fyrir leti eða ómensku og drykkjuskap, að menn þurfa að leita styrks af sveitinni, og þess vegna verða að liggja upp á öðrum, og þeim mönnum er það mátulegt, þótt þeir missi kosningarrétt. Háttv. þm. Dal. (B. J.) talaði um, að það væri hart t. d. fyrir gamla og nýta bændur að missa kosningarrétt sinn, af því þeir ef til vill hefðu orðið fyrir óhöppum, svo þeir yrðu að vera upp á aðra komnir í ellinni. Flestar sveitir held eg hafi þá sómatilfinningu að láta þessa menn, sem þannig er ástatt fyrir, ekki komast á sveit. Eg þekki ekki þess dæmi, að slíkir menn hafi komist á sveit í ellinni. Auðvitað neita eg því ekki, að slíkt komi fyrir. En að veita þurfalingum kosningarrétt, þótt þeir þiggi stöðugan sveitarstyrk, væri oft og einatt að verðlauna letina og ómenskuna, og það vil eg ekki gera.
Þá vil eg enn aðeins minnast á tillöguna um að banna yfirdómurum þingsetu. Eg held, að við ættum að bíða að minsta kosti með að svifta dómara þingsetu, þangað til að við höfum fengið æzta dómstól landsins inn í landið. Ef embætti hinna æztu dómara yrði þá vel launuð og verulega vegleg embætti, þá gæti komið til tals að svifta þá að einhverju leyti rétti þeim, sem aðrir landsins borgarar hafa. En meðan dómaraembættin eru ekki betur launuð en það, að það er peningalegur skaði fyrir sýslumenn í meðalsýslu að verða dómarar í yfirréttinum, þá virðist ekki fært að svifta yfirdómarana almennum borgaralegum réttindum. Eg veit ekki til að dómurum sé bönnuð þingseta, nema í enskum löndum. En þar eru þeir svo hátt settir í virðingu og vel launaðir. Í Englandi sitja þeir þó í efri málstofunni; í neðri málstofunni sitja engir embættismenn. Eg veit ekki, hvort þeir sitja á þingi Kanada, hygg þó að dómarar séu á þingi þar.