29.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 984 í B-deild Alþingistíðinda. (1236)

108. mál, stjórnarskipunarlög

Hannes Hafstein:

Það eru nú allmargir búnir að taka til máls og tala um ýms þau atriði, sem eg hafði ætlað mér að minnast á; býst eg við að búið sé þegar að taka það flest fram, er eg vildi sagt hafa. Þó ætla eg, eins og siður er til orðinn, að segja nokkur orð »til að gera grein fyrir atkvæði mínu« um einstöku atriði. Eg skal þá byrja að fara nokkrum orðum um tillögu frá háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) og þm. Dal. (B. J.), er fer fram á, að setja inn í 1. gr. upptalning á sérmálunum ásamt því ákvæði, að hæstarétti Danmerkurríkis sé falið æzta dómsvald í þeim málum, »þar til önnur skipan verð­ur þar á gerð«. Eg vefengi alls ekki, að þeim muni gott til ganga með tillögu sinni, en hins vegar er eg ekki í nokkr­um vafa um það, að því fer mjög fjarri, að hún geti náð þeim tilgangi sínum, að synda fyrir það, að vitnað sé í stöðu­lögin, án þess þó að ganga beint í ber­högg við gildi þeirra hér. Því hver á að gera þessa »aðra skipan«, sem breyt­ingartillagan ræðir um? Um það verð­ur auðvitað spurt, áður en stjórnarskrárfrv. alþingis er staðfest. Fyrir því verður að gera konungi grein, þegar frumv. er borið upp fyrir honum. Er það nóg, að íslenzka löggjafarvaldið geri aðra skipan; eða er meiningin, að til þess útheimtist samþykki danska löggjafarvaldsins, sem setti stöðulögin og þar með það ákvæði, að stöðu hæstaréttar í íslenzkum málum yrði ekki breytt án samþykkis ríkisþingsins? Þessu verður að svara. Svari ráðherra vor, að hér sé átt við ráðstöfun af hálfu íslenzka löggjafarvaldsins eins, þá er þar með viðurkent, að frumv. fari út fyrir hið svonefnda »sérmálasvæði«, og seilist inn á löggjafarsvið það, er enn er af Dönum talið ríkisins í heild sinni, uns öðru er slegið föstu í sambandslögum, og þetta stjórnarskrárfrumv. gæti þá ekki öðlast staðfesting konungsins. En svari hann því, að auðvitað eigi ríkisþingið að hafa þar afgerandi orð, þá er fram komin viðurkenning af vorri hálfu á gildi stöðulaganna, sem aldrei áður hefir fram komið frá alþingi. Tillagan hefir það þannig í för með sér, að annaðhvort verður stjórnarskránni synjað staðfestingar af konunginum, ellegar að sá ráðherra, sem ber það fram fyrir konunginn, verður að játa það í þingsins nafni, að stöðulögin gildi einnig hér á landi, og fer því fjarri, að það sé endurbót á frumvarpi nefndarinnar, að samþykkja þessa tillögu.

Þá eru ákvæðin um fæðingjarétt innborinna manna. Það er enginn vafi á því, að svo væri litið á, að hér væri farið út fyrir »sérmálasviðið«. Eg held því að hinir háttv. þingm. ættu ekki að halda því til streitu, ef þeir vilja þessu máli vel og eg býst því við, að þeir taki þessa tillögu sína aftur.

Þá vil eg minnast á nokkur atriði viðvíkjandi skipun efri deildar. Ástæðan fyrir því, að eg aðhyllist að efri deild verði kosin af allri þjóðinni með hlutfallskosningu en ekki í kjördæmum, er ekki sú, að eg búist við, að deildin verði afturhaldssamari heldur en hún gæti orðið með hinsvegar kosningarmáta. En eg held að hún verði vitrari með þessu móti. Eg hygg, að með þessu móti mundu fást víðsýnni menn, sem hefðu betri þingmannshæfileika eða og víðtækari þekkingu á málum landsins í heild sinni og yfirleitt víðari sjóndeildarhring en alment gerist, menn, sem þekkja þjóðina og þjóðin þekti. Það er meira að segja ósennilegt, að þannig kosin efri deild verði skipuð íhaldsmönnum, sem þektir eru að því, að gerast þröskuldar í götu fyrir framfaramál­um og áhugamálum þjóðarinnar. Þvert á móti má búast við, að deildin yrði fult eins fús til framfara og neðri deild, en aðeins ætti að vera trygging fyrir því, að ekki yrði litið eins einhliða á málin frá sjónarmiði einstakra landshluta eða sýslufélaga né hreppapólitík og hrossakaupum eins oft blandað inn í landsmálin og nú á sér stað.

Eg hefi yfirleitt miklar mætur á hlut­fallskosningum, því að þingið á að vera mynd af þjóðinni og sú mynd næst bezt með hlutfallskosningu, og það er enginn vafi á því, að heppilegast væri að allir þingmenn væru kosnir með hlutfallskosningu um land alt eða þá í sem stærstum kjördæmum, eins og farið var fram á í frumvörpum mínum 1905 og 1907. Það frumvarp féll hér, illu heilli, og með því að ekki er útlit fyrir, að þjóðin fyrst um sinn vilji svo víðtæka breyting, get eg að svo stöddu gert mig ánægðan með, að hlutfallskosning sé lögboðin í stjórnarskránni fyrir efri deildina, einkum þó þannig, að kosið sé í einu um land alt.

Það hefir verið talað um, að nauðsynlegt væri að þingið kæmi saman á hverju ári, einkum af því að hið pólitíska líf í landinu dofnaði svo milli þinga. Mér fyrir mitt leyti sýnist nú pólitíski gauragangurinn hér á landi nægilegur, þó að þingið komi ekki saman nema annaðhvort ár; hins vegar geta komið fyrir þau atvik, er geri það æskilegt, að þing geti komið saman oftar. En þá vil eg benda á það, að í nefndarfrumvarpinu er ákvæði, sem gerir þetta mögulegt, að fá þing þegar þörf er á, án þess að það sé skipað í stjórnarskránni, að halda þing á hverju ári; eg á við það ákvæði, að meiri hluti þingmanna geti knúð það fram, að kallað sé saman aukaþing hvenær sem þeim finst þörf á því, og þing­ið getur þannig haft þann hemil á stjórn­inni, sem því sýnist, og yfirleitt tekið til starfa, hvenær sem mál ber að hönd­um, er meiri hluti þings telur rétt að flýta. Eg sé ekki annað, en með þessu ákvæði sé nægilega bætt úr öllu því, sem mælir með því að hafa árlegt þing.

Viðvíkjandi kosningarréttinum vil eg taka það fram, að eg vil að konur hafi þar jafnrétti við karla. Þegar eg í stjórnarskrárfrumv. 1909 orðaði tillöguna um það svo, að veita mætti konum kosning­arrétt með lögum, þá var ástæðan sú, að mér þótti rétt að löggjafarvaldið ætti kost á því að setja, ef því svo sýndist, einhverja reglu til þess að bæta úr agnúunum við það, að alt kvenfólk, sem kosningaraldri hefir náð, kæmi alt í einu og undirbúningslaust inn í kosningabaráttuna, án þess að hafa haft nokkra ástæðu til þess á undan að láta sér detta í hug einusinni, að þær yrðu kvadd­ar fram á vígvöllinn, til þess að hafa með höndum þetta vald þjóðarinnar. Karlmennirnir hafa vitað það frá barnæsku, að þeir ættu að fá þennan rétt og hlutdeild í þessu valdi, þegar þeir næðu vissum aldri, og hafa því að minsta kosti haft ástæðu til að búa sig eitthvað undir, setja sig eitthvað inn í almenn mál, en kvenfólkið alls ekki, og vitanlega fjöldinn allur af stúlkum út um alt land, sem ekki hefir látið sér í hug detta neitt er að þessu lýtur. Eg áleit því hentugra að haga ákvæðinu þannig eins og gert var, eftir kringumstæðunum, en alls ekki af því að eg vildi setja kvenfólkið sem slíkt skör lægra en karlmenn.

Nú er komin fram breyt.till. frá hv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) um það, að setja bað inn í stjórnarskrána, að konur öðlist kosningarréttinn smátt og smátt, fyrst þær sem eru 40 ára, ári síðar þær, sem eru 39 ára o. s. frv. og getur hugmyndin í þessu í sjálfu sér haft mikið við að styðjast, þótt eg kunni ekki við að binda þetta fast í stjórnarskrá. En það er annað, sem gerir mér þessa breyt.till. allsendis óaðgengilega: Eftir nefndarfrumvarpinu er kosningarrétturinn bund­inn við fullveðja aldur, sem nú er 25 ár, en má færa hann niður í 21 árs aldur. Sé nú breyt.till. hv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) samþykt, verður reglan þessi: Alþingi getur þegar á næsta þingi með einföldum lögum kastað inn í kjósendahópinn öllum strákum, frá 21–25 ára að aldri, sem alls ekki hafa haft neina ástæðu til að búast við slíku, — en kven­fólki á þeim sama aldri getur hið almenna löggjafarvald alls ekki veitt þennan rétt. Það er undan skilið frá þeirri reglu, að kosningarrétturinn fylgi lögaldrinum, meira að segja það er alveg útilokað, að alþingi geti gefið ráðsettum konum á 30–40 ára aldri, hversu vel undirbúnar sem þær væru orðnar, sama rétt og karlkyns unglingum alt að því helm­ingi yngri má veita, með einfaldri breyting á lögaldurstakmarkinu. Þetta er misrétti, sem eg ómögulega get fellt mig við — misrétti, sem ekki á neina rót í þekkingarmun, heldur að eins í kynferði, sem í þessu efni ekkert kemur málinu við. Eg kann líka illa við þá aðferð, að taka með annari hendinni það, sem gefið er með hinni, heita kosn­ingarrétti með sömu skilyrðum og karl­ar, eins og breyt.till. gerir, en svo með öðru ákvæði setja skilyrði, sem að eins gildi um kvenfólk en ekki um karlmenn. Eg fyrir mitt leyti mun því greiða at­kvæði með því, að sömu reglur gildi um kosningarrétt karla og kvenna, en aftur á móti hefi eg komið með brtill. þess efnis, að hætt sé við að leyfa, að færa megi aldurstakmarkið niður í 21 ár, og takmarkinu sé haldið áfram eins og það nú er, 25 ár. Eg vona, að enginn geti kallað það of mikla íhaldssemi, að halda fast við þetta takmark. Það er engin bót í að lækka það. Það tjáir ekki að vera að bera okkur saman við suðrænar þjóðir, við erum ekki nærri því eins bráðþroska, eins og þær. Og þótt Englendingar hafi 21 árs aldurstakmark, er þeim það ekkert hrós og alls ekki eftirstælingarvert fyrir oss. Þess mætti og geta, að í hinni harðsnúnu baráttu í Englandi móti því að veita konum kosningarrétt, hefir það verið tilfært sem ein mótástæðan, að aldurstakmarkið sé svo lágt.

Ein breyt.till. fer í þá átt, að engum nema ráðherra skuli heimilt að bera fram á þingi breytingartillögu við fjárlagafrumvarpið, er hafi í för með sér ný eða aukin útgjöld. Um brtill. við fjáraukalög er þetta látið frjálst, hvers vegna veit eg ekki. Eg get ekki verið með þessari till., ekki vegna þess, að hún hafi ekki við nokkur rök að styðjast. Það er óneitanlega eðlilegast, að þingið veiti ekki meira fé en stjórnin álítur að þurfi, og treystir sér til að útvega. En eg er hræddur um að með þessu ákvæði yrði ekkert breytt til bóta. Eg sé eigi, að breytingin mundi verða önnur en sú, að »agitationin« og hrossakaupin færist inn í flokksherbergin, í staðinn fyrir, að nú er hún mest hér á göngunum. Eg skal viðurkenna það, að sú röksemd tekur sig nógu vel út, að nú geti ráðherra í raun og veru enga ábyrgð borið á fjárlögunum, þar sem þingmenn um­hverfi alveg frumvarpi hans. En það er hvorttveggja, að ekki er uggvænt, að hann yrði eftir sem áður að sætta sig við ýmsar nýjar fjárveitingatillögur, að minsta kosti ef meiri hluti þings krefst þess af honum, enda sé eg ekki betur, en að ráðherra, sem hefir meirihluta fylgi, geti, ef hann vill beita sér, komið í veg fyrir fjárveitingar, sem honum eru ógeðfeldar, án nokkurrar breytingar á gildandi ákvæðum, svo framarlega sem nokkur flokksagi er, og menn vilja eigi að hann beiðist lausnar.

Eg get ekki varist þess, að mér finst þessi tillaga ganga of nærri frumkvæðisrétti þingmanna, sem er svo óbundinn í öllum öðrum málum. Kann ekki við að það sé hverjum þingmanni heimilt að koma fram með lög eins og t. d. aðflutningsbannslögin, sem kosta landið 200,000 kr. tekjumissi á ári, og þannig rugla gersamlega öllum fjárhagsstatus lands­sjóðs — en að sami voldugi þingmaður megi ekki fyrir neinn mun stinga upp á því, að veita fá hundruð króna til nauðsynlegrar brúar eða vegarspotta, sem ekki hefir fundið náð fyrir ráðherrans augum.

Háttv. framsm. meiri hl. (J. Ól.), sem annars talaði mjög skýrt og vel fyrir nefndarinnar hönd, fór þó ekki alveg rétt með, er hann skýrði frá afstöðu okkar gagnvart utanþjóðkirkjumönnum. Við höfðum lagt það til, að enginn sá, er ekki er í neinum trúarbragðaflokki, skuli gjalda nokkuð til guðsdýrkunar, en leggja af mörkum samsvarandi gjald til skólanna. Háttv. þm. sagði, að við meiri hl. nefndarinnar hefðum viljað sekta þá menn, sem ekki væru í þjóðkirkjunni. Þessu verð eg að mótmæla. Fyrir okkur vakti það eitt, er vér vildum halda ákvæðinu um tilsvarandi greiðslu til skóla frá þeim, sem ekki eru í viðurkendum söfnuði, að koma í veg fyrir undanbrögð, gera mönnum ómögulegt að smokka sér undan öllum gjöldum til prests og kirkju að eins með því að segja: »eg trúi engu og vil því ekkert borga«, en hafa samt öll sömu not af starfi og embættismönnum þjóðkirkjunnar eins og aðrir. Það er því síður varhugavert að heimta þetta gjald af kirkjufélagsleysingjum, þar sem ekki er hætt við, að alþingi mundi sýna neina tregðu í því að viðurkenna allar þær trúarskoðanir, sem ekki stríða á móti almennu siðferði. Hvers vegna sækja t. d. Unitarar ekki um viðurkenning? Eg hygg enginn mundi amast við því.

Það hefir verið mikið talað um »referendum«. Eg held að of snemt sé að fara að byrja á slíku, það hefir engin þörf á þess konar ráðstöfunum sýnt sig enn. Og það getur líka orðið okkur mjög hættulegt, getur tafið mjög alla framfaraviðleitni, sem hefir í för með sér fjárútlát, eða »agitation« er vakin á móti af einhverjum ástæðum. Það er svo fjarri því, að slíkt auki frelsi og framför í landi, að það dregur miklu fremur úr frelsi og framkvæmdum. Það er gömul setning, að alt orkar tvímælis þá gert er, og þá ekki sízt stórmálin, sem miklu skifta. Reynslan sýnir, að hér á landi er hægt að þyrla upp blekkingaryki og villa mönnum sjónir með útúrsnúningum, ósannindum og rógi, svo að orðið hefir allra mestu nauðsynjamálum að falli. Alþýðan er einatt tortryggin og trúir fremur því illa en því góða, sem henni er sagt, hættir til að gruna menn um græzku og trúa þeim, er undir róa og illt segja. Eg er viss um það, að mörg góð mál og fyrirtæki mundu liggja óbætt hjá garði, ef alment »referendum« er innleitt hér á landi. Af þeim tillögum um »referendum«, sem hér eru fram komnar, virðist mér till. háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.), að það nái til allra laga, sú eina, sem er sjálfri sér samkvæm. En hún getur þó ekki staðist, því það er ómögulegt að bíða mánuðum saman með það að fá staðfesting allra lagaboða. Sum mega til að koma strax til framkvæmda, t. d. ný tolllög. Til þess að bæta úr þessu hefir háttv. þm. Skagf. (Ó. Br.) stungið upp á því, að lög, sem strax eiga að ganga í gildi, séu undanskilin »referendum«. En þar með verð­ur öll reglan um »referendum« að hégóma, því að ætíð má sleppa við það með því að setja inn í öll lög, sem alþingi samþykkir, ákvæði þess efnis, að þau skuli öðlast gildi þegar í stað.

Að bera sambandslagafrumvörp, sem alþingi að fyrrabragði hefir samþykt, undir þjóðaratkvæði, áður en nokkur vissa er fyrir því, hvort hinn samningaaðilinn vill ganga inn á það, virðist tilgangslaust.

Eg sleppi því að minnast á fleiri atriði í þetta sinn. Skal eg að endingu að eins nefna stórmálið þeirra félaganna 1. þm. Rvk (J. Þ.) og þm. Dal. (B. J.), sem þeir vilja setja inn í stjórnarskipunarlög landsins, að »enginn maður hér á landi megi bera neinar orður né titla, er konungur og landsstjórn veiti mönn­um«. Það má þannig veita háttv. tillögumönnum orður og titla eftir sem áður, þeir mega að eins ekki bera þetta »á landi«. Eg skal nú ekki út í það fara, hversu merkileg þessi siðbót er í sjálfu sér. Eg vil að eins benda háttv. flnm. á það, að orðalag till. er ekki rétt. Það er ekki stjórnin, sem veitir orður og titla. Það gerir konungur einn. Enginn ráðherranna »contrasignerar« með honum slíkar ákvarðanir. Oft gefur konungur sjálfur orður persónulega, þannig að hönd selur hendi, og hafa þá ekki aðr­ir með það að sýsla en »Ordenskancellíið« sem gamli Hans, prinz af Glucksborg, er kanslari fyrir sem stendur. Það er líka einkennilegt, að þetta burðarbann skuli aðeins gilda um danskar orður. Hingað til hefir þurft leyfi til að bera orður frá öðrum þjóðhöfðingjum og það getur væntanlega fengist eftir sem áður. En sjálfs síns orður á konungur vor ekki að geta leyft þegnum sínum að bera. Eg vil biðja háttv. deild að athuga hvort slíkt stjórnarskrárákvæði muni ekki koma ofurlítið undarlega fyrir sjónir. Í öllu falli virðist mér það merkilegt af mönnum, sem telja Ísland sér­stakt »suverænt« ríki, óháð Danmörku, að gera þennan greinarmun á Danmörk og öðrum ríkjum heimsins, að einungis danskar orður má ekki bera. Á þetta að vera hefnd á Danmörku fyrir gaml­ar syndir? Eða felst hér í ósjálfrátt enn þá viðurkenning fyrir því, að Ísland sé »óaðskiljanlegur hluti Danaveldis«, eins og stöðulögin segja, sem þeir annað veifið afneita svo mjög?