29.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 993 í B-deild Alþingistíðinda. (1237)
108. mál, stjórnarskipunarlög
Jón Jónsson (1. þm. S.-Múl.):
Eg hefi verið hálf lasinn og illa fyrir kallaðaður bæði í gær og í dag, en af því að þessi meinlausa br.till. mín hefir komið á stað miklum ummælum, þá finn eg mér skylt að fara um hana nokkrum orðum enn þá. Mig langar þá fyrst til að leggja fram litla spurningu og vænti svars upp á hana: Skyldi nokkurt það þing vera í heiminum, þar sem slíkt nýmæli, sem hér er um að ræða, þar sem er óbundinn kosningarréttur og kjörgengi allra fulltíða kvenna til að ráða löggjafarmálum þjóðarinnar, væri borið fram, að engin rödd væri til mótmæla? Eg geri nú raunar ráð fyrir hvað svarið muni verða, líklega það, að þetta sannaði, hvað við værum langtum lengra á veg komnir en aðrar þjóðir. Það er það sama og einn mikilsvirtur þm. sagði á seinasta þingi, þegar eg vakti máls á því, að helztu menn Norðmanna væri á móti bannstefnunni, og leyfði mér að nefna nöfn eins og Nansen, Mikkelsen o. fl., þá var mér svarað því, eg get nefnt manninn, það var háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.), að ef við samþyktum bannlögin, þá sýndi það, að við værum siðferðislega þroskaðri en þessir menn, (Skúli Thoroddsen: og hafði rétt að mæla). Já! Við erum miklir menn, Íslendingar. Því er ekki að leyna, að við getum orðið forgöngumenn annara þjóða í ýmsum málum. Og karlmannleg voru orð háttv. þm. Dal. (B. J.) í gærkveldi. Hann hugsar sér víst sjálfan sig aðalbrautryðjanda þessarar nýju gullaldar, sem hann er að leiða okkur inn í. Hann mælti svo, er hann talaði um þjóðarskútuna: »Vér þurfum enga seglfestu«. Hann vill kasta öllu fyrir borð, sem tefur siglinguna inn í hið fyrirheitna land sjálfstæðisins. Hann sagði, að öllu væri óhætt, ef vel væri stýrt, og stýrimanninn vantar víst ekki, þar sem hann er sjálfur; bara seglin í hæsta hún og seglfestuna fyrir borð!
Þetta er karlmannlega mælt, en ljótar eru manneskjunnar hugsanir. Mér kom nefnilega í hug sigling Staðarhóls-Páls og vísan þjóðkunna, er hann kvað, þegar hann stýrði beint á skerið. Hún endar svona:
„Skipið er nýtt, en skerið hró
skal því undan láta“.
Skipið fór auðvitað í spón, en skerið lét sér hvergi bregða, og kvað standa enn í dag á sama stað. En í alvöru talað vildi eg ekki þurfa að heyra slíkar kenningar fluttar á löggjafarþingi þjóðarinnar.
Mér kom það illa og óvart, er vinur minn, 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.), skýrði svo frá, að skoðun mín á kvenfólki væri sú sama og hann hafði fyrir langa löngu látið í ljósi í fremur, ja, hvað skal eg nefna það(?) fremur ógeðslegum kviðlingi. Og hann bar mér meira að segja á brýn, að skoðun mín væri sú, að svo ætti það að vera, sem í þeim kveðlingi segir um íslenzkar konur.
Þetta fer nú allfjarri sanni, og eg þori að fullyrða að álit mitt á »betri hluta mannkynsins« er alt annað, og eg held miklu fegra og »ideellara« en hans sjálfs og allra þessara blásokkuriddara. Þeir vilja knýja konur nauðugar viljugar út í lífsins óhreinlegasta strit, en eg vil fara vel með þá hæfileika konunnar, sem hingað til hafa drýgstir reynst til að friða og fegra lífið, til að milda og mýkja. Það er ekki til neins að segja, að hér sé að eins að ræða um, að veita heimild og rétt, því það er hverjum heilskygnum manni auðsætt, að hér er engu síður að ræða um að hlaða skyldum og leggja nýjar byrðar á bak konunum.
Eðlismunur karla og kvenna verður ekki afnuminn með alþingislögum. Sá munur er mikill og merkilegur, og sérhvað það, sem eins og þessi nýmæli, miðar til að gera þann mun minni eða sljófga náttúrlegt eðli, er skaðlegt og hefnir sín með aukinni ófarsæld þeirra, er hlut eiga að máli. Mér finst eg muni helzt geta skýrt, hvað fyrir mér vakir, með því að tilfæra orð skáldanna, sem sjá dýpra í eðlislíf vort en aðrir menn. Mér detta í hug þessi orð, um insta eðli konunnar gagnvart karlmanninum: »Þarfnast stoðar sem víntré veikt« o. s. frv. eftir Tegnér. En um instu og fegurstu tilfinning karls gegn konu bera þessi vísuorð vott: »Hélt eg þér á hesti« o. s. frv. Það er langt síðan að eg hugsaði um þetta merkilega efni, með þeim litla vitsmunakrafti, sem mér er gefinn, og eg er svo sannfærður, sem maður getur verið, að öll þessi svonefnda kvennréttindahreyfing, sem nú er að ná yfirtökunum, er óheillaspor, gönuspor mannkynsins, er hlýtur að leiða til vaxandi lífskvalar, sem þó mun varla verða ábætandi. Og það er sannarlega ekki með léttum hug, sem eg geng að því verki, að samþykkja þessi nýmæli, þótt eg telji mér skylt að gera það, eins og eg reyndi að færa rök fyrir í gær.
Eg skil ekkert í, hvað mikla mótspyrnu þessi meinlausa tillaga mín hefir vakið. Það er ekkert í henni, sem aftrar því, að konur öðlist jafnrétti á við karlmenn. Það var sagt í gærkveldi, að kosningarréttur þeirra drægist í 15 ár. Þetta er rangt. Sú kona, sem er 25 ára, þegar lögin öðlast gildi, fær kosningarrétt eftir 7½ ár. Sú sem stendur á tvítugu, fær kosningarréttinn eftir 10 ár.
Mér heyrðist háttv. þm. Dal. (B. J.) hafa það helzt á móti þessari tillögu minni í ræðu sinni í gærkveldi, að með henni yrðu það eintómar kerlingar, sem fengju kosningarrétt. Það er satt að segja nokkuð í því og eg skil það, að sumum kunni að falla það þungt. Sú var tíðin, að riddararnir börðust í burtreiðum fyrir augum yngismeyja. Nú byrjar þessi leikur á ný. En nú er ekki barist um bros og blíðu kvenna, heldur um atkvæði þeirra. Og er það þá ekki munur að berjast um atkvæðisfylgi ungmeyjanna blómlegra og broshýrra, eða vera að stássa með þessa nýju karlmenskuraun frammi fyrir hálfgömlum, og hálfþreyttum konum. Það er eins og hver sjái sjálfan sig. — Það tekur alt fjörið úr riddurunum í þessari nýju turniment, í þessum atkvæðasmölunar einvígum.
Og svo vopnin. Í stað burtstanga, gyltra skjalda og skúfaðra hjálma koma nú svívirðandi orð um mótstöðumanninn og annað því um líkt. Nú er það þetta, sem á að ganga í augun á konunum, þetta, sem á, að lyfta konunum til menningar og þroska. Og sá væntir að fá sigurlaunin, sem bezt kann að neyta þessara vopna.
Hvort verður fremur til að göfga konurnar, hin fornu turniment, eða þau, sem nú munu fara að tíðkast?
Hér get eg látið staðar numið. Það eru að eins fáein atriði, sem eg þarf að svara örfáum orðum.
Háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) lýsti yfir því sama sem eg í gær, að konur væru yfirleitt hjartabetri. En það eru tvær hliðar á því máli. Skyldi ekki hjartagæzkan hverfa, þegar þær eru komnar í selskapinn; Adam var ekki lengi í Paradís. Eða þótt hjartagæzkan héldist, mundu þær þá ekki einmitt þess vegna fremur verða blekkingum að bráð þegar á kosningamarkaðinn kemur?
Háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) mintist á þessa tillögu mína, sem svo margir skörungar þingsins spreyta sig á, hver um annan þveran, að tala illa um, og sagði, að hún væri með öllu óhæf, einkum ef aldurstakmarkið fyrir kosningarrétti yrði fært niður í 21 ár. Eg fyrir mitt leyti er því eindregið mótfallinn, og mun hiklaust greiða atkvæði með till. hans, er slær því föstu, að kosningaraldur, hvað sem lögaldri líður, megi ekki lægri vera en 25 ár. Eg er ekki hefnigjarn og mun sýna það, að eg kann að launa ilt með góðu.