29.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1010 í B-deild Alþingistíðinda. (1242)

108. mál, stjórnarskipunarlög

Sigurður Gunnarsson:

Það voru 2 breyt.till., sem eg gleymdi að minn­ast á í dag, en sem eg þó ekki kann við að greiða atkvæði um, án þess að gera grein fyrir skoðun minni á. Önn­ur fer fram á það að svifta alla dómara landsins kjörgengi til alþingis. Eg skal taka það fram, að eg get ekki séð, að nægar ástæður séu fyrir hendi til þess að svifta þá stétt, eða nokkra sérstaka stétt, svo dýrmætum rétti, ef að öðru leyti almennum skilyrðum er fullnægt. Því skal raunar ekki mótmælt, að það get­ur komið fyrir, að dómarar eins og aðr­ir menn láti geðshræringar hlaupa með sig í gönur en eg hygg, að það sé und­antekning, sem ekki sannar regluna í þessu máli og það er mjög svo varhugavert að hlaupa eftir einstaka dæmum í þessu efni. Sérstaklega finnst mér þetta ákvæði rangt, að því er yfirdómarana snertir. Þeir standa einmitt vel að vígi, það eru óháðir embættismenn, sem stjórn­in getur ekki vikið frá embætti, þeir eru skipaðir til fremstir manna að gæta laga og réttar í landinu og hljóta því að finna til þungrar ábyrgðar að gera alstaðar það sem réttast er. Eg skil því ekki í, að það geti komið til nokkurra mála að samþykkja þessa brt.

Hin brtill. var ein af tillögum h. þm. Skagf. (Ó. Br.) um að færa tölu þingmanna niður í það, sem áður var, nfl. 24 í Nd. og 12 í Ed. Eg fyrir mitt leyti hallast að þessari tillögu. Það er mikið rétt hjá hv. þm., að fjölgun þm. var aðallega gerð í því skyni að koma meira jafnvægi á í Ed. en áður var, þegar helmingur deildarinnar voru konungkjörnir þingmenn. Það var miklu frem­ur þessi ástæða, sem leiddi til færslunn­ar úr 36 í 40, en sú, að auka starfskrafta þingsins, og því fremur er eg með þessari tillögu, þar sem nú verður ef til vill sú ákvörðun tekin, að þing verði háð árlega, sem hefir mikla kosti í för með sér. Þess er líka að gæta, að við erum fátæk og fámenn þjóð, svo að 36 þm. sýnist vera fullsæmileg tala.

Úr því eg stóð upp á annað borð, ætla eg að leyfa mér að fara fám orðum um blessað kvenfólkið. Eg skal þá minna menn á það, að fyrir deildinni lágu í fyrstu 2 frv. Annað var frá hv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) og þm. Dal. (B. J.). Þar segir í 21. gr., að kosningarrétt til alþingis skuli hver 21 árs karlmaður hafa, sem að öðru leyti uppfyllir þau skilyrði, sem heimtuð eru. Konum má veita kosningarrétt með einföldum lögum. Nú vil eg segja það við hv. þm. Dal. (B. J.), að hann hefir gert betur en áður, og batnandi manni er bezt að lifa. Líka lá fyrir deildinni annað frv., þeirra nafnanna þm. S.-Múl. (J. J. og J. Ól.). Í 19. gr. þess er svo ákveðið, að kosningarrétt til efri málstofu hafi fullveðja karl­ar og konur. Þetta frv. hefir hv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) flutt, og eg efast ekki um, að hann hefir þá meint það, sem hann sagði. En nú er annað orðið uppi á teningnum. Nú er hann öldungis andstæður þessari 19. gr. sinni. Hann hlýtur að hafa ruglast eitthvað síðan, því að ómögulegt er að koma 19. gr. í samræmi við brtill. þá, sem hann flytur nú, þess efnis, að nú þegar fái að eins fertugar konur kosningarrétt, en þær yngri fái hann smátt og smátt, næst 39 ára konur, svo 38 ára o. s. frv., þar til allar hafa öðlast réttinn. Eg hefi ekki getað skilið vel rökfærslu hv. þm. Mér virðast rök hans hafa stefnt að því, að útiloka allar konur frá kosningarrétti. Hann hefir lagt út af því, hvað þær væru saklausar, hugsunarháttur þeirra mundi spillast og að veita þeim þennan rétt væri sama og að reka þær með svipum út í alls konar óhæfu o. s. frv. En þetta get eg nú ekki skilið. Vill hann segja það, að engin kona hugsi nú um pólitík. Það er engin hæfa í því — þær fylgjast yfirleitt eins vel með og karlmennirnir, og úr því þær á annað borð hafa hugsana- og málfrelsi, því mega þær þá ekki eins taka þátt í opinberum málum? Og ef þær eru yfirleitt betri og samvizkusamari en karl­menn, þá sé eg ekki annað en gott eitt í því, að þær fái að taka þátt í stjórnmálum. Þá er illt að þær hvíli alt af í sínu skúmaskoti. Og eg er þess fullviss, að hluttaka kvenna í opinberum málum yrði til þess að draga úr öllum óþverr­anum. Það getur ef til vill orðið kvöl fyrir ráðríka eiginmenn, ef konan fer að hafa afskifti af stjórnmálum — þá ástæðu gæti eg skilið — en hv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) má þó ekki taka þetta sem »insinuation« til sín. En þessi mótbára verður þó að hverfa fyrir kröfu kvenna um almenn mannréttindi. Hv. þm. talaði mörg fögur orð um konuna, »citeraði« meðal annars fallegt kvæði eftir Jónas, þar sem konunni er líkt við blóm, sem hugfanginn elskhugi ber gegnum allar raunir lífsins, en eg hefi nú alt af litið svo á, að konan ætti ekki að vera eins og brúða eða leikfang, heldur sem tryggur förunautur, sem lekur þátt í öllum málefnum eins og maðurinn.

Eg verð þess vegna að halda því fast fram, að till. hv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) verði feld. Annað mál væri að hallast að till. hv. 1. þm. Eyf. (H. H.) og hana mun eg styðja, því að mér sýnist talsvert vit vera í henni.