05.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1032 í B-deild Alþingistíðinda. (1248)
108. mál, stjórnarskipunarlög
Framsögum. meiri hl. (Jón Ólafsson):
Herra forseti! Það var æðimargt, sem háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ) taldi upp af breytingartillögum. Breyt.till. 4 við 8. gr. hefir þá þýðingu, að hún kollsteypir allri skipun deildarinnar og gerbreytir öllu frumvarpinu. Hvað snertir þá breyt.till. við 10. gr., að fella burtu þekkingarskilyrði, þá tel eg það að misbjóða deildinni að leggja til að hún felli það í dag, sem hún hefir samþykt við 2. umr. Get eg ekki ætlað deildinni þann hringlandahátt. Hlýtur það að liggja á takmörkunum, hvort þessi breytingartillaga ætti að komast að. Hvað snertir 6. brtill. við 10. gr., þá fer hún í öllum atriðum sömu leið og frumv., nema í einu. Samkvæmt frumvarpinu missir konan ekki kosningarrétt, þótt maðurinn verði gjaldþrota. Eina nýmælið er því hjá þeim, að hún haldi honum, þótt þau njóti sveitarstyrks. (Bjarni Jónsson: Hér er sama máli að gegna og um konur gjaldþrota manna). Nei, þar stendur öðru vísi á. Bæði hjónin eru jafn skyld að framfæra heimilið, og á því konan ekki að hafa kosningarrétt, ef þau eru á sveitinni. Hér er einungis átt við síðasta árið; lengra er ekki farið.
Þá er breyt.till. við 22. gr., sem hljóðar um orður og titla. Er ætlast til að orðin »og landsstjórn« falli niður. Að banna mönnum að þiggja orður og titla, sem vor konungur veitir, en leyfa mönnum að bera útlendar orður, er ekki hægt að skoða annað en svívirðilega móðgun við sinn eiginn konung. Eg legg til, að greinin komi undir atkvæði, eins og hún er, og sýnist mér að þar hæfi skel kjafti, ef það er ekki óþinglegt orðatiltæki.
Þá eru þessar varatillögur, að fyrir »12 ára« komi »9 ára«, og fyrir »4. hvert« komi »3. hvert«. Eg veit ekki, hvort háttv. flutningsmenn hafa gert sér ljóst, hvaða afleiðingar það hefir. Setjum nú svo, að fyrst verði setið í þeirri nýju efri deild 1915. Þeir sem lengst sætu þar, sætu á þingunum 1915, 1917, 1919, 1921, 1923, það er á 5 þingum á 9 árum. Þeir sem næst kæmu, sætu á þingunum '19, '21, '23, '25, það er einu þingi skemur. Þetta virðast þeir ekki hafa athugað. Þegar nú um hlutfallskosningar er að ræða, þá virðist þetta geta orðið afarhættulegt. Þetta er það helzta, sem eg vildi minnast á, og læt því staðar numið.