03.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1049 í B-deild Alþingistíðinda. (1256)
108. mál, stjórnarskipunarlög
Bjarni Jónsson:
Eg er samþykkur þeim háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) og háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) um það, sem þeir sögðu um fyrirkomulag alþingisdeildanna. Eg er eindregið á þeirri skoðun, að þingið eigi að vera óskift og koma sem oftast saman. Þetta lýsi eg hreina skoðun mína, en það, að eg kem með till., sem fara mikið skemmra, sýnir hvað eg vil vinna til samkomulags. Brtill. okkar um kosningarrétt hjúa er alveg sjálfsögð, því að ákvæði Ed. um það er alveg óþolandi og hreinasta hneyksli, að veita öllum stéttum kosningarrétt nema aðeins einni. Það er alveg sama, hvaða stétt það væri, en því síður virðist ástæða til að útiloka þessa stétt, þar sem flestir bændur landsins eru úr henni komnir. Þetta er hið hróplegasta ranglæti og sé þessi stétt borin saman við aðrar, t. d. fólk í sjóþorpum, að því er mentun snertir, þá verður það því undarlegra. Það er nokkuð einkennilegt, að sá maður, sem er vinnumaður, hefir engan kosningarrétt, en ráði hann sig næsta ár sem sjómaður, þá hefir hann öðlast réttinn, án þess að mentun hans hafi að nokkru leyti vaxið. Eins er það, ef iðnaðarmaður héðan ræður sig fyrir ráðsmann uppi í sveit, þá missir hann kosningarétt. Þetta er svo gersneytt allri samkvæmni, að löggjafarþing getur ekki verið þekt fyrir að láta það frá sér fara. Þá var það þó mun betra, þó ekki væri það gott, sem háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) lagði til um kosningarrétt kvenna, að þeim væri skamtaður rétturinn úr knefa smátt og smátt, það gekk jafnt yfir alla og var ekki eins mikil skerðing á grundvallarreglunni.
Sömuleiðis legg eg mikla áherzlu á það, að kosningaskilyrðin séu hin sömu til beggja deilda. Raunar er það, að aldurstakmarkið sé ekki það sama, ekki eins mikið réttlætisbrot og hitt, en það virðist harla ástæðulítið og er að minni hyggju skaðlegt, að því er samþykki stjórnarskrárinnar hjá landslýð öllum snertir. Eg er hræddur um, að hvorki það ákvæði né hitt gangi í fólkið og okkur ber ekki aðeins að líta á það, hvort þessi stjórnarskrárbreyting verði staðfest af konungi, heldur líka á það, hvort landsmenn felli sig við hana. Þeir, sem vanir eru að aka seglum eftir vindi, ættu að aka seglum eftir þessum vindi, þó að hann sé kannske ekki nema sá margnefndi goluþytur.
Þá er enn eitt atriði, sem eftir minni meiningu er alveg óhafandi í stjórnarskránni. Það er takmörkun á frumkvæði þingmanna til fjárveitinga. Þessar tillögur geta þó ekki álitist mikilfenglegri en allar þær tillögur, sem þingmenn mega koma með viðvíkjandi hegningarlögum, kenslumálum og stjórnarskrárbreytingum. Um þessi mál mega þeir gera eins margar tillögur og þeir vilja, en þegar um nokkrar krónur er að ræða, þá er þeim ekki treyst til að taka rétt á hlutunum. Það er bara í auramálunum, sem þeir mega ekkert frumkvæði hafa, en um þau mikilsverðu mál, sem snerta hag aldra og óborinna mega þeir leggja það til, sem þeir vilja. Eg skil ekki, hvernig menn geta hugsað svona. Það brýtur í bága við þingræðið og drottinvald þjóðarinnar. Það er nokkuð hastarlegt, að vilja kjósenda í kjördæmum að því er fjárveitingar snertir, skuli vera beint frá því að koma undir atkvæði, nema fjárlaganefndinni allra mildilegast þóknist að taka það til greina. Þetta er vegur til að útiloka drottinvald þjóðarinnar, þingið vill alls ekki heyra hvað kjósendur segja. Þetta er svo öfugt, að það tekur engu tali. Eg vil því vona, að þetta ákvæði verði felt burt.
Yfir höfuð er illur þessi tvíverknaður. Eg kýs heldur, að stjórnarskrárbreytingin nái ekki fram að ganga nú, heldur en samþyktur sé einhver grautur í málinu. Eiga þá landsmenn þess kost, að láta uppi álit sitt um tillögur þær, sem fram hafa komið í málinu.
Þriðja atriðið, sem eg vil minnast er ákvæðið um utanþjóðkirkjumenn. Sé eg, að þar er nefndin öll á einu máli, þótt hún hafi ekki haldið fund með sér hér um. Skárra er það, að fé sé ranglega af mönnum tekið og lagt til háskóla, heldur en til kirkju grímuklætt. Það er ranglæti, að neyða þá menn, sem ætla má um, að þroskaðri séu að andarfari, til fégjalda, en láta þá sem á lægra stigi standa, njóta þroskaleysis síns.
Till. háttv. 2. þm. Árn. (S. S.) bið eg allra bölbæna, það er atkvæðamissis. Eg vona að allir muni svo langt, að í umræðunum hér bæði um háskólann og færslu þingtímans gerðu menn tillögu um að færa þingtímann á sumarið. Þetta hefir orðið ofan á í Ed. Það er ekki svo margt, sem mér hefir þótt meðmæla vert af till. Ed., að eg vilji leggjast undir höfuð að mæla fram með þessari breytingu, sem hún hefir á frumvarpinu gert.