03.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1056 í B-deild Alþingistíðinda. (1260)

108. mál, stjórnarskipunarlög

Sigurður Sigurðsson:

Ummæli hv. þm. Dal. (B. J.) og hv. 2. þm. Húnv. (B. S.), að því er snertir breyt.till. mína, hafa neytt mig til að standa upp. Ann­ars ætlaði eg ekki að taka til máls, og það því síður, sem hv. framsm. (J. Ól.) tók vel í þessa brtill. mína. Aðalástæðan gegn till., um að þingið komi saman lögmæltan dag, er sú, að ekki sé nægilegt rúm í þinghúsinu fyrir háskól­ann, ef þingið er háð að vetrinum. En þetta hefir ekki við rök að styðjast. Ef öllu er vel fyrir komið, þá er nóg rúm fyrir háskólann niðri í húsinu. Hins vegar hafa verið færðar ástæður fyrir því, að ýmsum mönnum væri það hent­ugra, að þingið sé háð að vetrinum. En fyrst eg minnist á háskólann, skal eg benda á það, að þegar háskólalögin voru samþykt á síðasta þingi, mátti ganga að því vísu, að ekki mundi langt um líða, áður en fé yrði veitt til hans. En þótt eg sé og hafi verið á móti há­skólanum, þá álít eg samt að fyrst asn­inn var leiddur inn í herbúðirnar, verði menn að taka afleiðingunum.

Hvað sjálfa tillöguna snertir, skal eg geta þess, að viðkunnanlegra er að til­taka ekki í sjálfri stjórnarskránni ákveð­inn dag, er sé samkomudagur þingsins. Það er hentugra að hafa sérstök lög um það efni, svo breyta megi þingtíman­um, ef ástæður þykja mæla með því. Hitt er hégómamál og kappsmál, að setja þingtímann í samband við háskól­ann, og annað ekki, og hafa verið færðar ástæður fyrir því. Vona eg því, að tillaga mín, um að þingið komi sam­an »lögmæltan dag«, verði samþykt.