03.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1057 í B-deild Alþingistíðinda. (1261)
108. mál, stjórnarskipunarlög
Framsögumaður meiri hl. (Jón Ólafsson):
Herra forseti! Mér þykir undarlegt, að menn skuli amast við hinni meinlausu tillögu háttv. 2. þm. Árn. (S. S.). Ákvæðin um háskólahald koma alls ekki í bága við þinghald. Tillagan miðar að því, að halda megi þing eftir ákvæðum einfaldra laga. Háskólinn á að byrja í haust, og verður þá hafður hér niðri, ef kostur er, en ella verður hver deild háskólans í sínum gömlu húsakynnum, og er það engin frágangssök.
Það er sagt, að þingtímanum hafi verið breytt til þess, að háskólinn, sem nú er ætlast til að taki til starfa, geti fengið húsnæði hér í þinghúsinu. Eg held allir geti verið sammála um það, að háskólahús verði að reisa innan fárra ára, eða þá þinghús. Fyrir skömmu hafa verið samþykt hér í þinginu lög um hafnargerð hér í Reykjavík og þá mun ekki verða hörgull á að selja lóðir á Arnarhólstúninu dýrum dómum, og á þann hátt mun fást nægilegt fé til þess að reisa hús handa háskólanum. Eg held því, að alt þetta hjal um háskólann sé ekki á rökum bygt.
Það hefir verið töluvert rætt um það atriði, að Ed. hefir ekki viljað veita vinnuhjúum kosningarrétt. Allir eru sammála um, að vinnuhjú eigi að hafa sama rétt og lausamenn til þess að kjósa. En meiri hluti nefndarinnar vildi ekki breyta þessu til þess að stofna ekki stjórnarskránni í hættu. Því ef farið væri að hrófla við þessu hér, er hætt við að Ed. breyti því aftur og stjórnarskrármálið ónýtist á þessu þingi. Nefndin hefir athugað ástæður Ed. fyrir því, að hún hefir ekki viljað veita vinnuhjúum kosningarrétt nú í þetta sinn, og virðist henni Ed. hafa mikið til síns máls, því það er töluvert viðsjárvert að margfalda kjósendatölu landsins svo mikið alt í einu, eins og nú yrði, ef vinnuhjú fengju nú kosningarrétt ásamt kvenþjóðinni, en heppilegra mundi vera að breyta þessu seinna með einföldum lögum. Eg fæ ekki séð, að þetta sé svo voðastórt spurnsmál, hvorki fyrir land né lýð, þótt það dragist 2–3 ár að veita vinnuhjúum kosningarrétt. Einnig ber að líta á það, að engin ósk hefir komið fram um það frá vinnuhjúum að fá kosningarrétt, og vinnuhjúin hafa þraukað lengur kosningarréttarlaus, en þótt þau bíði 1–2 ár enn. Og eg er viss um, að vinnufólkið hér á landi er svo skynsamt, að það skilur, að þinginu hefir fundist það óeðlilegt að margfalda svo mjög kjósendatölu landsins í einni svipan. Af þessari ástæðu höfum við ekki viljað hagga við þessu. Við viðurkennum, að það sé óeðlilegt, að maður, sem lengi hefir verið bóndi, bregður búi og gerist ráðsmaður hjá ekkju, missi þá kosningarrétt sinn; við vissum þetta, svo það hefði ekki þurft að halda langa ræðu um það (Bjarni Jónsson: Því ekki framfylgja því?). Eg þarf ekki að taka ástæðurnar fyrir þessu upp aftur. Eg veit, að háttv. þm. Dal. (B. J.) jafn skýr maður hlýtur að skilja þessar ástæður, ef hann vill skilja þær, hvernig sem hann virðir þær.
Það eru ýms fleiri atriði í frumvarpinu, sem ýmsir eru óánægðir með, en það er æfinlega þannig, þar sem margir vinna saman að áhugamálum sínum, þá verða menn ávalt að slá nokkuð af sínum skoðunum, svo málið nái fram að ganga. Þetta á sér stað um víða veröld, svo það kemur víðar fyrir en hjá okkur. Og ef öll þau atriði, sem sérstaklega hefir verið óskað af þjóðinni ná fram að ganga, þá er mikið unnið. Ef þjóðin er strax óánægð með eitthvert atriði, þá mun hún kjósa þannig til næsta þings, að þau atriði verði feld burtu á næsta þingi, sem hún er óánægð með, eða þeim breytt.