21.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1085 í B-deild Alþingistíðinda. (1281)
130. mál, tollalög
Sigurður Sigurðsson:
Eg á eina breyt.till. við þetta frumv. á þgskj. 672, sem fer að eins fram á það, að tollur á sódavatni verði hækkaður úr 2 aurum upp í 3 aura. Eg hefði helzt kosið, að tollurinn yrði töluvert hærri, en hvarf þó frá því, til þess að gefa mönnum ekki tilefni til að halda, að hér væri um verndartoll að ræða. En þessi hækkun getur ekki haft það í för með sér. Mér hefði falið það vel, ef nefndin hefði séð sér það fært, að leggja líka eitthvert gjald á innlenda sódavatnsgerð, en það hefir hún ekki gert og meðfram af því fór eg ekki fram á meiri tollhækkun. Eg verð að líta svo á, að sódavatn sé »luxus«drykkur, sem menn geti látið vera að drekka. Eg fyrir mitt leyti neyti aldrei sódavatns eða límonaði. Sódavatn er engin nauðsynjavara og sízt þar sem menn eiga kost á góðu vatni, eins og við hér í Reykjavík, síðan við fengum Gvendarbrunnavatnið.
Að því er snertir breyt.till. háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) á þgskj. 688 um að tóbaksblöð til lækninga á fénaði skuli undanþegin tollskyldu, þá er eg í vafa um, hvort eg get verið með henni. Að því er mér er kunnugt, þá er notkun tóbaksblaða til fjárböðunar mjög farin að minka. Menn hafa önnur meðul til þess fullt eins góð eða betri, og miklu ódýrari. En þó að tóbak sé einstaka sinnum notað sem meðal við skitupest í sauðfé, þá er sem betur fer slíkur sjúkdómur sjaldgæfur. Auk þess mætti ef til vill nota annað meðal við þeirri veiki, sem gæti jafnast á við tóbaksblöðin. Það er því ekki bein ástæða til að aðhyllast tillöguna.