16.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1089 í B-deild Alþingistíðinda. (1290)
80. mál, aukatekjur landssjóðs
Framsögum. (Ólafur Briem):
Enda þótt breytingartill. nefndarinnar séu nokkuð margar, 28 alls, er að eins rúmur helmingur efnisbreytingar og fæstar mjög stórvægilegar.
Fyrsta verulega efnisbreytingin er við 14. gr. og miðar að því, að koma meiri jöfnuði á um gjald fyrir fógetagerðir og felur í sér nokkra hækkun. Sama má að nokkru leyti segja um brtill. við 24. gr. um þinglýsingar; aðaltilgangurinn með henni er að gera ákvæðin styttri og einfaldari, en nokkra verulega hækkun felur hún ekki í sér. Veruleg hækkun er að eins á gjaldi fyrir veðbókarvottorð, samkvæmt 28. gr., 2 kr. fyrir 1 kr., sem áður var. Samræmisins vegna áleit nefndin rétt, að þetta gjald væri hækkað, enda er fyrirhöfnin talsverð við að rannsaka eignarheimildir manna og veðsetningar samkvæmt afsals- og veðbréfabókunum og mjög áríðandi að vottorðin séu rétt. Verulegum breytingum á frumv. stingur nefndin upp á við 5. kafla um gjöld fyrir uppboðsgerðir. Þar leggur nefndin til, að almenn uppboðslaun samkvæmt 35. gr. verði hækkuð um ? úr 4 upp í 5 af hundraði. Þetta álítur nefndin ekkert varhugavert og í samræmi við annað, því að þótt gjald þetta hafi haldist óbreytt frá því, sem það var upphaflega ákveðið í aukatekjureglugerð 10. sept. 1830, þá er það nú í raun réttri lægra, þegar tillit er tekið til þess, hversu peningar hafa lækkað í verði á þeim 80 árum, sem síðan eru liðin. Sömuleiðis er dálítil hækkun í 46. gr. fyrir afsögn á víxli.
Aðalbreyt.till., sem nefndin hefir leyft sér að koma fram með, er sú, að 70. gr. frumvarpsins falli burt. í téðri gr. eru bráðabirgðafyrirmæli um það, að þar til lög um stimpilgjald koma í gildi, skuli innheimta gjöld þau fyrir þinglestur og vottorð, er nefnd eru í 3. kafla laganna, að viðbættum 50 af hundraði, þó svo, að þar með teljist þó ekki gjöld fyrir afmáun og aflýsing. Með þessu ákvæði er beint gert ráð fyrir því, að stimpilgjald verði leitt í lög, en gagnvart því vildi nefndin ekki að svo stöddu taka neina afstöðu.
Það þykir nú máske fljótráðið að fella niður þessa 70. gr. svo framarlega sem hægt verður á sínum tíma að lögleiða stimpilgjald hér, enda höfðu sumir nefndarmenn ekkert á móti því að hækka til bráðabirgða þinglýsingargjöld af skjölum og því um líku, sem stimpilgjald kynni síðar að verða lagt á. Þessa vil eg geta til nánari athugunar við 3. umr.
Viðvíkjandi breyt.till. á þgskj. 206, sem miðar að því að fella aftan af 55. gr. síðasta liðinn, vil eg geta þess, að afleiðingin af því að þessi liður yrði feldur burt, yrði sú, að skip frá öðrum löndum í veldi Danakonungs, sem koma hingað eingöngu til fiskiveiða, sem aðallega eru færeysk fiskiskip, slyppu við gjald það, sem þar er um rætt, 25 aura af hverri smálest á fyrstu höfn, er þau koma á. Eg býst samt ekki við, að það hafi verið meining hins háttvirta flutningsmanns. En eins og breyt.till. liggur fyrir, leggur nefndin á móti henni, ef hún verður ekki tekin aftur, en er fús til að bera sig saman við flutnm. um hana til 3. umr.