09.05.1911
Sameinað þing: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 284 í B-deild Alþingistíðinda. (130)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Lárus H. Bjarnason:
Þegar frv. til fjárl. fyrir árin 1912 og 1913 kom frá Ed. í seinna skiftið, þá var tekjuhallinn áætlaður um 399 þús. kr. Hún hafði lækkað hann um 20 þúsundir, fært hann úr 419 þús. niður í 399, en neðri deild hafði hækkað hann við eina umræðu hjá sér úr 320 þús. upp í 410 þús. Ef allar þær brtill., sem hér liggja fyrir, verða samþyktar, eins og sumir spá, þá bætist við þá upphæð um 50 þús. kr. Mér heyrðist einhver háttv. þm. bera brigður á þetta, en það er ekki rétt, og skal eg nú færa mönnum heim sanninn um það. Hr.fj.vegur kostar 3000 k., Keflav.vegur 5 þús., Bjargtangavitinn 14 þús., aukning Blönduósskóla 2200 kr., viðskiftaráðunauturinn einn 20 þús. kr. og til vegagerðar í Skaftafellss. er beðið um 5 þús kr. Þetta fer nú nærri 50 þús. kr. og þá er tekjuhallinn orðinn 449 þús. Þar við má nú bæta yfir 100 þús. frá fjáraukalögunum, og er tekjuhallinn þá alls orðinn um 550 þús. Svo hár hefir víst tekjuhallinn aldrei orðið síðan alþingi fékk löggjafarvald og því síður áður. Eg heyri að einhver segir ójú. Hann varð hæstur árið 1903 rúm 400 þús. kr., en þá varð þó tekjuafgangur á landsreikningnum.
Háttv. þm. Seyðf. mintist á það, sem reyndar er þýðingarlaust í þessu sambandi, hverjum tekjuhallinn væri að kenna, og skildist mér svo, sem hann vildi kenna minni hlutanum um hann, en þetta er rangt hjá þm. Eg hygg, að hann sé þeim að kenna, sem minka gjaldstofnana og koma fram með tillögur til aukningar gjöldunum og berja þær fram gegnum deildirnar og sameinað þing, og þetta hefir meiri hl. gert hvorttveggja. Hann hefir felt till. um það, að fresta aðflutningsbannsákvæðinu um stundarsakir og enn fremur borið fram langflest af þeim till. um aukin gjöld, sem fram hafa komið. Ef litið er á dagskrána í dag, þá er það hann, sem á allar slíkar till. undantekningarlaust. Svona fara þá „Sjálfstæðismenn“ — og þá um leið sparnaðarmenn, því að sparnaðinum hafa þeir frá öndverðu veifað einna hæst á stefnuskrá sinni — að því, að spara fé landsins. Svona var það einnig þegar fjárl. voru til einnar umr. í Nd. Þá var öll aukning gjaldanna, 100 þús. kr., þeirra megin nema — segi og skrifa — einar 600 kr., sem allir fylgdust að um. Alt hitt hafði „Sjálfstæðisflokkurinn á sinni könnu. Þeim heiður, sem heiður ber!
Annars stóð eg sérstaklega upp til þess að verða við tilmælum háttv. framsm. fjárl. í Ed. um að minnast á þrjár af till. þeim, er hér liggja fyrir, og eru þær á þskj. 962, 969 og 972. Till á þskj. 962 er um viðskiftaráðunautinn, og býst eg við að minni hl. leggi á móti henni. Það gerir hann fyrst og fremst vegna þess, að upphaflega var fjárveiting þessi gersamlega ólöglega framkvæmd, því að það er skýrt tekið fram bæði í fjárl. og fjáraukal. frá þinginu 1909, að þessi styrkur, 10 þús. kr. á fjáraukal. og 12 þús. á fjárl., skuli veittar til viðskiftaráðunauta (í fleirtölu), og sama kemur fram í dönsku þýðingunni, þar stendur „Handelskonsulenter“. Nú hefir þessi maður fengið fyrir árið 1909 helmingi meira en hann átti, og fyrir árið 1910 nálega alt það, sem báðum mönnunum var ætlað, og jafnmikið fær hann náttúrlega fyrir árið 1911, því að hæstv. núverandi ráðh. mun álíta sig bundinn við það sem fyrv. ráðh. hefir veitt honum. Þetta álít eg nú beint fjárl.brot, sem ekki séu nokkur tiltök að verja. Eg skal alveg sleppa skýrslum ráðunautsins. Þær eru ljósasti vottur þess, hve dæmalaust hégómlegt starf mannsins hefir verið. Og loks skal eg einnig sleppa því, að hann hefir verið tímunum saman hérlendis, t. d. í einni lotu síðan fyrir jól, enda álít eg dvöl hans hér engan skaða, en undarlegt er það þó, að fáir eða enginn skuli hafa að því fundið. Og enn undarlegra það mikla kapp, sem svo kallaður „Sjálfstæðisflokkur“ virðist leggja á það, að þessi fjárveiting nái fram að ganga, nema ef vera skyldi að flokkurinn vildi með þessu móti löghelga eina af lökustu gerðum fyrv. ráðherra þannig, að ekki verði seinna náð til hans út af henni.
Það er því undarlegra að bera svo mikið fé í þennan mann, 11 þús. kr. á ári, sem það er upplýst með bréfi norska konsúlsins til bankarannsóknarnefndarinnar í Ed. að sams konar ráðunautar í Noregi fá 2500 til 5000 kr. í laun, og er þó ólíku saman að jafna Noregi og voru landi. Rétt áðan var útbýtt skýrslu rannsóknarnefndar Ed. með öllum svokölluðum skýrslum viðskiftaráðunautsins til stjórnarráðsins. Þær eru of langar til að lesa upp, enda langar mig ekki til þess. Þær eru bæði leiðinlegar og nauða ómerkilegar, ekkert í þann veginn að vera þeirra peninga virði, sem ráðunautnum hafa verið greiddar, enda fær sá maðurinn, sem viðskiftaráðunauturinn ber helzt fyrir sig og hann hefir mest kapp á lagt að fá prentaða skýrslu eftir, einhver V. Jensen í Genova, þennan vitnisburð hjá viðskiftaráðunautinum sjálfum (skýrsla rannsóknarnefndar Nd. bls. 119): „Maðurinn þykir fljóthuga og stórhuga, en nokkuð laus í rás Enn er þess ógetið, að maður þessi átti áður stóreignir, en er nú illa staddur og erfiðar fjárreiður“. Á þennan hátt lýsir hv. þm. Dalam. sjálfur þeim manni, sem hann leggur mest upp úr í skýrslum sínum.
Ed. vildi upprunalega ekki amast við fjárveitingu til viðskiftaráðunauta, hún vildi láta fjárveitinguna standa eins og hún var orðuð upprunalega 1909 og hugði, að það mundi draga til samkomulags við hv. Nd., en Nd. hafnaði þeim samkomulagsboðum, og hefir Ed. því ekki rétt fram hendina aftur, heldur strikað liðinn alveg út. En auk þess sem borið hefir verið alt of mikið fé í viðskiftanautinn, þá er hitt þó verra, að þingið ætlar nú að fara að taka upp á því, að veita nafngreindum mönnum embætti og sýslanir, og þó langverst ef þingið á að ráða því, hvernig maðurinn á að reka starf sitt. En til hvorstveggja er stofnað með veitingu ráðanautsfjárins á nafn þm. Dalamanna og staðfestingu erindisbréfs hans. Með því móti er fyrst og fremst ekki hægt að haga starfinu svo sem æskilegast kynni að vera og ábyrgðin út af því algerlega tekin af núverandi stjórn.
Þá er brtill. á þskj. 969 frá hv. þm. Ak. þess efnis að veita Thorefélaginu 6000 kr. hvort árið til póstflutninga. Um þessa brtill. er líkt að segja sem um hina næstu á undan, að hún er að margra manna dómi gersamlega ólögleg, enda þarf ekki að fara í neinar grafgötur um það, því að í 13. gr. A. 2. fjárl. er beint tekið fram, að borgun fyrir póstflutning megi ekki greiða þeim félögum eða skipum, sem njóta fasts tillags úr landssjóði. Thorefélagið hefir fast tillag, miklu hærra meira að segja, en samein. gufuskipafél. hafði áður. 1908—1909 voru ætlaðar til þess að halda uppi líkum gufuskipaferðum 40 þús. kr. á ári, en ekki brúkaðar nema 30 þús. kr. 1910—11 voru ætlaðar 60 þús. kr. og þær brúkaðar, en að auki voru félaginu veittar 6000 kr. um árið fyrir póstflutning milli landa, svo að það fær alls 66 þús. kr. — Þetta mál er svo ljóst að það hefir ekki verið hægt að gera það að flokksmáli, svo sem menn geta séð á nefndaráliti Ed. um þingsályktunartill. um gufuskipaferðir (þskj. 931). Nefndin er þar öll sammála. Bæði hv. þm. Ísf. og þm. V.-Skaft. skrifa undir það, að skipin séu ekki svo úr garði gerð né ferðum svo hagað sem tilskilið var í fjárlögunum. Nú vil eg spyrja að því, hver ástæða er til þess að verðlauna þetta félag með 6 þús. kr. svona alveg út í bláinn. Til þess hljóta að liggja einhverjar aðrar ástæður en látnar hafa verið uppi. Það mundi ekki vera gert í líku skyni og nafnfesta fjárveitingin til viðskiftaráðunautsins, til þess að hjálpa hv. fyrverandi ráðherra úr þeirri klemmu, sem hann er kominn í út af samningum við Thore, sem sonur hans var svo heppinn erindreki fyrir, sem og allir vita.
Eg hefi að nokkuru leyti svarað brt. á þskj. 972 frá hv. 1. þm. Gbr. og Kjs. Hann hélt því fram, að rétt væri að vitna í Thorefélagssamninginn 7. ágúst 1909 „af því að hann væri löglegur“, en eg hefi sýnt fram á að sá samningur sé ólöglegur, sbr. enn fremur nefndarálit Ed. um gufuskipaferðir á þskj. 931. Auk þess fer ekki vel á því, að binda fjárveitingu við félag, sem vitanlega getur misjafnlega farnast, á svo löngum tíma.
Úr því að eg stóð upp á annað borð, skal eg víkja með nokkurum orðum að sumu því er hv. þingmenn hafa sagt.
Hv. 2. þm. Gbr. og Kjs. hélt fallega stólræðu um Keflavíkurveginn. En hann gleymdi að taka það fram, að þessi vegur er sýsluvegur og á því ekki heimtingu á því að fá grænan eyri úr landssjóði. Það á því ekki við að líkja þessum vegi við Borgarnesbrautina, sem er þjóðvegur.
(Jens Pálsson: Eg sagði, að Keflavíkurvegurinn væri sýsluvegur, en hefði átt að vera annað).
Já, en það er að gera fyrir því sem er, en ekki hinu, sem ef til vill hefði átt að vera, á líkan hátt og hv. 2 þm. Gbr. og Kjs. var eða er forseti Ed. en hefði ef til vill átt að vera eitthvað annað. Annars hygg eg, að hv. þm. hafi með ræðu sinni viljað sannfæra kjósendur um dugnað sinn, í að berja fram þessa fjárveiting, sem þó raunar mun vera afráðin á flokksfundi áður.
Ekki bjóst eg við að þurfa að eiga orðastað við hv. þm. Ísf. í sam. þingi, jafnljúft sem mér hefir verið að vinna með honum í efri deild. Mér kom alveg á óvart að hann skyldi mæla með viðskiftaráðunautsfjárveitingunni, eftir því sem hann hefir talað um hana bæði við mig og aðra. Og ekki bætir það mikið úr þó að viðskiftaráðunauturinn væri jafnan erlendis, eins hv. þm. lagði áherzlu á að hann væri. Þegar tekið er tillit til þess, sem ráðunauturinn hefir afrekað, hygg eg, að jafngott væri þótt hann sætti hér á landi; með því móti sparaðist þó ferðakostnaðurinn, og jafnvel fleiri óþægindi.
Hv. þm. V. Ísf. vildi nú þegar veita fé til Bjargtangavitans. Það er rangt hjá honum, að vér viljum ekki veita fé tíl vitans; vér viljum veita það, en ekki nú. Verkfræðingur hefir aldrei þangað komið, enda engin skoðun farið fram á því, hvar vitinn eigi að standa, eða hvernig hann eigi að vera, né nokkur áætlun til um það, hvað kosta muni að koma upp vitanum; á það hefir fráfarin stjórn slumpað, eins og hv. þm. hefir gert, en á slíku verður ekki bygð skynsamleg fjárveiting.
Viðvíkjandi uppgjöf á 2500 kr. af viðlagasjóðsláni til Barðastrandarsýslu og Vestur-Ísafjarðarsýslu hvorri um sig til handa til talsímalagningar, gat hv. þm. (Kr. D.) þess að sýslurnar hefðu orðið hart úti. Eg vil þar á móti benda honum á það, að nú eru veittar 55 þús. kr. til koparþráðar frá Borðeyri til Ísafjarðar sérstaklega í þágu þessara sýslna, og sýnist mér því nokkuð íburðarmikið, að þær fái tvent í einu, bæði símann og eftirgjöfina. Auk þess er á það að líta, að ef þessi eftirgjöf verður veitt, þá munu fleiri héruð renna á sama vaðið og verður þá óhægara að neita.
Hv. 2. þm. Húnv. sagði, að Blönduóssskólinn hefði orðið harðara úti en kvennaskólinn í Reykjavík
(Björn Sigfússon: Það er rangt, eg nefndi ekki Reykjavíkurskólann.)
Hv. þm. átti að minsta kosti við Reykjavíkurskólann og verður að játa, að þó að heimilaðar væru annarstaðar að 1350 kr. móts við þær 5500 kr., sem farið er fram á til Blönduósskólans úr landssjóði, þá væri það ekki nema á borð við þær 1500 kr., sem kvennaskólinn í Reykjavík verður að útvega sér annarstaðar að, móts við þær 6000 kr sem honum eru ætlaðar úr landsjóði.
Eg hefi þannig gert grein fyrir afstöðu minni til brtill., að svo miklu leyti sem hv. framsögum. fjárlaganefndar Ed. hefir ekki gert það, en hefi því miður litla von um, að orð mín muni hafi mikið að þýða. Það mun vera svo í garðinn búið um flest, að ekki tjáir að spyrna móti broddunum.